19.7.05

er sumarið komið?

hæ ég vona svo sannalega að sumarið sé komið þar sem ég er að fara á skátamót á morgun og vera í tjaldvagni í viku
annars mæli ég með því að þið skellið ykkur á mótið sem verður á Úlfljótsvatni það verður mikið stuð skemmtilegt að fara með fjölsk á laugardaginn

Ása fer víst ekki á skátamótið þar sem hún var að frétta í dag að hún ætti að fara til Svíþjóðar í fyrramálið með u-21 þannig að hún er að fara í aðra utanlandsferðina sína í sumar og er ótrúlega spennt yfir því

ok núna er komin nótt og ég farin að sofa
sjáumst á Úlfljótsvatni ég verð í leikskólanum í fjölskyldubúðunum :)
bæ bæ Björk

14.7.05

Loksins kom sólin!!!!

Ég er búin að vera vinna sem moldvarpa í allt sumar, reita arfa og reita arfa og reita arfa svo eitthvað sé nefnt. Það er búið að vera gaman en nú er ég alveg farin að þrá smá frí. Ég fer í 2ja vikna frí föstudaginn 29. júlí og ætlum við að fara í sumarbústað á Flúðum í viku og svo ætlum við Eyþór að skella okkur til Danmerkur í fertugsafmæli og fara svo yfir til Þýskalands á U2 tónleika ásamt því að heimsækja bróður hans þar. Ég er eins og litlu börnin að deyja úr spenningi. Ég og Eyþór ásamt 11.000 íslendingum skelltum okkur á Duran Duran tónleika um daginn og mikið rosalega var gaman.

Vona að allt sé fínt að frétta af ykkur og ég held saumó um leið og ég get en sorry það er allt á hvolfi hér heima eins og er þannig ég get ekki boðið í saumó strax.
bæ í bili, ætla út í sólina meðan hún er.
kv. Inga

2.7.05

hér er ég og get ekki annað

hæhæ Björk
Mér sýnist við vera einar hérna, svilkonurnar eru víst í sólinni úti. Og um restina veit ég ekki. Ég er mikið að vinna í ferðum þessa dagana og er bara frekar lítið að gera annað en að vinna. Ekkert frí framundan hjá mér, vonandi. Ég verð reyndar í fríi á morgun sunnudag, en ég þarf líka á því að halda. Tölvan mín gaf upp andann og er ég með mömmu tölvu í láni í bili. En þetta er nú alveg bölvað vesen.
Hringdu í mig ef þér dettur í hug að gera eitthvað á meðan stelpan er í burtu og þú hefur bílinn þinn til umráða he he.
kv.
Auður

HVAR ER FÓLKIÐ??

Hæ eru allir komnir í sumarfrí eða hvað nennir engin að skrifa nokkrar línur ?
jæja ég bíð spennt eftir að komast í frí bara vika eftir síðan FIMM VIKNA frí jé
Ása er að fara til Noregs á morgun með U-17 landsliðinu og verður í burtu í viku þannig að ég fæ að hafa bílinn alla vikuna hún hefur nefnilega dáldið oft skutlað mér í vinnuna þessa viku og sagt að ég geti bara labbað heim (sem ég hef reyndar dáldið gott af enn )
farið þið nú að skrifa pínu svo maður viti hvað þið eruð að gera
ég var að heyra að PAPARNIR séu á Players um næstu helgi er einhver stemming fyrir því ??
bið að heilsa og hafið það gott í góða veðrinu sem kemur þegar ég fer í frí :))
kv Björk