19.11.06

Guðrún

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ GUÐRÚN MÍN
og takk fyrir gærkvöldið þetta var bara mikið fjör hjá mér
kv Björk

15.11.06

fer að flytja

hæ hæ
Nú fer ég að flytja um mánaðarmótin, er komin með litla risíbúð á Blönduósi.
Júhú, eins gott því ég var veðurteppt á mánudag, komst ekki í vinnuna vegna veðurs.
Ég nenni því ekki aftur.

12.11.06

Auður

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ AUÐUR MÍN
KV BJÖRK

10.11.06

Er einhver í Stuði?

Ég vona að þú sért ekki búin að fá algjörlega nóg af áfengi eftir síðustu helgi Ragga mín!
Ég er að vonast til að einhverjar ykkar hafi tíma og séu í stuði til að gera eitthvað skemmtilegt um þessa helgi, mig langar til að halda upp á afmælið mitt þó ég sé ekki að halda eitthvað partí eða svoleiðis. Hvað segiði er einhver til í eitthvert djamm með mér um helgina?

24.10.06

Vetur brrr

Já það er kalt á norðurlandi í dag, og maður klæðir sig eftir veðri,fóðraðar buxur og sokkabuxur, takk fyrir. Ég er búin að panta tíma á verkstæði á morgun til að skipta um dekk. Nei ég er ekki búin að þrauka á sumardekkjum allt haustið heldur er ég á heilsársdekkjum en ég þori því ekki mikið lengur og fer á naglana á morgun.

12.10.06

Til Hamingju Inga María, Eyþór, Perla og Ólöf

Elsku Inga
Til hamingju með drenginn, sá hefur aldeilis verið að flýta sér í heiminn í gær. Ég óska ykkur fjölskyldunni alls hins besta og að þið hafið það gott.
kv. +
Auður

9.10.06

Saumaklúbburinn 13 ára


sælar stúlkur
Ég var að spjalla við Röggu í gær og rann upp fyrir okkur sú staðreynd að saumaklúbburinn okkar er kominn á fermingaraldur. Að því tilefni datt mér í hug að setja inn mynd af nokkrum af okkur frá upphafinu þegar við vorum að hvetja strákana áfram. Auk gestaleikara reyndar.... mikið rosalega er gaman að eiga skanna ha ha ha .... En sem sagt upphafið var í byrjun Maí '93!!!!
Bara ein spurning að lokum Hvar er bókin ????

5.10.06

Vírus í MSN

Sælar stelpur
Ég varð í fyrsta skipti vör við vírus sem dreifir sér með msn, þannig að ef að það er linkur á einhverja síðu frá einhverjum sem þið spjallið við á msn þá er best að spyrja viðkomandi fyrst hvort hann þekki linkinn. Ég fékk skilaboð frá mági mínum og frá frænku minni, þar sem stóð is that you on that foto og linkur á einhverja síðu. Mér fannst skrítið að fá texta á ensku frá honum og opnaði þetta ekki strax, fékk síðar viðvörun að um vírus hafi verið að ræða.

2.10.06

Bara smá röfl

Jæja mér líst bara vel á ykkur að drífa af sem flesta saumó núna, bara komið líf í okkur. Ég sit hér á skrifstofunni og bíð eftir að tölvurnar klári sín verk. Er að afrita eina og önnur er að kópera yfir á netið, á þá þriðju skrifa ég og sú fjórða er einkatölvan mín þar sem ég þurfti að ná í einkapóstinn minn. Haldiði að það sé, jæja það var allavega komin tími til að einhver hugsaði aðeins út í þessi tölvumál hérna, vinnustaðurinn í heildina er með 6 tölvur og af þeim voru 2 afritaðar daglega í mjög dýrri þjónustu við fyrirtæki á Akureyri. Hinar 4 voru aldrei afritaðar... svo er ekki almennileg vírusvörn á öllum bara sumum, og annað eftir því. Ég er sem sagt að vinna í þessu. Og verð að bíða eftir að þær klári þetta, ég nenni nú samt ekki að bíða til kl 19 eins og ein tölvan segir að þetta taki, það getur bara ekki verið. Ég fer kl 18....

19.9.06

Hæ, hæ

Sælar
Það er allt fínt að frétta af mér. Mikið sparkað og allt í fullu fjöri. Nú eru ekki nema rétt tæpar fimm vikur eftir!!!! Þetta líður hratt en samt finnst mér eins og ég sé búin að vera ólétt forever. Ég er varla að nenna að bíða þessar fimm vikur því ég á svolítið erfitt á nóttunni - er endalaust að bylta mér og svo fylgir þessu a.m.k. ein klósettferð að nóttu til.
Stelpurnar eru alveg rosalega spenntar og geta varla beðið eftir litla bróður. Það er gaman að upplifa þessa spennu hjá stelpunum, þær eiga örugglega eftir að bjarga mér heilmikið meðan ég er í skólanum, hef ekki trú á öðru.
Skólinn gengur bara ágætlega - ennþá, á reyndar eftir að fá verkefnin sem hafa öll mjög svipaðan skiladag eða í kringum miðjan október - vona að ég nái að koma þeim frá mér áður en ég fer upp á fæðingardeild.
Ætlaði svona bara að láta rétt heyra frá mér, vonast til að fleiri hendi inn einni og einni línu.
Heyrumst.

8.9.06

Takk fyrir mig

Takk fyrir mig Ásta.
Það var rosalega gaman að hitta ykkur stelpur. Megum ekki láta líða svona langan tíma á milli hittings.

4.9.06

Saumó - Ásta

Það er svo langt síðan að ég bloggaði að ég er búin að gleyma hvernig á að skrifa almennilegan póst, þannig að ég skrifa þetta bara hér, þið megið líka henda þessu inn á síðuna ef þið viljið.
Hvað segið þið um saumó fim. 7. sept. Þá kemst Auður. Ég fer nefnilega norður í réttir og get því ekki haldið saumó yfir helgina.Látið mig endilega vita.

hent inn fyrir Ástu

Ég kem ef það verður saumó.
Kv. Inga

3.9.06

Ása orðin íslandsmeistari






í dag varð Ása íslandsmeistari í fyrsta skiptið loksins

2.9.06

Heimsókn frá meðlimi saumaklúbbsins

Hæ hæ
Ég fékk Guðrúnu í smá heimsókn hér á leið sinni til Akureyrar í gær, hún ætlar að leggja af stað tímanlega frá Akureyri á morgun til að stoppa aðeins lengur. Hún ætlar að taka út heimilið til að sjá hvort ekki sé hægt að halda saumaklúbbshelgi hér.
Annars er mamma og vinkona hennar í heimsókn þessa helgina. Svo að ég hef nægan félagskap hér núna.
Ég vil endilega hitta ykkur í saumaklúbb en ég er búin með óvæntu fréttirnar mínar í vor, það er engin ólétta, þó ég sé þung og magamikil, maður þarf víst að vera við karlmann kennd til þess. ´
bæ bæ
doppa

24.8.06

Til Hamingju Inga

Til hamingju með að vera búin í prófunum Inga.
Ef þið eruð að spá í að halda saumaklúbb um helgina er ég til hmmm. Látum okkur nú sjá hverjar eiga eftir að halda saumaklúbb á árinu, við höfum staðið okkur álíka ílla og í fyrra held ég.
Núna vantar upp á - maí= Sirrý , Júní= Ég, Júlí = Frí, Ágúst = Ásta og næst er svo Björk í september.
Ég verð að segja sjálfrar mín vegna að ég reyndi að halda saumaklúbb, það bara vildi engin ykkar koma norður til mín í Júní. Ég spurði hérna á blogginu hvenær þið hefðuð tíma og engin virtist hafa það.
En jæja ég kem í bæinn á morgun ef þér skyldi detta í hug að halda saumaklúbb um helgina Ásta.
Í september veit ég ekki enn hvort ég verði í bænum allar helgar, það eina sem ég veit er að ég er að fara á námstefnu í bænum 8 september og þarf þá að fara í bæinn 7 sept, það er eina fimmtudagskvöldið sem ég get mætt.

