30.8.04

hæ hæ

gaman að frétta af ykkur
innilega til hamingju Ragga mín þú stendur þig alltaf svo vel ;)
góður brandari Auður við ættum kanski að skella okkur í golf:)
jæja núna á að taka á því ég byrjaði í dag hjá Báru í leikfimi níu vikna námskeið farin að hugsa hvað ég borða og ég held að þetta verði bara gaman allavega líður mér stórvel eftir fyrsta tíman
það verður aðeins bið á partíinu ég er að bíða eftir því að bræður mínir leggi parketið sem ég keypti svo er ég ný búin að mála stofuna og ganginn og þetta er bara mjög huggulegt finnst mér
ég er búin að vinna í eina viku eftir 6 vikna frí sem var bara mjög fínt og rólegt
jæja bið að heilsa öllum
kv Björk

Golfslys

Tvær vinkonur voru saman í golfi þegar önnur varð fyrir því óhappi að hitta
kúluna illa í upphafshöggi og horfði með skelfingu á eftir kúlunni sem
stefndi á hóp karlmanna. Kúlan lenti inni í miðjum hópnum og einn maðurinn
féll til jarðar haldandi báðum höndum á milli fótanna, greinilega
sárþjáður.
Vinkonurnar hlupu til mannanna og þegar þær komu að hópnum hélt maðurinn
enn
höndunum á milli fótanna.
Sú sem hafði slegið kúlunni baðst afsökunar og bauð fram aðstoð. Maðurinn
vildi ekki að svo stöddu þiggja aðstoð og sagðist jafna sig eftir smá
stund.
Konan þráðist við, sagðist vera sjúkraþjálfari og vildi fá að þreifa aðeins
á manninum. Maðurinn lét tilleiðast og fékk hún hann til að leggjast á
bakið
og tók hendur hans frá og renndi buxnaklaufinni niður og byrjaði að nudda
hann rólega. Eftir smástund spurði hún manninn hvernig honum þætti þetta.
Maðurinn svaraði því til að honum þætti þetta mjög gott en hann væri enn að
drepast í þumalfingrinum.

27.8.04

September

Jæja stúlkur, ég var að hugsa um saumó í fyrstu septembervikunni en það lítur ekki út fyrir að ég geti ákveðið mig strax. Systir mín kemur heim í viku eða tvær núna í byrjun september. Ég vil ekki standa í neinu fyrr en hún er farin aftur út. Svo verð ég náttúrulega að taka tillit til þess að ég vinn 3 kvöld í viku aðra hverja viku svo ég er ekki viss hvenær ég kemst í þetta. En Bryndís má alveg færa sinn klúbb inn í byrjun September ef hún vill, ég er þá bara í lok mánaðar. ;0)

24.8.04

hæ girrls

Á menningarnótt rakst ég aðeins á hana Sirrý en hafði ekki mikinn tíma til að kjafta svo ég myndi ekki tína mömmu í þvögunni. Og hún ekki pabba sínum heldur.

hvað segið þið, á eitthvað spennandi að gerast áður en Ágúst er liðinn??
kv.
Auður

20.8.04

Menningar"nótt"

Hæ hæ stúlkur
Á ekki að skella sér eitthvað í bæjinn á morgun og kýkja á e-ð af öllu því sem er í boði? Hvar á ég mestann séns á að rekast á eina af ykkur?
Sjáumst kannski á morgun á flakkinu.
kv.
Ausa

17.8.04

hey hey

Gaman gaman, ég er strax farin að spá í hvað ég eigi að hafa í mínum saumó.
Nú og svo má ekki gleyma að 1 saumó datt út fyrr í sumar blink blink ;0) . Nú og svo bíð ég allavega enn eftir partýinu hennar Bjarkar, blink blink ;0) .
Sjáumst fljótlega
Auður

4.8.04

Saumó

Það verður saumó á föstudaginn hjá mér kl. 20.30.
Kv. Inga María

3.8.04

Saumó

Hæ
Björk ég er búin að heyra/fá SMS frá flestum en ekki þó öllum. Ég ætla að heyra í þeim sem ég á eftir að heyra í í dag og læt ykkur svo vita. Ef fleiri komast á fimmtudeginum þá skiptir það ekki máli fyrir mig en ég læt ykkur vita.
Kv. Inga María.

2.8.04

saumaklúbbur

hæ hæ
Inga hefur þú ekki fengið nein viðbrögð við saumaklúbbnum ?
það er betra fyrir mig á fimmtudaginn en ég kemst líklega samt á föstudaginn :)
vonandi fer þetta að koma í ljós
jæja eru ekki allir búnir að hafa það gott í sumar ég er búin að vera ein heima í 3 vikur og er búin að mála stofuna og ganginn ekkert farið í útilegu og ekkert á djammið:( það er nú alveg komin tími á það en ég fór reyndar til svíþjóðar í 10 daga með fótboltastelpunum að sjálfsögðu það var alveg ágætt en mér fannst reyndar mjög skrítið að þjálfarinn var að drekka í ferðinni mér finnst maður geta bara sleppt því ef maður er með unglinga eða börn á sínum vegum og þjálfarinn er enginn unglingur heldur virðulegur íþróttakennari eða hann heldur það
jæja bæ bæ við hittumst vonandi í vikunni hjá Ingu
kv Björk