24.2.05

Saumó

ég kemst á miðvikud
kv Björk

Kemst ekki á miðvikudag

Hæhæ
Ég kemst því miður ekki í saumó á miðvikudag í næstu viku. Ég er að vinna í HS þá vikuna mán, þri. og miðvikudag frá 5-10.
Ég er að fara á fund á mánudagskvöldið og hef ekki efni á að missa meira en eina vakt út í heilli viku.
kv.
Auður

23.2.05

skype og saumó

hæ, það er ingaogeythor ekki & :)
Ég geri mitt besta til að koma á miðvikudaginn en næsta vika er algjört horror - það á að skila hvorki meira né minna en 5 verkefnum þá vikuna þetta er alveg ótrúlegt, reyndar svolítið lýsandi hvernig sl. vikur eru búnar að vera en ekki þó alveg svona slæmar.
Hlakka til að sjá ykkur.
Kv. Inga

skype

já og ég er með audur_sig

farangur og fleira

hi hi Ragga, ég held við þurfum nú líka alveg helling af matvælum ef ég þekki okkur rétt, og spil og klósettpappír og fl. en rétt er það að ekki hef ég nú skipt mikið um föt þessar helgar, náttföt og sundföt hafa verið málið.
Ég hef pínulítið til að hlakka til, ég pantaði mér adsl tengingu frá Hive á netinu áðan og bíð spennt. Ég er svo leið á því að vera á innhringisambandi og svo kemur það bara fram í símreikningnum, ég spara ekkert á því að vera í svona sambandi. Eyði bara tíma og taugum. Svo getur maður ekki hlaðið neinu niður, það tekur það langan tíma að maður sleppir því. Stór mail hafa verið horror. Maður verður svolítið netútundan.
Já svo ætla ég að fara að nota Skype fyrir öll útlandasímtöl, Inga ég finn þig ekki undir inga&eythor eins og þú skrifaðir hérna einhverntímann. Hvaða nick eru þið með í skype?

22.2.05

Sumarbústaður jess

Já einmitt sammála síðustu ræðumönnum, hlakka mikið til að fara í ferðina okkar.
Við þurfum að fara að skipuleggja okkur það er rétt. Ég get keyrt á bílnum hennar mömmu, hann er í góðu lagi og á vetrardekkjum og bara mjög duglegur í færðinni sem er búin að vera í bænum í vetur, en hann er nokkuð lítill varðandi farangur, bara svo það sé á hreinu. Svo kannski kemst ekki næginlega mikið áfengi með í þann bílinn hi hi.
Það er gott að heyra að allt gekk vel hjá mömmu þinni Björk.
Já það er eitthvað sem tekur tíma að venjast þegar foreldrar flytja út af æskuheimili mans. En eflaust léttir fyrir þau að komast í minna húsnæði.
Inga ég leyfi mér örlítið að efast um að þú lesir mikið í bókunum þessa helgina, en það er alltaf gott að hafa þær með ef ske kynni að maður skyldi kýkja í þær, ekki satt.
góða nótt
Auður

21.2.05

HæHæ

hæ stelpur gaman sjá hvað fólk er spennt ég er líka mjög spennt og farin að spá í áfengið eins og sumir það verður örugglega gaman en hvernig er með bíla ég veit að minn kemst ekkert hann er svooo milkil drusla þessa dagana (ég þarf að fara að sofa hjá bifvélavirkja) nei djók!!!

Mamma fór í aðgerðina í dag og það gekk mjög vel þetta var staðbundið og læknirinn sagðist hafa tekið allt sem er frábært :)
þau eru flutt í Lómasali og þeim finnst það bara mjög fínt.
þó svo að ég sakni Kastalagerðisins þetta er dálítið skrítið vegna þess að þau voru búin að búa þar í 35 ár en svona er lífið

ég vona að allir séu vel stemdir fyrir ferðina þurfum við ekki að hittast áður ??
kveðja Björk

Bryndís er Vigdís búin að eiga???
ein forvitin

hæ, hæ

Sælar dömur

Ég er svo innilega sammála Röggu, ég hlakka ekkert smá til bústaðarferðarinnar - þó svo ég þurfi að taka með mér bækur þá ætla ég með, ekki spurning. Ég virkilega vona að allar komist, það er svo gaman þegar allir eru.
Annars er svo sem ekkert að frétta nema það er bara geðveikt að gera, skólinn og svo hér heima, þó svo að ég geri ekki mikið hér heima, endalausir kassar út um allt. Eyþór þrælar sér út, ég er eitthvað að reyna að læra en það er reyndar takmarkað hvað maður lærir mikið á kvöldin, svo af því það er svo mikið að gera hjá mér þá ætla ég að fara að horfa á Survivor og CSI núna.
Bæ í bili, hlakka til að hitta ykkur næst þegar við hittumst, vonandi þó sem fyrst.
Kv. Inga María

10.2.05

viðtal

Æjjii, mér fannst ég nú ekki sýna mig frá minni bestu hlið í þessu viðtali. En það gleður mann í það minnsta að vita að maður var ein þeirra 7 sem fengu viðtal af þeim 60 sem sóttu um. Auk þess sem leitast er við að leiðrétta kynjahlutfallið innan deildarinnar sem er karlkyninu óhagstætt, sem sagt helst er leitað að manni. En þeir voru greinilega ekki nógu margir álitlegir sem sóttu um.
A

9.2.05

Afmæliskveðjur o.fl.

Sælar stelpur
Við erum flutt og búum eiginlega í kössum þessa dagana. Það er svo mikið að gera þessa dagana að maður hefur ekki mikinn tíma til að klára þetta en það hlýtur að koma á endanum.

Innilega til hamingju með afmælin Ragga og Björk. Vona að þú farir nú að hressast Björk mín. Ég óska þér góðs gengis Auður mín, vona að viðtalið gangi vel.

kær kveðja, Inga María

p.s. við erum í Holtagerði 26, skólinn er bein fyrir framan okkur.

8.2.05

Gangi þér vel

Gangi þér vel Auður mín ég vona að þetta sé happa dagur
kv Björk (ennþá lasin)

Ammælistelpur

Elsku Ragga
Til hamingju með afmælið, ég var bara allt of upptekin af sjálfri mér til að fatta afmælið þitt eitt árið enn :0( ég er ekki góð í þessu. Það er bara allt of mikið af afmælum í febrúar í kringum mig.
Svo ég óska þér Björk til hamingju fyrirfram líka áður en ég gleymi því.
Annars er ég að fara í atvinnuviðtal í fyrramálið svo vonandi er afmælisdagurinn þinn happadagurinn minn.
bæjó
Auður

7.2.05

Afmælis kveðja

hæ hæ
til hamingju með afmælið Ragga mín loksins búin að ná mér :)
jæja ég ætlaði að kíkja á Ingu Maríu á laugardaginn en hef örugglega farið í vitlaust hús eru þið ekki númer 22 ??
kv Björk (lasna)