20.8.06

My famous man

Úllala, ég er semsagt í próflestri ;) og datt inn á eitthvað test.
Ekki slæmt það að fá þennan dreng upp sem draumaprins, ég er ótrúlega sátt. Maður fær bara hjartslátt ;)
Prufið sjálfar með því að smella á linkinn hér að neðan eða í fyrirsögninni.


Take the quiz:
Who is your famous man?

Orlando Bloom
WOW!! you have your head in the clouds. This humk is a forgeiner! He has an accent and he's gorgeous!! He always knows what a woman wants and needs in her life. He will ALWAYS keep you happy and never disappoint you. If he gets himself in trouble, all he has to do is put his puppy dog eyes on, and he gets whatever he wants... STAY CLEAR of his romantic side.. you'll fall in love!

Muna svo eftir Enjo kynningunni - sjá hér aðeins neðar.

18.8.06

komin heim

hæ hæ
Ég er komin heim eftir góða og stórskemmtilega ferð til Króatíu. Þ.e.a.s þrátt fyrir mikil óþægindi vegna kinnholu og eyrnabólgu í lendingu. Ég verð ekkert í bænum á virkum degi á næstunni, ég á ekkert frí. En ég kem um helgar, ég kom norður í gær og ætla nú samt að kýkja á Menningarnótt á morgun. Ég ætla að vera á Skagaströnd á Kántrídögum í kvöld og keyra svo suður í fyrramálið. Ég kemst því ekki á Enjókynningu né kæmist ég á saumaklúbb á virku kvöldi. Svo núna þegar haustar verð ég að hætta að fara þetta um hverja helgi, það er svo dýrt að vera alltaf á þessari keyrslu og ég verð líka að reyna að koma mér betur inn í samfélagið hér.

Enjo kynning - 28. ágúst kl. 20

Sælar pæjur

Ég var að fá símtal frá Enjo kynningaraðila og ætla að stefna á að halda kynningu mánudagskvöldið 28. ágúst kl. 8. Endilega látið mig vita hvort þið komist eða ekki. Læt nú heyra í mér ef þið sýnið engin viðbrögð ;) það virðist vera misjafnt hverjir droppa við á þessari síðu svona yfir sumartímann.
Kveðja,
Inga María

4.8.06

Verslunarmannahelgin

Sælar

Vona að þú verðir búin að ná þér Auður áður en þú ferð til Króatíu.
Ég ætla nú bara að vera heima og LÆRA, ég ákvað að skella mér í sumarpróf. Eyþór var nú samt eitthvað að tala um að Stuðmenn væru með tónleika í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á laugardagskvöldið þannig það er aldrei að vita nema við skellum okkur þangað. Hinsvegar er litla-stóra barnið mitt á Þjóðhátíð í Eyjum, þetta byrjar snemma ;) Henni var boðið að fara með vinkonu sinni OG MÓÐUR og fleirum. Þetta verður eflaust hin mesta upplifun fyrir hana, væri alveg til í að fara en er samt ekki að nenna neinni útilegu í því ástandi sem ég er í. Ég er að verða komin 29 vikur (11 eftir) og mér finnst eins og ég sé gjörsamlega að springa, alltof mikið eftir finnst mér, ég verð örugglega farin að rúlla þegar að þessu kemur. Ég er búin í prófunum 24. ágúst og hver veit nema ég bjóði ykkur bara heim eftir það. Langar að fara að sjá ykkur, spurning hvort maður þekki ykkur í sjón eftir svona langan tíma, hihi. Vona að þið hafið það gott um þessa helgi og farið varlega í umferðinni.

Góða ferð Auður

Verslunarmannahelgin

Sælar stúlkur
Ég vona að þið finnið ykkur allar eitthvað skemmtilegt að gera þessa helgina. Ég veit að Björk og Ása fara til Köben. Ragga heppna og fjölskylda hennar komust aftur af stað með nýjan bíl og nýtt hjólhýsi, þau eru örugglega í einhverri útilegu þessa helgi.
Hvað með ykkur hinar ?
Ég er fárveik, með kinnholubólgur, hósta, smá hita, eyrnabólgu og vesen, er að rembast við að mæta í vinnuna en held að ég ætti bara að fara heim. Stefni á að vera nógu hress til að fara í bæinn á morgun, ég geri ekkert gagn hérna.
Ég ætlaði að eyða helginni í bænum, og fljúga svo út til Króatíu á miðvikudag.
Ég kem aftur 16 ágúst, kannski við förum að hittast eitthvað fljótlega.
kv.
Auður
p.s. í blogginu mínu gleymdi ég að minnast á heimsóknina frá Bryndísi og fjölskyldu, þar sem við hittumst og fengum okkur ís á Essóstöðinni á Blönduósi.

6.7.06

sammála síðasta ræðumanni

Ég er sko alveg til í að fá ykkur í heimsókn. Reyndar verð ég í bænum um helgina, en ætla að vera hér helgina á eftir.
Ég er ekki enn búin að klára að ganga frá íbúðinni og það kostar sitt að vera ekki búin að koma henni í útleigu ennþá. Svo ég stefni á að vinna í íbúðinni þessa helgina, reyna að klára það sem ég get gert og fá bræður mína til að gera eitthvað næstu vikur svo hún sé í góðu standi fyrir næstu mánaðarmót.
Ég er allavega búin að klára bílaleitina, keypti mér bíl um síðustu helgi. Subaru legacy '97.
Ef þið hafið tíma og viljið gera eitthvað skemmtilegt í bænum þessa helgi er ég sko til.
kv.
Auður

5.7.06

Hvernig væri að fara að hittast

Hæ stelpur hvað er að frétta ?
er ekki komin tími til að hittast eða eru allir mjög uppteknir
við gætum farið á kaffihús eða bíó eða
kíkt á AUÐI okkar
hvað segið þið er ekki komin tími á eitthvað
ég er alla vega til er í frí þannig að tíminn skiptir ekki máli
langar bara að sjá ykkur
með von um viðbrögð
kv Björk

21.6.06

Elsku Inga til hamingju með Afmælið

Til hamingju með afmælið elsku Inga María.
Njóttu dagsins og hafðu það gott í faðmi fjölskyldu og vina.
kv.
Doppa

7.6.06

Veikindi

Hæ hæ
Mikið skelfing eru þið lélegar að skrifa hérna.

Ég er farin heim úr vinnuni í dag, er komin með einhverja magapest.
bið að heilsa ykkur
kv.
Doppa

29.5.06

Kveðja frá Skagaströnd

uss elskurnar mínar það er bara ekkert að gerast á þessari síðu engin skrifar neitt orðið uss uss.
Jæja nú er ég flutt á Skagaströnd, svona mest megnis rúmmið mitt er komið hingað svo ég telst víst flutt.
Ragga og Steinar þessar elskur björguðu mér alveg. Ragga þurfti að sækja krakkana í sveitina og ég nýtti tækifærið og fékk hana til að draga kerru með öllu dótinu mínu. Svo fór hún í bæinn aftur svo hún tók kerruna með til baka. Og þá lenti ég ekki heldur í vandræðum með að fá einhvern til að bera dótið inn heldur. S.s. ég er búin að fá fyrstu heimsóknina mína ég skulda þeim sko grillveislu þegar þau koma í alvöru heimsókn einhverntímann í sumar.
Röggu varð á orði að þessi kerra væri bara eins og félagsheimilið í "með allt á hreinu" það voru orð að sönnu, alveg ótrúlegt hvað okkur tókst að taka með okkur.
Ég var hins vega soldið einmana í gærkvöldi, dauðþreytt og vildi glápa á sjónvarpið en gat það ekki. Ég næ engu íslensku sjónvarpi, bara einhverjum útlenskum stöðvum og það ílla. Svart hvítt og óskýrt, ef ég næ myndinni nokkurn veginn áhorfanlegri þá fer hljóðið og öfugt. Það er víst eitthvað kapalkerfi í gangi hérna og ég held að gamli imbakassinn minn sé bara of gamall til að móttaka merki kapalkerfisins. Allavega það kemur maður á morgun sem kýkir á þetta. Í gærkvöldi hafði ég ekki heldur neitt netsamband. Mér leist ílla á það, í dag reyndi ég aftur að fá netsamband og það tókst. Eins gott að ég fékk mér fartölvu áður en ég kom hingað. Ég þarf allavega að vera í netsambandi ef ég er ekki í annarskonar sambandi við umheiminn.
Ég kýkti á sjónvörp í kaupfélaginu áðan en það verður að segjast að ég tímdi því ekki alveg að kaupa sjónvarp þar. Ég kýki í Sjónvarpsmiðstöðina þegar ég kem heim um helgina. Og þá verð ég að kýkja á bíla líka, verður að vera fjórhjóladrifinn og með kúlu. Það er augljóst, ég er samt ekki að leita mér að jeppa, þetta eru nún engir fjallvegir hingað. En hver veit.
Ég er smám saman að koma mér inn í vinnuna, en það er mikið að læra á allt kerfið.
Ég er að spá í að skrá mig í MA nám í stjórnsýslu í HÍ í fjarnámi þar ætti ég allavega að læra á allt stjórnsýslukerfið. Það er fjarkennslubúnaður í næsta húsi við mig þar sem allir íbúar Skagastrandar hafa frjálsan aðgang svo ég get kannski nýtt mér það.

