Sælar stúlkur
Nú er árið 2003 senn liðið og 2004 tekur við. Viðburðarríkt ár með 3 nýjum fjölskyldumeðlimum, í takt við ártalið. Vonum nú að lukkan verði fjórföld hjá okkur á næsta ári. Þó ekki eigi ég von á að 4 börn verði til 2004. Ekki þá nema að um fjölbura verði að ræða, hmm nei nei.
Ég óska ykkur hamingjuríkra og slysalausra áramóta og munið hlýfðargleraugun sem og eyrnartappana.
Sjáumst á nýju ári heilar og sælar.
bless
Auður
31.12.03
29.12.03
Oj oj þvílíkt veður. Svona veður hefur ekki verið lengi. Sem betur fer á ég ekkert erindi út fyrr en eftir vinnu. Sem betur fer mundi ég eftir að taka með mér hádegismatinn.
Það er samt ansi kalt hérna inni, þetta hús er ekki vel byggt það er gegnumtrekkur í gegnum það. Maður situr hér í úlpunni til að halda á sér hita.
Hlakka til að fara heim eftir vinnu og sitja undir teppi og með kertaljós og hafa það kósí.
Audur

28.12.03
Jæja ég vona að þið allar hafið notið jólanna. Ég er hálf tuskuleg í dag, enda var djammað föstudag og laugardag. Annað eins hef ég ekki gert lengi. Maður er orðin of gamall fyrir þetta, samt engin þynnka, vel af sér vikið ha?
Nú verð ég líklega að safna kröftum fyrir áramótin. hi hi, ef ég nenni einhverju þá.
Hlakka til að sjá ykkur hvenær sem það verður.
kv.

26.12.03
23.12.03
22.12.03
Svo er Ragga að segja okkur sögu af Auði (sem er auðvitað frábær.. hehe....., hún toppar mig sko alveg örugglega í klaufaskap), en ekkert að minnast á sitt klúður, skamm... skamm.... Ragga mín. Ég gæfi þér ekki leyfi í mína hrærivél nema með tryggingarvíxilinn tilbúinn til taks.
Jæja er í þessum töluðu orðum að hlaða inn myndum á heimasíðu litla stubbs ef þið viljið skoða, rosakrútt auðvitað.
Jólastússkveðjur, Sirrý

20.12.03
Hvað breyttist? (roðn) Ég held að allt sé eins hjá mér, eða kannski er ég bara svona fattlaus eitthvað, gæti sko vel verið.
Jæja stelpur mínar hvernig fannst ykkur Idolið? Eruð þið sátt við úrslitin? Mér fannst Helgi alltaf mjög góður í undanrásunum en því miður ekkert búinn að vera spes í úrslitunum svo hann mátti alveg fara að mínu mati. Get nú ekki annað en verið svolítið pirruð útaf uppljóstrun Önnu um jólasveininn og skóinn :S Þetta mátti sko alveg klippa út og reddingarnar ekki nægilega góðar að mínu mati.
Kv, Sirrý sem trúir enn á jólasveinana... þrátt fyrir ruglið á Stöð 2

19.12.03
18.12.03
Ég sem ætlaði að taka jólaundirbúningnum í rólegheitunum og sleppa frekar að gera hluti en að stressa mig yfir þeim.
Nú er ég að uppgvötva að ég á heilmikið eftir að gera sem verður að gerast. Nú er allt í einu tíminn orðinn takmarkaður og allt of margt sem ég á eftir að gera.
Hvað maður getur verið klikkaður stundum.
Ég þarf sem sagt að fara að kýkja í búðir til að finna þær jólagjafir sem ég keypti ekki í september. Ogg ég nenni ekki í búðir á þeim tíma sem ég hef tíma. Ef þig skiljið hvað ég á við, á háannatíma, þegar það er of mikið af fólki í búðum.
En hvað um það, verð að gera þetta, helst í dag svo ég sé laus.

