28.7.04

Afmæliskveðja

Til hamingju með börnin Ragga og Bryndís
Kveðja úr Engihjallanum

Saumó í ágúst

Sælar skvísur.
Það er greinilegt að það er sumarfrí í skriftum hjá okkur :)  Ég vona að allir hafi haft það gott í sumar.  Ég er búin að vera að djöflast í vinnunni en nú fer að koma að vinnulokum, vinn bara út júlí.  Þá kemur aftur að próflestrinum :(  fer í 3 próf seinni partinn í ágúst.  Við ætlum svo að skella okkur familian til Danmerkur eftir prófin 26. ágúst - 7. september og hafa það notalegt.  Eyþór fer á mótorhjólamót fyrstu helgina í september á Jótlandi og þar sem ég var ekki alveg til í að sleppa honum einum út þá ákváðum við að skella okkur öll saman og stelpurnar eru að deyja úr spenningi.
Við höfum verið að skella okkur í Selvoginn nokkrar helgar í sumar og hafa það bara fínt.  Ætlum einmitt að skella okkur þangað næstu helgi.  Ef þið eruð ekkert að fara og langar að kíkja á okkur þá er það meira en velkomið :) það verður bara gaman að sjá ykkur. 
******
Ég var hinsvegar að spá í að fara að plana saumaklúbb þar sem ég á að vera með saumó í ágúst.  Var að spá í fimmtudag eða föstudag í næstu viku þ.e. 5. eða 6. ágúst.  Endilega látið mig vita hvor dagurinn er betri, skiptir engu fyrir mig, þ.v. einhver annar dagur í vikunni ef það hentar betur, ég er hinsvegar upptekin á laugardagskvöldið 7. ágúst. 
Kær kveðja,
Inga María

19.7.04

Sól, sumar og bruni

hæhæ
Já Ragga það virðist vera að flestir séu í fríi, ég kom við á Arnarstapa í gær og brann líka.
Ég var að vinna í gær með skipafarþega í Snæfellsneshring. Þú hefur eflaust tekið eftir því að það komu margar rútur í einu í gær. Þar var ég, og á smá göngutúr á Arnarstapa brann ég, það var líklega endurspeglunin af sjónum. Þetta var 5 tíma ferð með túrista og vorum við í 14 tíma á ferðinni til þess. Fram og til baka frá Rvk og bið í Grundarfirði eftir skipinu. Jæja það er 25% álag á sunnudögum, sem sagt ætti að fá ágætt úr þessum degi.
Bið að heilsa kv.
Auður

9.7.04

veikindi

Jæja dúllurnar mínar
Ásta ég vona að drengirnir hafi náð sér, þetta hljómaði ekki vel hjá þeim. Þ.e.a.s hjá Vigni.
Ég er sjálf búin að vera veik í viku, var í hringferð með austurríkismenn og þurfti að halda mér gangandi þrátt fyrir hita.
Ég fékk fúkkalyf hjá lækni í dag, er með bólgur í ennis- og kinnholunum. Aftur, var seinast í Mars. Óþolandi er þetta....
kv.
Auður
p.s. hvenær er saumó?