Ég á nú að halda saumaklúbb í Júní, eru einhverjar til í að skreppa norður í eina helgi í saumó til mín? Hvernig væri það ? Eru einhverjar að fara í frí á norðurlandi þetta sumarið? Ég geri ráð fyrir því að Ragga verði hérna á ferðinni með einbýlishúsið í eftirdragi eitthvað í sumar en hvað með ykkur allar hinar? Látið mig nú vita ef þið eruð eitthvað á ferðinni á svæðinu svo ég geti nú kannski hitt á ykkur.
kv.
Auður

9.5.06

Hittingur fljótlega?

Nú fer þessari próftörn að ljúka hjá mér, klára ekki á morgun heldur hinn.
Ég væri sko alveg til í fara hittast fljótlega. Sá í síðustu færslu að Sirrý væri að hugsa um að fara að halda saumó, líst rosalega vel á það. Hlakka til að hitta ykkur.
Kv. Inga

4.5.06

Blönduós

Hæ hæ
Ég þarf að skreppa á Blönduós á morgun, legg af stað um 9 leitið til að vera mætt í atvinnuviðtal kl 12. Viðtalið er vegna starfs sem félagsmálastjóri á Blönduósi og Skagaströnd. Ég er á fullu við að stytta buxur og ermar (í höndunum) á buxnadragtinni sem ég keypti mér í Glasgow svo ég komi nú vel fyrir á morgun. Svo það er bara aldrei að vita nema að ég sé að flytja norður fljótlega. Sari mágkona mín kemur með mér svo mér leiðist ekki á leiðinni.
Annars hef ég aðrar fréttir að færa þegar næsti saumaklúbbur verður, bara svona til að vekja forvitnina hjá ykkur he he. Segi ekki neitt fyrr en ég hitti ykkur .
Ég talaði við Sirrý í gær og hún telur líklegt að það verði saumó í næstu viku. Hún á reyndar saumó í hinum klúbbnum líka í Maí svo það er slatti að gera hjá henni.
Mútta er í New York núna og fer til Flórída á morgun, svo ég get farið til Blönduóss á bílnum hennar, sem er mjög gott því ég er á hálf ónýtum dekkjum.
Bið að heilsa ykkur
kv.
Doppa

28.4.06

sælar stúlkur

hæ hæ
Ég er komin aftur eftir skemmtilega ferð. Það var ekki svo mikið mál að venjast því að vera öfugu megin á veginum, það vill svo til að umferðarmenningin á Bretlandi er á háu stigi, mikil tillitsemi, bílum hleypt fram fyrir, aldrei sá ég neinn svína fyrir annan, þetta sýnir manni hversu mikið við gætum lært af öðrum hvað umferðina varðar. Það eru nánast hvergi umferðarljós, hins vegar er mikið um hringtorg, sem ég hef ekki verið svo hrifin af hingað til , en þau virka mjög vel þarna. Þess utan er allt vel merkt og þannig kemst maður alltaf þangað sem maður vill.
Sem sagt vel heppnuð ferð.

19.4.06

Gleðilegt SUMAR

hæ hæ
Mig langaði bara að óska ykkur gleðilegs sumars. Ég veit að sumir eru spenntir að prófa nýja hjólhýsið sitt í sumar. Ég er spennt yfir ferðalaginu mínu, á föstudag flýg ég til Glasgow. Ég gerist svo djörf að leigja bílaleigubíl fyrir vikuna og þarf því að læra að keyra öfugu megin. Ég verð reyndar hjá Lindu vinkonu minni en ég verð allavega að keyra frá flugvellinum til hennar..... Gvöð má vita hvernig það gengur hahahah.
Ég óska ykkur öllum gleðilegs og góðs sumars.

15.4.06

Páskakveðja

Sælar stelpur


Langaði að óska ykkur


Gleðilegra páska




Er á leiðinni út úr bænum á morgun þannig ég á örugglega eftir að gleyma þessu þá. Ég er að fara í sveitina til að læra, kem aftur í bæinn 24. apríl. Hlakka til að sjá ykkur.




Kveðja, Inga María

9.4.06

Apríl saumó

Ég verð í Glasgow 21-28 apríl, þannig að fyrir páska eða um páskana er kannski best. Líka vegna Ingu sem er í burtu vikuna eftir páska líka. Ég verð reyndar að vinna mán, þri og miðvikudagskvöld. Þannig að ég get ekki mætt fyrr en eftir kl 10 þau kvöld.
Hvað segir þú nú Ragga mín, ertu að finna tíma?
kv.
Auður

2.4.06

afmælin okkar

Inga er svo dugleg að setja upplýsingar á þessa síðu okkar. Nú eru afmælisdagarnir komnir inn, og ég verð að viðurkenna að ég hafði aldrei pælt í því fyrr að Inga er sú eina af okkur sem á afmæli ein. Þ.e.a.s. allar aðrar deila mánuði með einhverri. Svo Inga á enga afmælismánaðarsystur í saumaklúbbnum. uss verðum við ekki að bæta úr því og bæta einni við í klúbbin sem er fædd í júní líka hehe. Jæja Inga mín nú ert þú búin að sjá til þess að við sjáum á þessari síðu hvenær þú átt afmæli, sem er eins gott. Því undanfarið hefur þú sett inn afmæliskveðjur til allra, alltaf með allt á hreinu.

Ég var í Gullfoss í þessum norðangarra í dag, það var nú soldið kalt svo ég var svakalega happy með fóðruðu buxurnar mínar og almennt það að vera velklædd á meðan kanarnir voru svona frekar ílla klæddir á heildina litið. Eins og við segjum oft við þessa túr hesta, það er ekki til vont veður bara illa klætt fólk he he. Í næstu viku fæ ég svo nýju 66° peysuna mína með nafninu mínu ísaumuðu .

27.3.06

Skanni

hæ hæ
Ég er að fara í gegnum allar gömlu ljósmyndirnar mínar og raða inn í albúm. Mér flaug í hug að það gæti verið góð hugmynd að skanna inn allar flimurnar mínar til að eiga allt á stafrænu formi. Ég kaupi mér þá auka harðann disk (útværan) fyrir afrit svo að allt sé öruggt. En ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta hér er sú að ég ætlaði að athuga hvort einhver af ykkur hefur aðgang að slíkum skanner, eða viti hvort hægt sé að leigja svoleiðis, því það er aðeins of dýrt að kaupa þetta fyrir þetta eingöngu, maður notar skanna svo sjaldan.
Hvað segja tölvufræðingarnir okkar, Bryndís og Inga?

kv.

