18.8.06

komin heim

hæ hæ
Ég er komin heim eftir góða og stórskemmtilega ferð til Króatíu. Þ.e.a.s þrátt fyrir mikil óþægindi vegna kinnholu og eyrnabólgu í lendingu. Ég verð ekkert í bænum á virkum degi á næstunni, ég á ekkert frí. En ég kem um helgar, ég kom norður í gær og ætla nú samt að kýkja á Menningarnótt á morgun. Ég ætla að vera á Skagaströnd á Kántrídögum í kvöld og keyra svo suður í fyrramálið. Ég kemst því ekki á Enjókynningu né kæmist ég á saumaklúbb á virku kvöldi. Svo núna þegar haustar verð ég að hætta að fara þetta um hverja helgi, það er svo dýrt að vera alltaf á þessari keyrslu og ég verð líka að reyna að koma mér betur inn í samfélagið hér.

Engin ummæli: