Sælar skvísur.
Það er greinilegt að það er sumarfrí í skriftum hjá okkur :) Ég vona að allir hafi haft það gott í sumar. Ég er búin að vera að djöflast í vinnunni en nú fer að koma að vinnulokum, vinn bara út júlí. Þá kemur aftur að próflestrinum :( fer í 3 próf seinni partinn í ágúst. Við ætlum svo að skella okkur familian til Danmerkur eftir prófin 26. ágúst - 7. september og hafa það notalegt. Eyþór fer á mótorhjólamót fyrstu helgina í september á Jótlandi og þar sem ég var ekki alveg til í að sleppa honum einum út þá ákváðum við að skella okkur öll saman og stelpurnar eru að deyja úr spenningi.
Við höfum verið að skella okkur í Selvoginn nokkrar helgar í sumar og hafa það bara fínt. Ætlum einmitt að skella okkur þangað næstu helgi. Ef þið eruð ekkert að fara og langar að kíkja á okkur þá er það meira en velkomið :) það verður bara gaman að sjá ykkur.
******
Ég var hinsvegar að spá í að fara að plana saumaklúbb þar sem ég á að vera með saumó í ágúst. Var að spá í fimmtudag eða föstudag í næstu viku þ.e. 5. eða 6. ágúst. Endilega látið mig vita hvor dagurinn er betri, skiptir engu fyrir mig, þ.v. einhver annar dagur í vikunni ef það hentar betur, ég er hinsvegar upptekin á laugardagskvöldið 7. ágúst.
Kær kveðja,
Inga María
Engin ummæli:
Skrifa ummæli