26.3.06

Afmælisbarnið Sirrý

Til hamingju með afmælið Sirrý.
Vona að þú hafir átt góðan dag.
Afmæliskveðja,
Inga María

24.3.06

Fótbolti

hæ hæ
Ég get lofað ykkur því að ég fylgist ekki með boltanum, en í morgun sá ég fyrirsögn í fréttablaðinu sem fékk mig til að lesa aðeins meir um fótboltaakademíu KR. Bara út frá samræðum sem við Björk áttum út af framtíðarhorfum Ásu í boltanum. Mér hætti að lítast á blikuna þegar mér sýndist þessi akademía eingöngu vera fyrir strákana... þvílíkir asnar... allavega var talað um strákana þetta og strákana hitt en ekkert minnst á stelpur í þessu viðtali.
Fuss um svei

20.3.06

Mars - saumó

Hæ pæjur og takk fyrir síðast.
Ég var að spekúlera að halda saumó þriðjudaginn 28. mars.
Hlakka til að sjá ykkur ALLAR þá ;)
Kveðja,
Inga María

16.3.06

David Hasselhoff

Mér er gjörsamlega fyrirmunað að skilja hvernig hann gat öðlast þvílíkar vinsældir í Þýskalandi á sínum tíma. En þetta er víst hluti þýskrar menningar sem ég á aldrei eftir að skilja. Það er ákveðin stéttaskipting í þjóðfélaginu og menningu þýskalands og eins og vinsældir hans og fleiri (ótrúlega margt skrýtið sem verður vinsælt þar) sýna þá er mikil gjá á milli stétta þegar kemur að menningu almennings (popular culture).
Ég varð líka mjög hissa þegar ég komst að því að hann væri kani og enginn þjóðverji, ég hélt lengi að hann væri þjóðverji að uppruna, sem hefði ungur flutt til amríkunnar, en nei, ekkert þýskt blóð hjá honum þótt nafnið fái mann til að halda það.
Hvað svo sem því líður er þetta fyndið vídeo... ég held það hljóti að vera í það minnsta 10 ára gamalt.

14.3.06

Afmælisbarnið Ásta

Innilega til hamingju með daginn.
Vona að þú eigir góðan dag.
Afmæliskveðja,
Inga María

10.3.06

Leikskólabörn

Ég fékk sendann link með myndbandi af leikskólabörnum að syngja "til hamingju Ísland"
mjög fyndið en um leið .................

9.3.06

Febrúar saumó á föstudag

hæ hæ
Í gærkvöldi fékk ég sms frá Guðrúnu, hún býður til saumó á föstudag. Jippý þá förum við að hittast á ný. Ég kemst og vonandi sem flestar af ykkur hinum, þrátt fyrir Idol??
kv.
Doppa

p.s. Inga, mér sýnist textinn hennar Bjarkar vera kominn inn, en hjá þér?

8.3.06

Mars saumó

Hæ stelpur
Ég á víst að halda saumó í mars og ætla að standa við það :) Ég býst samt við því að ég haldi hann seinni partinn í mars, kannski í næst síðustu eða síðustu vikunni - það er svolítið mikið að gera þessa dagana. Guðrún fær þá tækifæri til að halda febrúarsaumóinn sinn áður ;)
Ég sendi henni SMS um daginn þannig hún veit að hún átti febrúar. Endilega ef þið heyrið í henni minnið hana á þetta ef hún skyldi vera búin að gleyma.

Eitt finnst mér skrítið ég sé ekki síðustu færsluna á netinu frá Björk, sé hana bara þar sem við búum til nýtt skjal, furðulegt.
Bæ í bili

sumó saumó saumó

hæ hvenær verður saumó? ég er farin að sakna ykkar
kv Bjork

28.2.06

Afmælisbarnið Bryndís

Til hamingju með afmælið Bryndís. Vona að þú eigir góðan dag.
Afmæliskveðja,
Inga María

22.2.06

hvernig saumaklúbbar breytast

hæ hæ
ég rakst á eftirfarandi í blogginu hennar Nönnu Rögnvalds hjá Gestgjafanum og set hér inn til umhugsunar hehe.


"Þegar saumaklúbburinn minn fór að hittast fyrir meira en aldarfjórðungi töluðum við um stráka og djamm og námið. Það þróaðist fljótt yfir í óléttur og fæðingarsögur, vinnu, íbúðakaup, barnauppeldi, eldhúsinnréttingar, svo starfsframa, skilnaði, unglinga ... Núna tölum við um barnabörnin, gráu hárin, breytingarskeiðið, þvagleka, fjarsýni, lífeyrissparnað, elliheimili ...Við, miðaldra? Tjaaa ...Það er samt ekki hlegið neitt minna í saumaklúbbnum en áður. Meira ef eitthvað er.
dæsti Nanna"

21.2.06

H A L L Ó !

Sælar skvísur
Ætla nú bara svona rétt að láta heyra frá mér.
Af mér er allt ágætt að frétta, bara svolítið mikið að gera þessa dagana. Er að fara í próf á eftir, vona að mér gangi vel. Svona eru dagarnir hjá mér þessa stundina, verkefnaskil, próf, verkefnaskil o.s.frv.
Takk kærlega fyrir síðast, sumarbústaðaferðin. Það var rosalega gaman, kannski meiri afslöppun nú en oft áður (hjá mér a.m.k.). Hlakka til að hitta ykkur í næsta saumó, hvenær svo sem hann verður. Mér sýnist Guðrún eiga að halda í febrúar, held við verðum bara að láta dömuna vita af því - hún fylgist eflaust ekkert með á þessari síðu ;) Svo á ég að vera með í mars, styttist óðfluga í þann mánuð, úff hvað þetta líður hratt. Sjáumst pæjur, endilega hendið inn línu svona bara til að vita að þið eruð enn á lífi.

Ein spurning! Hvernig finnst ykkur lagið með Silvíu Nótt? Mér finnst það bara fínt, gaman að því. Þó fannst mér lagið sem Regína söng langlang best.

10.2.06

smá nafna bull

lesið þetta og lesið þá sérstaklega nöfnin hratt yfir og ekki vera að pæla í hvernig þau eru skrifuð heldur hvernig þið segið þau frekar hratt...útkoman er ansi skondin:)

Bekkjarafmælið
Ósk Ýr gekk rösklega með Branda Ara í afmælið til Egils Daða því hún var að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann. Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim.
Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf og Hreinn Bolli. Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum. Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni. Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar – “#%=&#$&/(=!z#$!/!=! Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín?
Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni. Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum. Hún var orðin alltof sein í afmælið
');
//-->
kveðja Bjork

9.2.06

Afmælisbarnið Björk

Innilega til hamingju með daginn. Vona að þú eigir góðan dag
Afmæliskveðja,
Inga María

7.2.06

Afmælisbarnið Ragga

Til hamingju með afmælið Ragga mín. Vona að þú eigir góðan dag.
Afmæliskveðja,
Inga María

6.2.06

Bókin?

hæ takk fyrir síðast, það var gaman hjá okkur í bústaðnum en ég er búin að fá nóg af Singstar fyrir mína parta og hlakka til að takast á við klassísku spilin næst. ;0)
Og svo hef ég hugsað mér að fækka áfengistegundunum sem ég tek með mér, verð kannski eingögnu með bjór næst, virkar greinilega best hehe miðað við ástandið á föstudeginum.

En jæja nóg um það, allt í einu flaug mér í hug spurningin um það hvar bókin góða væri niðurkomin?

Kannski væri ráð að glugga aðeins í hana ?

bið að heilsa ykkur og hlakka til að sjá ykkur allar fljótlega og þá sérstaklega afmælisbörn mánaðarins hmm Björk, Ragga og Bryndís.

kv. Doppa

26.1.06

á morgun jii hvað mig hlakkar til

hæ hæ
Á sama tíma á morgun verðum við vonandi í svaka stuði í bústaðnum ha?
Nú er um að gera að gleyma engu við að pakka í dag, hvenær förum við af stað, það var svo margt sem við ræddum ekki almennilega í gær en ok við spjöllum bara á morgun. Inga mín já Eyþór getur fengið bílinn, ég var ekki við tölvuna áðan þess vegna gat ég ekki svarað þér á MSN, skrapp aðeins að vinna.
Elsku dúllurnar mínar viljið þið hugsa fallega til mín í fyrramálið kl 8:30 þá verð ég í atvinnuviðtali og er ég mjög spennt fyrir þessu.

23.1.06

Á miðvikudag hjá Barbíe

Ég vona að ég komist, það er reyndar mikið að gerast í félaginu núna, margir fundir framundan. En líklegast verður fundurinn búin tímanlega svo ég ætti að komast, en kannski örlítið seinna.