Jæja krúttin mín hvernig gengur jólaundirbúningurinn hjá ykkur? Eru ekki allir að farast úr stressi núna? Hér er allt í ótrúlega rólegu standi, aldrei þessu vant hef ég nægan tíma fyrir jól og ekkert stress í gangi. Ótrúlegt en satt þá er ég samt ekki búin með meira en vanalega en af fenginni reynslu þá reddast þetta allt og meira en það. Ég er að byrja að hræra í köku núna á eftir og síðan á að klára að skrifa á kortin.
Jólakveðja, Sirrý
Jólakveðja, Sirrý
17.12.03
Skemmtileg mismæli...
Það er ekki hundur í hettunni (það er ekki hundrað í hættunni)
*Það er ljóst hver ríður rækjum hér (það er ljóst hver ræður ríkjum hér)
*Þetta er ekki upp í kött á nesi (...ekki upp í nös á ketti)
* Mér er nú ekkert að landbúnaði...
* Allt fór afsíðis sem gat farið afsíðis...
* Þessi peysa er mjög lauslát...
* Þau eiga þvílíka myllu, lifa eins og greifingjar og leika á als
eggi...
(Geri aðrir betur...)
* Hann sló tvær flugur í sama höfuðið...
* ...þarna hefði ég sko viljað vera dauð fluga á vegg...
* Ég sá svo sætan strák að ég fór alveg fram hjá mér...
* Ég var svo þreyttur að ég henti mér undir rúm...
* Hann sat bara eftir með súrt eplið...
* Og, nú, góðir farþegar, er einmitt fengitími melóna...
* Ég hreinlega vissi ekki í hvorn fótinn ég átti að setjast...
* Þar stóð hundurinn í kúnni... (Þar lá hundurinn grafinn... Þar stóð
hnífurinn í kúnni.)
* Maður fer í bæinn til að sjá sig og sýna aðra...
* Svo handflettir maður rjúpurnar...
* Já, fólk núorðið er svo loðið á milli lappanna...

16.12.03
Auður:
Sælar stúlkur, ég spjallaði um það' við hana Röggu í gær hvort hún hefði tíma í föndurkvöld í kvöld.
Ég hafði hugsað mér að tékka á ykkur öllum með það, en ég get það ekki sjálf í kvöld því mamma var að bjóða mér í mat til að halda upp á afmælið hans Barkar bróður míns.
Svo ég bið að heilsa ykkur í bili.
Ragga mín þér er velkomið að halda þessum aðgangi þar til annað kemur í ljós. Við verðum bara að bæta nöfnunum okkar við svo hægt sé að halda okkur aðskildum he he.

15.12.03
hvað segirðu Auður má ég hafa aðganginn þinn úr því að ég kom mér ekki inn sjálf??? Ég og Bryndís erum að fara að baka sörurnar í kvöld,ég veit satt að segja ekki hvernig þetta endar þvi ég sef frekar lítið þessar næturnar. Ætli það endi ekki með að ég sofi öll jólin??? En ykkur að segja fór ég á ball með Todmobil á laugardagskvöldið og það var bara æði. og eins og Dagrún vinkona mín sagði að það væru aldeilis tíðindi að ég færi út 2 sinnum í sama mánuðinum:) Heyrumst
14.12.03
12.12.03
9.12.03
Já við verðum endilega að koma stelpunum inn, gott að geta spjallað svona saman (ekki eins formlegt og e-mail). Þekki þetta Bryndís, nú er klukkan 01:21 á þessum bæ og ég á fullu í tölvunni - getið ímyndað ykkur hvernig ástandið verður á mér á morgun :(.
Hvernig er það.... er hægt að setja inn myndir og svoleiðis hér?..... er sko alls ekki nægilega dugleg við fiktið.
Kannski maður fari núna að sofa
Kv, Sirrý

8.12.03
hæ hæ
Ég held ég bíði með að senda aftur mail á Ingu og Björk vegna anna í skólanum, við skulum ekki freista þeirra frá próflestri.
Ég býst við að Ragga reyni aftur í dag. Hún er búin að fá annað boð, sér einkaboð.
Ég sendi líka aftur á Ástu í gær hún getur þá kannski verið memm. En er ég með rétt mail hjá Guðrúnu, ég er ekki viss með það!!
Bryndís eða Sirry þið vijið kannski reyna að senda aftur á hana.
Sem sagt, meldið ykkur inn skoðið flipana ofaná og skiptið í kaflann settings, og members. Þá sjáið þið hvað þið getið gert.

