31.5.05

engin frumleg nöfn hjá mér

það eru ekki eins skemmtileg nöfn sem koma út hjá mér ef ég geri þetta.
Ásta + Sigurður = Ástsigur/ Sigurást nú ef við reynum seinni nöfnin þá er það
Nína + Guðmundur = Guðnína / Nínmundur
Ég get samt ekki hreykt mér af því að eiga þennan brandara þar sem ég bara stal honum af netinu.
kv.
Auður

30.5.05

Frábært Auður

Gaman af þessu Auður mín
ég skýri þá næsta barn Angrún eða Guðtýr
eftir mömmu og pabba
kv Björk

Þurfið þið nokkuð að skýra??

Afkvæmið lítur dagsins ljós og foreldrar, vinir og vandamenn eru himinlifandi, það er að segja svona í flestum tilfellum. En tíminnlíður og að því kemur að gefa þarf barninu nafn, en þá vandast nú málið.Móðirin vill láta barnið heita t.d. Guðmund, en faðirinn Jón. Ömmur og afar ætlast til að látið verða heitið eftir sér og foreldrarnir verða andvaka þegar líður að því að barnið skuli skírt. Sem betur fer er mjög hagkvæm lausn á þessum vanda, en þar sem tiltölulega fáir foreldrar hafa komið auga á hana vil ég nú gera þessu máli dálítið nánari skil. Lausnin er sú að gera eitt nafn úr tveim eða fleiri nöfnum afa eða ömmu, eða þeirra forfeðra og ættingja sem bráðnauðsynlegt er að láta heita eftir.Ef barnið er drengur er hagkvæmt að láta hann heita eftir báðum öfunum.Svo heppilega vill til að meiri hluti íslenskra nafna eru samsett úr tveimur hlutum, forskeyti og venjulegu nafni svo sem Ás-geir, Þor-kell, Guð-finnur o.s.frv. Í ljós kemur að þetta er mjög hreyfanlegt og má fá margar útgáfur eins og t.d. Guð-geir, Ás-kell, Þor-finnur o.s.frv.Og nú skal taka nokkur dæmi:Afi 1 heitir Sturlaugur Afi 2 heitir Starkaður barnið er skírt Sturlaður
Skammkell ---------------- Eilífur -------------------Skammlífur
Ísleifur --------------------- Sigurbjörn --------------Ísbjörn
Þjóðólfur ------------------ Konráð ----------------- Þjóðráð
Andrés-------------------- Eiríkur ------------------ Andríkur
Albert--------------------- Ársæll ------------------ Alsæll
Viðar---------------------- Jörundur --------------- Viðundur
Hringur------------------ Guttormur ---------------Hringormur
Stórólfur---------------- Friðþjófur ----------------Stórþjófur

Nú, svo eru ýmsir möguleikar að slá ömmu- og afanöfnum saman:
Amman heitir Kolfinna, afinn heitir Dagbjartur, barnið er skírt Kolbjartur
Vilborg ---------------- Þórhallur --------------Vilhallur
Málfríður------------- Sigfús -------------------Málfús
Afinn heitir Hákon, amman heitir Margrét ----------------- Hágrét
Haraldur ------------------- Monika -----------------Harmonika
Kormákur ------------------- Albertína --------------Kortína

29.5.05

Til Hamingju Sirrý

Til hamingju með hann Dóra þinn Sirrý mín þetta er engin smá árangur hjá kallinum frábært :)
alltaf gaman að heyra hvað við eigum gáfaða vini
bið að heilsa Dóra frábært

Sumar og sól

Hæ hæ.

Þetta eru allt frábærar hugmyndir hjá Auði og ég er sko meira en til í að gera eitthvað af þessu í sumar. Ég var hinsvegar fyrst að kíkja á síðuna okkar í dag og ég hefði hvort er ekki getað þetta um helgina. Við fórum í Selvoginn í gær og erum tiltölulega nýkomin heim núna. Við slepptum Gerplusýningunni þetta árið þar sem stelpunum langaði mikið frekar á vorhátíð Kársnesskóla og Vesturbæjar Kópavogs. Það var heldur ekkert sérstakt sem Perla átti að gera - hennar hópur átti að sýna einhver stökk á dýni en enginn sérstakur dans þetta árið þannig ég ákvað að það hlyti að vera í lagi, hún hefur líka alltaf mætt sl. ár.

Ég byrjaði síðasta mánudag að vinna og það er búið að vera svo mikil sól að ég veit ekki hversu mikið andlitið mitt þolið í viðbót, það verður bara sólarvörn nr 25 notuð það sem eftir er og Aloe Vera gel eftir á. Við erum búin að vera að reita arfa og moka fyrir görðunum og svo byrjar gróðursetningin á fimmtudaginn og ég sé fram á mjög fínt sumar :) Ef þið eigið leið framhjá skólagörðunum við Urðabraut (fyrir neðan Rútstún) þá megið þið endilega kíkja við, það verður bara gaman að sjá ykkur :) (samt ekki milli kl. 12-13).
Kær kveðja,
Inga

22.5.05

Heyyj girrrls

Sælar stúlkur
Er komin einhver niðurstaða í þetta mál með ferðalagið og fimleikana og allt.
Ég skil á því sem undan er gengið að það verði að falla frá ferðinni, en hvað segið þið um að gera eitthvað í bænum í staðinn?? Hvenær er sýningin? Getum við gert eitthvað á föstudagskvöldi eða laugardag eða sunnudag. Það þarf ekki að vera mikil fyrirhöfn að koma einhverju saman. T.d. gætum við hist heima hjá einhverjum okkar, til að borða og spila spil. Við gætum haft það þannig að hver og einn komi með einn rétt og eina rauða eða svo. Svo náttúrulega öll þau spil sem hægt er að finna.
Annað sem væri hægt væri sunnudagsbrunch hjá einhverjum, þar sem hver og einn kemur með eitthvað og á meðan annað (t.d. kaffi, egg og beikon) er eldað á staðnum.
Svo væri hægt að fara eitthvað út að borða um hvöld eða hádegi eftir því sem hentar.
Nú við gætum tengt þetta líka við sundferð í næstu laug, eða farið í bowling. Nú eða við brunum á Stokkseyri eina kvöldstund í humarveislu? Hvað getum við gert í staðinn fyrir að fara vestur.

Med hilsen fra Sverige.
Auður

19.5.05

Skuggi

Vá hvað Skuggi er sætur
kv Björk

18.5.05

Skuggi


Skuggi, er hann ekki flottur? Posted by Hello

Við vorum að fá okkur labrador hvolp. Hann er 9 vikna og er algjört krútt eins og sést á myndinni. Allaveganna finnst mér það :)
Er búin að setja inn nokkrar myndir, misgóðar en ég fékk lánaða vélina hennar mömmu og það sést mikill gæðamunur á þeim þannig það verður keypt ný myndavél mjög fljótlega.

16.5.05

Þar fór í verra

Nú líst mér ekki á blikuna, það er eins og okkur sé ekki ætlað að fara í þetta ferðalag. Hvað segið þið um að við gerðum þá eitthvað skemmtilegt í bænum í staðinn. Elda saman og spila eða eitthvað þessháttar.
kv.
Auður

1.5.05

Kemst ekki

hæ hæ ég kemst því miður ekki með ykkur ég var að biðja um launahækkun og hún bað mig að vinna þessa helgi vegna þess að hún er að fara út þá og ég gat ekki sagt nei vegna þess að ég vil fá launahækkun þið skilið kanski!!
jæja sjáumst seinna
kv Björk