21.1.06

Sumarbústaðaferðin

sælar stúlkur
Eftir nákvæmlega 1 viku erum við í svaka stuði í sumarbústaðnum.
Ég ætla að skrifa hérna smá lista yfir það sem ég man eftir að við þurfum að ákveða eða taka með, svona smá brainstorming þar til við hittumst næst.
  1. Bílar :Ég get verið á bíl ekkert mál, en hins vegar er hann frekar lítill og rúmar ekki mikið, svo er spurningin um færð, þó ég hafi ekki fest mig neitt eða lennt í neinu í færðinni í bænum undanfarið þá eru stærri bílarnir nú betri í vondri færð í svona ferð. Nú plássið þarf ekki að vera vandmál ef við getum sett farangur í einhvern hinna bílanna og ef við erum samferða þá ætti færðin ekki að vera vandamál heldur.
  2. Matur: Við vorum búnar að ákveða að Guðrún sjái um laugardagsmatinn, en þarf ekki einhver að fara með henni að versla, ég býð mig fram sem hjálparkokkur Guðrúnar og væri alveg til í að fara með að versla.
  3. Meiri matur: Föstudagssmáréttirnir, snakk, snarl, nammi, hver gerir hvað?
  4. Spil: Ok, hvaða spil á að taka með, hver á hvaða spil? Hvaða spil hafa verið skemmtilegust í gegnum tíðina? Klassíkin er náttúrulega pictionary, sequence, trivial og einhver fleiri sem ég man ekki eftir í augnarblikinu. Mér fannst líka mjög gaman að fumbulfambli hérna einu sinni. Ég á trivial, pictionary(á ensku hehe), yatsy, rummikubb og venjulegann stokk náttúrulega. Einhver minntist á sing star, en varla fer einhver ykkar að taka ps af börnunum í heila helgi. Hvað dettur ykkur í hug?
  5. Tónlist: tónlistarsmekkur okkar er fjölbreyttur engin ein getur átt tónlist sem hentar okkur öllum, ætti þá ekki hver og ein að taka með sér nokkra af sínum uppáhalds, svo gætum við skipst á sem plötusnúðar, t.d. fengi Sirrý ákveðinn klukkutíma, Inga annan og næsta enn annan?? Bara svona smá hugmynd, og einmitt, Inga ég er með diskana þína á borðinu við útidyrnar svo ég ætti að muna eftir þeim næst þegar við hittumst.
  6. ýmislegt smálegt: kaffi, kaffifilter, mjólk/ sykur í kaffið, tuskur, diskaþurrkur, plastpoka (stóra og litla), servéttur/eldhúspappír, kerti, ísmolar
  7. Muna að taka með: sængurföt, sundföt, nærföt, náttföt, hlý föt (fyrir árlega göngutúrinn hehehe) handklæði, eyrnatappa, tannbursta, hárbursta, sokka, myndavél, áfengi, morgunmat, drykki, lestrarefni sem maður hefur engann tíma til að lesa, handavinnu sem maður nær ekki að gera neitt við, góða skapið!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

18.1.06

Verðum við ekki að hittast???

hæ ég er alltaf að reyna að commenta en kann það greinilega ekki það kemur allavega ekki inn það sem ég er búin að skrifa :( kannski að einhver geti kennt mér það


en ég held að við verðum að hittast ákveða hvað maður á að koma með eða hvort einhver ætli að versla og raða í bíla er það ekki mér finnst ólíklekt að ég fái bílinn en ef það eru vandræði þá er allt hægt hvað segið þið eigum við að hittast vill ekki einhver bjóða okkur í heimsókn??

ég vona að þú sért komin inn á svæðið þitt Ragga mín og drífir þig með verkefnið svo þú komist sem fyrst
ok bæ Björk

14.1.06

Bústaður

Hæ!
Allt fínt að frétta hér. Ég hlakka rosalega til að fara í sumarbústaðinn, verðum þar eftir tvær vikur jehh!! Ætlum við eitthað að hittast og plana eða vera bara í netsambandi?
Kv Inga

11.1.06

úff var þetta hjá þér Barbie

hæ hæ
Eitthvað finnst mér það líklegt að það hafi verið nágranni þinn sem kveikti í hjá sér, ert þú ekki farin að sjá fyrir þér einbýlishús í hillingum, svo þú þurfir ekki að lifa með svona hlutum.
kv.
doppa

8.1.06

að setja inn myndir


Ragga mín til að setja inn myndir ferðu inn eins og venjulega til að skrifa. Fyrir ofan kassann sem við skrifum í er rönd með ýmsum táknum varðandi letur og annað slíkt næst lengst til hægri er mynd, hægra megin er strokleður og vinstra megin við er ABC með V fyrir neðan. Ef þú ýtir á myndina opnast ný síða, þar finnur þú myndina með Browse og ákveður hvar hún á að vera og hve stór og ýtir á upload picture. Þá ætti þetta að koma, setti inn sjálfsmynd svona í gríni hehe.

6.1.06

Bryndís sjónvarpsstjarna

Hæ og takk fyrir síðast, ég kýkti á viðtalið um leið og ég kom heim (á meðan ég tannburstaði mig hehe). Mikið stóðst þú þig vel Bryndís mín og það var rétt þetta var sko flott förðun sem þú fékkst þarna. Ármann var heldur ílla staddur þarna á milli þín og Valda, ég held að hann hafi verið hræddur við þig.
Ég setti inn beinan link á viðtalið fyrir þær sem misstu af því, klikkið á fyrirsögnina og sjáið Bryndísi brillera.

5.1.06

her eru fleiri myndir


Posted by Picasa

Afmælismyndir

Ég fattaði allt í einu að ég tók myndir í afmælinu hennar Guðrúnar og hér er eitt dæmi hehe. Posted by Picasa

2.1.06

Saumó

Gleðilegt ár og takk fyrir gamla
ég er að spá í saumó á fimmtudaginn hvernig lýst ykkur á það ??
Ragga frábært ég mæli með því að þú drýfi þig í skóla það er örugglega bara gaman
kv Björk

27.12.05

Gleðileg jól

Gleðileg jól og takk fyrir kortin.
Ég er búin að hafa það rosalega fínt, búin að liggja í algjörri leti, borða, lesa og gera hreinlega ekki neitt. Vona að við heyrumst eða hittumst fljótlega.
Jólakveðjur
Inga María

26.12.05

Gleðileg jól elskurnar!

Sælar stúlkur
Ekki er nú mikið líf hér inni, ég vona að þið hafið allar haft það gott yfir jólin og notið hátíðar ljóss og friðar.
Vonast til að heyra frá ykkur fljótlega.
Doppa

13.12.05

Pac man

Hver setti þessa linka hérna inn, varst það þú Inga, þetta er alveg að fara með mig! Ég var aldrei í Pac man á sínum tíma en nú er ég fallinn í pac man æði. Ég er kannski að ýkja en ég er búin að eyða allt of miklum tíma í þetta. Er bara orðin ansi góð á stuttum tíma hehe, náði 9700 stigum. Er alltaf að reyna að slá þessu við og fá 10 þúsund stig en næ því ekki.
Ég hef aldrei verið mikið í tölvuleikjum almennt, nema kannski kapal eða hvað heitir það nú aftur með fallandi kubbunum, já Tetris, allavega hef ég stundum dottið í einföldu leikina.
kv.
pac man doppa.
p.s. ég leit við í góða hirðinum um daginn og rakst þar á Pictionary á 200 kall, greip það náttúrulega með, en komst svo að því að það er á ensku, svo það er kannski ekki hver sem er sem við spila við mig he he.

3.12.05

eru allir að drukkna í aðventunni ?

hæ hæ ég er sú eina sem skrifar eitthvað hér.
Hvernig var saumó hjá Ástu, mættu margar?
Voru einhverjar djúsí kjaftasögur?
Hvenær er næsti saumó?
Vonandi missi ég ekki af honum líka

30.11.05

Í tilefni jólaundirbúningsins

Ég var að spjalla við kunningjakonu mína um daginn um jólagjafastressið og þá kom fram sú hugmynd að endurvinna gjafir. Þ.e.a.s. að nýta eigin gjafir sem henta manni sjálfum ekki endilega, í gjafir handa öðrum. Stundum hentar það ágætlega þegar ættingjar þekkja mann kannski ekki næginlega til að vita hvernig smekkurinn er og annar ættingi hefur kannski þann smekk sem aðrir halda að maður hafi sjálfur. En það verður að fara varlega og fólkið má ekki þekkjast of vel svo ekki komist upp um mann. Frétti ég af konu sem vanalega sendi tengdamömmu gjöfina sem mágkonan sendi henni og öfugt. Mágkonan og tengdamamman töluðust hvort eð er ekki við. Eitt árið var hún hins vegar að flýta sér og hafði pakkað inn gjöfunum á nýtt og víxlaði þeim óvart. Þannig að dömurnar fengu aftur það sem þær höfðu gefið henni. Sem sagt það er sælla að gefa en þiggja he he.