Frábært, ég sé það að ég má ekki senda boð á 3 í einu þó boðið sé upp á þann möguleika, ég veit ekki af hverju.
Nú eru 3 komnar inn og 5 vantar, ég sendi stök boð aftur á allar svo að þetta virki sem best. Komi upp vandræði við skráningu þá sendið mér endilega línu og ég sendi aftur.
Vanalega þegar svona síður eru settar upp, þá er sá sem setur upp síðuna stjórnandi (administrator) en hefur þann möguleika að láta þá sem bætast við hafa þau völd líka. Sem sagt, hér verða allar með aðgang að öllum möguleikum síðunnar, þar með talið útlitsbreytingum og öðru fikti. Ég vil ekki stjórna þessu neitt bara koma öllum inn og svo ræður mæðraveldið.
Ég hvet allar til að fikta mikið og reyna að finna út hvernig við komum inn myndum og linkum.
kv. Auður

4.12.03
Eitthvað er þetta nú líkt þér :) hehe... (nefið mitt hefur nú fengið að kynnast þér). Já ég gæti ekki unnið með eitthvað svona heitt, er með allt of marga þumla til þess... Er núna að handssauma svona litlar fígúrur með pallíettum- púff..... föndur er ekki mín helsta sérgrein. Ég þykist vera rosalega dugleg svona heima í fæðingarorlofi en það gegnur nú víst ekki allt of vel. Dóri tók sig til og þreif alla eldhúsinnréttinguna í gær, sá ekki fram á að ég gerði bofs :( , svo sem skiljanlegt hjá honum.
Jæja þarf nú að fara að hugsa um krílin mín tvö...
Bæjó, Sirrý

Sauður get ég verið, ég ´fór að bræða kertavax fyrir kerti í gærkvöldi og var svo klaufaleg að u.þ.b 1/2 líter af bræddu kertavaxi helltist niður og út um allt.
Þvílíkt vesen, eyddi stórum part kvöldisins í að hreinsa þetta af gólfinu og innréttingunni.
Sleppti að hreinsa fötin mín, það þarf ég að gera þegar ég kem heim. Lovely, ég set hérmeð allt kertavesen í bið þar til eftir jól.

3.12.03
Brrrr, það er ansi mikið rok úti og það er svo gott að vera komin heim og geta haft það bara nokkuð huggó heima. Kveikja á kertum og elda (til tilbreytingar).
Nenni ekki að taka til eins og planið var fyrir þetta kvöldið.
Bið að heilsa ykkur og vonast til að fara að sjá meira af ykkur hér á síðunni!!

2.12.03
Frábært þá er þetta að virka, hefur enginn ykkar hinna fengið boðið til að taka þátt??
Velkomin Sirrý, ég er alveg hissa á því hvað þú ert lengi að jafna þig, eins lítið og þú borðaðir, hi hi hi.
Ég er að vesenast í jóladóti, nei ég er ekki farin að skreyta ennþá. Mamma vildi hreinsa til í jóladótinu. Ég fékk nánast helminginn af því sem hún átti.
Þar á meðal, jötu sem að ég átti víst hvort eð er. Sem var keypt handa mér fyrstu jólin mín. Frábært.
En núna er ég að fara í gengum þetta og reyna að koma þessu betur fyrir í kössunum áður en ég tek upp úr þeim aftur á næstu vikum. Ég er kannski skrýtin en ég vil ekki hafa allt jólaskrautið í gangi strax.
Ég sé á MSN að Bryndís er að baka, myndarleg húsmóðir það!!
Vonandi heyrum við frá fleirum hérna á næstunni.