24.11.05

Smá hugmynd

Ég var að spá í að við þyrftum að taka Guðrúnu í kennslustund í blogginu, koma henni aftur inn hérna. Og hugsaði ég líka út í það að við þyrftum að finna út úr því hvað veldur kínverskunni hjá Ástu! Niðurstaða þessara pælinga var að líklegast væri best að stofna nýja síðu, svona msn my spaces, eins og Inga er með. Þar er auðveldara að setja inn myndir og ýmsir aðrir fítusar eru þarna til að gera þetta auðveldara, svo var Ásta einhverntímann að tala um að við þyrftum að kenna henni á msn, sem sagt msn gengur á mac þannig að við leysum kínverskuna líka?

er ég bara ein hérna eða hvað?

Ég veit að hvorki Ragga né Sirrý eru á landinu, þær eru farnar að skemmta sér í Köben með Dóra. Líklega er Inga að drukkna í skólanum, Guðrún kemur aldrei hérna inn, Ásta er í vandræðum með að komast inn á bloggerinn því hún fær síðuna bara á kínversku. Þá eru bara barbie og björk eftir, hvað segið þið stelpur? Nú ætti Ásta bráðum að fara að halda sinn saumó!!, þarf kannski að minna hana á það?
kv.
Auður

21.11.05

í tilefni tveggja undanfarinna helga ;0)


Partítröll

Þú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.

Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5% líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó. Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur þáttur.

Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu.

Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega er.

Hvaða tröll ert þú?

15.11.05

Kalt

Mikið rosalega er kalt úti í dag. Mér finnst meira gaman að svona kulda ef það er raunverulegur snjór úti líka. Þá væri hægt að fara út að ganga í snjónum.

14.11.05

takk fyrir komuna

Já það varð lítið úr verki í gær verð ég að viðurkenna, maður er ekki eins fljótur að ná sér eins og á yngri árum. Ég fann undarlegan marblett á upphandleggnum og man ekki til þess að hafa rekið mig í. Hmmm
Ég hitti Dóra áðan hann hló bara þegar ég spurðist fyrir um líðan Sirrýar. Vonandi finnur hann pössun og kemst á föstudaginn til Guðrúnar. Ég steingleymdi að taka myndir, mér skilst að einhver hafi tekið myndir af einhverjum undarlegum stellingum á meðan ég var á baðinu eða í eldhúsinu. Endilega sendið mér myndir ef þið tókuð einhverjar.
Hlakka til að sjá ykkur næst
kv.
Doppa

13.11.05

Takk fyrir mig

Kærar þakkir fyrir mig Auður.
Ég skemmti mér rosalega vel í gær og ég vona að þú hafir gert það líka. Maður er svona pínu dofinn í dag en það er alveg þess virði. Sjáumst.
Kveðja,
Inga María

11.11.05

party party

Nei Inga mín
Síðan dugar ekki til, ég hringdi svo í hinar og staðan er sú að
Þú, Björk, Ragga, Guðrún og Sirrý koma, Ásta kemst ekki og Bryndís kannski og þá seint.
Annars eru nú líka fleiri því þetta er ekki bara Saumó heldur er þetta afmælisdjamm. En þó eingöngu kellingar. Ef þið hafið einhverjar óskir varðandi tónlist, þá takið hana bara með.
kv.
ein í stuði

PARTÝ

Hæ
Ég er sko komin í djammgírinn, verður ekki örugglega PARTY???? Klukkan hvað eiga svo herlegheitin að byrja ca. Hlakka til að hitta ykkur í þessum gír - langt síðan við höfum dottið almennilega í það saman!!!

Það eru engin almennileg viðbrögð við partýinu á þessari bloggsíðu ;( hefurðu eitthvað heyrt í hinum skvísunum? Ég hélt að við værum svoddan partyanimal í þessum saumaklúbbi ;) en við verðum a.m.k. fjórar og það verður sko rosa stuð hjá okkur, ekki satt
Stuðkveðjur,
Inga

9.11.05

PARTY

Ég óttaðist að það gæti farið svo að ekkert yrði úr þessu þar sem ég varð slöpp í gær, hélt ég væri að fá flensu. Núna er ég nokkuð viss um að þetta er ekki flensa bara helv. nefkvef með ennis- og kinnholubólgum sem ég er nokkuð viss um að ég þoli nú. Ég ætla að hafa teiti á laugardag sama hvað !!!
kv.
Auður

7.11.05

Afmæli

hæ hæ
ég er að hugsa um að halda Partý á laugardaginn næsta því ég á afmæli og þá verður maður að gera eitthvað skemmtilegt, hvað segið þið, eru þið til í Kellingapartý??
kv.
Auður

6.11.05

Eitthvað að frétta stelpur?

Sælar stelpur!

Hvað er að frétta? Hvernig var í bústaðinum Ragga og hvernig var úti hjá þér Auður? Ég trúi ekki öðru en það hafi verið rosa gaman hjá ykkur báðum. Ég sit núna yfir tölvunni og er að reyna að vinna í enn einu verkefninu mínu og er aðeins að eyða tímanum í eitthvað annað ;) Þessi törn hjá mér verður væntanlega búin nk. föstudag, jibbíí - get ekki beðið. Hlakka til að heyra frá ykkur stelpur. Vona að Ásta hafi séð að hún á saumó næst annars verðum við bara að meila á skvísuna.
Kv. Inga

19.10.05

Ég var búin að sjá þetta

Ég var búin að sjá þetta áður Inga, ég var á báðum áttum hvort ég ætti að hlæja eða gráta.
Dæmi hver fyrir sig, þetta skýrir sig sjálft þó að ekki kunni maður tungumálið, það er það merkilega við þetta video. En ég veit ekki hvort að um einelti var að ræða, ég skildi sem svo að um þátt um læknamistök hafi verið að ræða.

Boemerang

Stelpur þið verðið að kíkja á þetta. Þetta er bæði það fyndnasta og það allra, ALLRA VANDRÆÐALEGASTA sem ég hef séð!

Þetta er myndbrot úr "hvar eru þeir núna" þætti, svona belgískur Sirrý/Oprah þáttur. Þáttastjórnandinn er að taka viðtal við mann sem hefur verið lagður í einelti frá því hann var lítill og flestir í salnum hafa við sama vandamál að stríða. Þáttastjórnandinn var rekinn eftir þáttinn því hann þótti ekki taka málefnið mjög alvarlega!!!

saumó á laugardagskvöld

hæ hæ
Þá er það loksins komið, ég get haldið saumó á laugardagskvöld. Það er eina kvöldið sem ég get það það sem eftir lifir mánaðar (nema í kvöld en það er of stuttur fyrirvari).
Allavega helmingur getur mætt, ein kemst ekki og er ekki búin að heyra í þremur.
ss. sjáumst á laugardagskv.

17.10.05

Október saumó II

Jæja varðandi það hvenær ég get haldið saumó, ég stakk upp á föstudag en ef þið hafið kýkt á kommentin þá eru Inga og Barbie búnar að minna mig á Idolið, s.s. föstudagur er ekki góður.
Þá stakk ég upp á fimmtudag, en nú var ég að fatta að ég er boðin í boð hjá bláa lóninu á fimmtudag. Hvernig litist ykkur á laugardags eða sunnudagskvöld?

Sælar aftur

Hæ aftur!

Loksins er ég aftur komin með aðgang að blogginu eftir langt hlé. Takk Inga mín fyrir að redda mér.

Sorrý stelpur að ég hélt ekki saumó í september, hafði því miður bara alls ekki hugmynd að það væri minn mánuður. Eflaust hefur einhver gaukað þeim upplýsingum að mér en þær hafa þá bara ráfað eitthvað í burtu.

Á ég ekki bara að halda saumó fljótlega? Ég er alveg til í að skella einum svona inn á milli ef þið eruð til í að kíkja á Skagann.

Bæjó,
Sirrý

13.10.05

októbersaumó??

Sælar Stúlkur
Ég ætla að gera óformlega könnun á því hvaða dagur hentar fyrir saumó, en samt er ég ekki viss um að það sé góð hugmynd því það eru nokkrar sem ekki lesa þessa síðu held ég.
Alla vegana ætlaði ég að hafa hann í blálok mánaðarins en það mun ekki ganga upp hjá mér, svo var Inga að tala um að sumir ætluðu í sumarbústað í haustfríinu. Þannig að hann verður líklegast að vera nær "Júní" saumó en ég ætlaði.
Saumóinn verður að vera í næstu viku, svo ég var að spá í föstudaginn í næstu viku þann 21, hvernig er það?
Ég verð í ferð 23 - 27 og því ekki í bænum, svo er ég að reyna að komast í frí til þýskalands um mánaðarmótin, svo ég veit ekki hvort ég sé á landinu þarna um 28-31.
Hvaða dagur í næstu viku er hentugastur?
kv.
Doppa

12.10.05

Takk fyrir í gær

Hæ og takk fyrir í gærkvöldi
Mér fannst rosa gaman að fá ykkur. Það var fámennt en mjög fínt - því meiri afgangar handa mér til að jappla á með lærdómnum :)

Sirrý er komin með nýtt e-mail: sirryhelga@simnet.is

Úps. gleymdi að segja ykkur frá Guðrúnu að hún verður með Volare kynningu á föstudagskvöldið n.k., veit ekki klukkan hvað, þið hafið bara samband við hana ef þið hafið áhuga. Þá er það komið til skila :)

7.10.05

Mannanöfn

ég rakst á eftirfarandi pistil á einhverju bloggi og fannst afskaplega fyndið.

"Nú er til dæmis hægt að setja saman fullt af íþróttastjörnum: Ríó Ferdinand, Edvin Móses, Martin Max, og Patrik Bergur, eða tónlistarhetjur á borði við Lars Ulrich, Þorra Amos og Marvin Geir. Ekki má gleyma kvikmyndastjörnum svo sem Richard Príor og Alexíus Baldwin. Fyrir matarspekinga vil ég benda á Parmes Andra, og drykkjumenn, Per Nóa. Allt nöfn úr mannanafnaskrá. Eitt af nýju nöfnunum er Elvin en það hlýtur að vera prentvilla og á örugglega að vera Elvis, kónginum til heiðurs sjötugum.Atlas Tindur og Sigur Bogi eru nýjungar, en möguleikarnir eru endalausir og ekki lengur bundnir við Leif Arnar og Brand Ara. Ég nefni nokkur nöfn til hagræðis fyrir nýorðna og verðandi foreldra sveinbarna: Ögri Fólki og Þjálfi Víðar (hefði passað á Gauja Þórðar), Mars Ari (fyrir dansáhugamenn), Ölver Loki (fyrir bindindispostula), Beitir Vopni og Kaldi Karl (fyrir handrukkara), Hafnar Brimi (fyrir sjómenn), Haki Skafti (fyrir grafara), Dan Kort (fyrir verslunarmenn), Hjarnar Viðar og Saxi Lýtingur (fyrir lækna), Skefill Skeggi (fyrir rakara), Gerðar Dómald (fyrir samningamenn), Ómi Hreinn (fyrir tónlistarmenn), Hraunar Bolli (fyrir jarðfræðinga), Búi Engill (fyrir presta), Skíði Skúta (fyrir útivistarfólk), Neptúnus Geisli (fyrir stjörnufræðinga), Finn Ástvin (fyrir björgunarsveitarmenn), Stormur Austar (fyrir veðurfræðinga) Gutti Heimir (fyrir aðdáendur Stefáns Jónssonar) og loks Viðar Brestir (fyrir smiði). Löggild drengjanöfn alltsaman.Oft hef ég varið stúlkunafnið Kría sem sumum finnst fáránlegt en mér alls ekki. Það er samt hægt að leika sér með þetta og búa til samsetningar að gamni sínu, en ekki rakst ég á kunnugleg nöfn úr erlendum íþróttum, menningu og listum við lauslega athugun á stúlknanöfnunum.Menn þekkja núorðið fjölda dæma um skemmtilegar samsetningar, Líf Vera, Björt Nótt og þess háttar og því e.t.v. í bakkafullan læk að bera. En stundum virðist eins og heildarhljómur og merking samsetningarinnar gleymist: t.d. Von Dara, Agna Rögn, eða Odda Tala (fyrir stærðfræðinga), Mýra Borg, Brák Arey eða Snorra Þula (fyrir Borgfirðinga og Mýramenn), Vanda Málfríður (fyrir sálfræðinga), Munda Boga (fyrir veiðimenn), Birta Mörk (fyrir íþróttafréttamenn), Tea Sía, Sólbrún Bera, Karla Þrá, Gógó Mey, Sölva Tína, Selja Sigdóra, Rán Dýrborg, Ylja Rún, Njóla Þúfa. Nú er nóg komið en allt beint úr skránni."

6.10.05

Október saumó

Sælar stúlkur
Nú verðum við að fara að herða á okkur ef við viljum halda alla klúbbana sem eru eftir á árinu. Ég á október, en nú heldur Inga Júní í næstu viku svo ég held minn frekar undir lok mánaðar til að það sé smá tími á milli. Ég þarf að finna út úr því hvenær besti tíminn er en geri ráð fyrir síðustu vikunni í okt.
sjáumst á þriðjudag hjá Ingu
kv.
doppa
p.s. flott viðbót Inga einmitt það sem við þurftum.

5.10.05

Upplyfting

Hæ
Ég tók mig aðeins til og fór að leika mér aðeins með bloggsíðuna okkar, bjó til lista yfir hvenær hver á að halda saumó. Vona að þetta veiti okkur smá aðhald og við gleymum ekki hvenær við eigum að halda saumó. Síðan var ég smá að leika mér, vona að ykkur líki ; )
Sjáumst vonandi á þriðjudaginn.

4.10.05

saumó næsta þriðjudag

hæ hæ
ég verð að vinna á Hagstofunni næsta þriðjudag, en ég myndi þá koma eftir 10, ef ég má koma svo seint.
Ég er alfarið komin á gamla bílinn henna mömmu, því hún var að kaupa sér nýjann.
kv.
doppa

Saumó - klukk

Hæ
Loksins ætla ég að standa við að skrifa upp einhverjar 5 staðreyndir um mig. Ég ætlaði reyndar að gera það á föstudaginn en þá voru einhverjar viðgerðir á blogger.is þannig ekki tókst það þá svo einhvernveginn dróst þetta, skil ekkert í þessu ;)

1. Ég fór á tvenna tónleika í sumar, U2 og Duran Duran og er rosalega ánægð með að hafa drifið mig :)
2. Ég er algjör bruðlari, er algjör snillingur að eyða í ekki neitt!
3. Ég hlakka alltaf til húsmæðraorlofsins með saumó því ég elska að borða, drekka, slappa af í góðra vina hópi :)
4. Ég fékk hestadellu þegar ég var smápæja og hef hana ennþá. Ég á þó ekki hest en ætla að bæta úr því eftir nokkur ár því þá er stefnt á að kaupa hest :)
5. Ég er með algjöra kóngulóafóbíu, finnst þær ógeðslegar.

Jæja þetta hafðist en ekki er nú hugmyndaflugið öflugt. Nú skora ég á ykkur hinar að koma með nokkrar staðreyndir um ykkur stelpur, þið hafið nú eflaust meira hugmyndaflug en ég. Ég set á heimasíðuna mína hverja ég klukkaði :)

*** Saumó ***
Ég var að spá í þetta með saumó, hvernig líst ykkur á saumó næsta þriðjudagskvöld hjá mér? Ég verð eiginlega bara ákveða einhvern dag því annars dreg ég þetta örugglega fram á næsta ár, nei djók. Endilega látið mig vita, ég sendi svo SMS fljótlega ef ég fæ engin viðbrögð ;)
Er orðin mjög spennt að sjá nýju klippingarnar, kannski fleiri en Doppa og Barbie hafi átt eitthvað við hárið á sér.
Kv. Inga

2.10.05

message to barbie

hæ hæ
Það er barasta engin hreyfing hérna á þessari síðu hvað svo sem maður gerir til að hrista upp í ykkur. Nú jæja það er alltaf skemmtilegast að hittast, og nú er september liðinn og enginn saumó eða hvað ??
Barbie las á blogginu mínu um klippinguna mína og er svo forvitin að hún vill sjá mynd. Núna neita ég bara alfarið að setja mynd inn, ég verð að halda spennunni. (þ.e.a.s. spenning ekki hárspennu he he) Svo að við hittumst kannski fljótlega, ef einhver er að drepast úr spennu eða forvitni. Ég skipti nú ekki svo oft um hárstíl eða hvað.
Hvað segði þið um það að fara að hittast hver var næst með saumó, Sirrý eða hvað allavega er ég farin að sakna þín alveg ægilega Sirrý mín mér finnst eins og það sé komið heilt ár síðan ég sá þig síðast.
kv.
Doppa

21.9.05

þetta er til þess að fá ykkur til að skrifa eitthvað KLUKK

Klukk klukk
Jæja Linda klukkaði mig svo nú verð ég að svara með einhverjum 5 staðreyndum um sjálfa mig.

1. Ég á erfitt með að tala um sjálfa mig, vissi hreinlega ekki hvað í ósköpunum ég ætti að skrifa niður hér, er laumu feimnispúki.
2. Það þurfti 6 ár til að rétta tennurnar mínar, ég var svo óheppin að þær skekktust aftur svo að ég fékk teina á ný ári eftir að ég losnaði við þá, og þurfti því að nota góm til tvítugs.
3. Það var fleira í mínu lífi sem ég þurfti að ganga í gegnum tvisvar svo sem eins og bílprófið, ég féll á hringtorginu á gatnamótum Snorrabrautar/Hringbrautar. Mér til mikils léttis var þetta tákn niðurlægingar minnar fjarlægt stuttu seinna.
4. Fyrsti bíllinn minn var Mazda 363 árgerð ?78, við kölluðum hann Fredda fretara vegna aumingjalegrar flautu. Hann var gjöf frá systur minni og mági stuttu eftir bílpróf. Við upplifðum nokkur ævintýri saman svo sem eins og aukaflautur sem byrjuðu að flauta um miðjar nætur á rúntinum eða það að bensíntankurinn féll undan bílnum á Miklubrautinni á háannatíma.
5. Ég hef ekki átt bíl síðan 1989.

Ég get ekki annað en klukkað saumaklúbbinn og þar með talið Ingu Maríu.
Sem þýðir að nú megið þið rugla einhverjum 5 staðreyndum um ykkur hér á síðuna, Inga bíður betri tíma en hvað með ykkur hinar?

20.9.05

Klukk!!!

Klukk hvað!

Ég verð að fá að salta þetta kannski fram að helgi, ég er svo busy :) akkúrat núna en ég lofa að gera þetta ;)

P.s. Sirrý þú átt septembersaumó :) svo reyni ég að lauma mínum júnísaumó fljótlega að.

19.9.05

Klukk

Sælar stúlkur
Ef þið kýkjið á bloggsíðuna mína þá sjáið þið að ég er búin að klukka ykkur allar. Það er að segja þið eigið að skrifa 5 staðreyndir um sjálfar ykkur á bloggið. Og svo klukka einhvern annan.
kv.
Auður

14.9.05

Takk fyrir síðast

Hæ. Takk fyrir síðast. Ég sem átti hreinlega ekki vona á að neinn myndi koma þar sem ég hafði ekki heyrt frá neinum þá kom mér þetta mjög skemmtilega á óvart hvað margar komu. Mér fannst rosalega gaman að sjá ykkur. Það lá við að ég væri hálf þunn daginn eftir enda er ég ekki í mikilli þjálfun þó svo ég hafi ekki innbirgt mikið að mínu mati, hef nú stundum innbirgt mun meira magn af öli (eins og einn kassa eða svo ;) Ég skulda þó enn Júní saumó og kannski reyni ég að hafa hann í lok september eða byrjun október.
Eyþór náði að veiða einn fisk :) og þetta var rosalega gaman hjá þeim, kannski eitthvað álíka og húsmæðraorlofið okkar, ekki er það nú leiðinlegt. Ég hlakka mikið til næstu ferðar hjá okkur og ætli ég reyni ekki að toppa sjálfa mig í næstu ferð ;) tek kannski bara tvo kassa með mér næst.
Heyrumst vonandi fljótlega.
Kv. Inga

12.9.05

Doppa kveður sér hljóðs

Sælar stúlkur
Ég datt niður á þetta gamla viðurnefni mitt og datt í hug að hafa Það sem undirskrift hérna, í stíl við Barbie he he.
bæ bæ

takk fyrir síðast

Ég er nú bara að rita nokkur orð því við skrifum svo lítið hérna.
Takk fyrir síðast hjá Ingu á föstudagskvöld, Ragga, Bryndís, Ásta, Guðrún og Inga.
Ég geri ráð fyrir að restin hafi verið upptekin, en þetta var akkúrat það sem ég þurfti þetta kvöld, komast aðeins út og kjafta. Hangi alltof mikið ein heima yfir sjónvarpinu. Ég þarf að stunda einhverkonar félagslíf. Vonandi hefur veiðiferðin haft einhvern árangur hjá Eyþóri, fékkstu kannski eitthvað í soðið Inga.
Bið að heilsa ykkur
bless
Auður

2.9.05

ekkert djamm ha

Ég er´víst að fara í Þórsmörk á sunnudag svo ég fer nú ekkert að djamma á morgun. Það virðist heldur engin önnur hafa tíma hvort eð er.
sjáum bara til hvort við finnum tíma einhverntímann.
kv.
Auður

1.9.05

Hittingur

Ég er upptekin á föstudagskvöldið og langar mest að hafa það rólegt með Perlu og Ólöfu á laugardagskvöldið en helgina á eftir eruð þið alveg guðvelkomnar að kíkja í heimsókn um kvöldið og jafnvel að fá sér aðeins í glas en ég fer ekkert út því Eyþór verður ekki heima næstu eða þarnæstu helgi. Ég væri frekar til í föstudagskvöldið en skiptir þó ekki öllu máli hvort kvöldið það verður þ.e. ef einhverjir komast :)
Kv. Inga

30.8.05

gaman að sjá ykkur

hæ hæ
Það var svakalega gaman að sjá ykkur næstum allar í gær. Við vorum nú að spjalla um hvort við ættum að fara á djammið á föstudagskvöld. Ég er búin að ráða mig í ferð á föstudag og laugardag, en er í fríi á sunnudag svo ég get nú skroppið eitthvað á laugardagskvöldið. Hvernig er staðan hjá ykkur núna?
kv.
Auður

22.8.05

æj æj

Hvað er að heyra, elsku Ásta það er hræðilegt að þú skyldir ekki einu sinni getað séð manninn þinn á sviði, þegar þú þarft að búa við allar þessar æfiningar. Ég skil ósköp vel að þú skyldir fara í svona vont skap. MSN er ósköp einfalt í notkun, en ég veit ekki hvernig það er með MAC!!

Menningarnótt

Ég vona að þið hafið allar skemmt ykkur vel á menningarnótt, ég fór á endanum ekki neitt. Heyrði ekkert frá Björk. Og svo þurfti ég á endanum að vinna alla helgina hvort eð er, svo ég hélt mig bara heima. Fékk samt flugeldasýningu heima hjá mér um nóttina. Ég hrökk upp af værum svefni við það að sprengingar og læti áttu sér stað fyrir framan gluggann minn um miðja nótt. Mér brá það mikið að hjartað var alveg uppi í hálsi og ætlaði ég aldrei að geta sofnað aftur. Það þarf bara eina flugeldasýningu til að kveikja í brennuvargnum í mörgum íslendingnum sem þá fattar að hann á flugelda inni í geymslu frá síðustu áramótum...............