31.1.04

Æji greyjið mitt, léttu nú á fangavistinni og skrepptu í kvöldkaffi einhvert.
Ég fór og fékk mér breiðbandsáskrift, ligg þá á fjarstýringunni eins og ekkert sé. 49 stöðvar er smá breyting frá því sem var.
Ég var líka svo dugleg að bora og setja upp hillu í forstofunni í vikunni.
kv.
Auður

29.1.04

Ég er að kynna mér kostnað við bílaleigur, því miður eru stóru bílarnir aldrei á tilboði. Ég tékkaði á Avis á netinu, þar kostaði 7 manna bíll yfir helgi 28200, án Kaskó, 30700 með.
Aðrar voru ekki með nothæfar síður, sem sagt best að hringja

28.1.04

Nú lánaði Bryndís bróðir sínum gáfurnar,hi hi.

25.1.04

Takk fyrir síðast stelpur!!!

Til hamingju með brósa þinn Bryndís mín... hann er greinilega með gáfurnar hennar systur sinnar.
Það var smá misskilningur hjá mér með hvað lambasteik þetta var sem ég var svona hrifin af en þetta er víst VSOP frá Hagkaup en ekki koníakssteik frá SS. Já rétt skal vera rétt ekki satt?

Kv, Sirrý

24.1.04

Til haminju með lille bror Bryndís.
Og Guðrún til hamingju með að vera komin inn.
kv.
Auður
hæ hér er ég.KV Guðrún

23.1.04

Hæ hæ og takk fyrir síðast alltaf jafn gott að borða hjá Sirrý ummmm
til hamingju með Baldvin bróður þinn Bryndís þeir stóðu sig ótrúlega vel fáum við þá að sjá hann í sjónvarpinu??
kveðja Björk
Well my dears
Einhverjar ykkar gátu ekki farið inn á eldri pósta.
Besta leiðin til þess er að fara inn á síðuna sjálfa, þ.e. www.valkyrjur.blogspot.com og sjá þar efst í hægra horninu eru tölur sem minna á dagsetningar.það eru eldri póstarnir, líka um hrærivélina. Þarna er allt geymt sem skrifað er inn á síðuna skypt niður eftir tímabilum. Ef það er bara klikkað á eitt tímabilið kemur það upp og það er hægt að lesa það.
kv.
Auður

22.1.04

Hlakka til að sjá ykkur á morgun ;)

Kv, Sirrý sem er ekkert að drepa sig í undirbúningi *hóst*

21.1.04

ég skal koma með þér Auður ef þú hringir bara á undan þér ok?
kv Björk
Okey þar með er það ákveðið, ég skal vera á bíl. Hver kemur með mér og hvenær á ég að sækja ykkur.
Auður

20.1.04

Glæsó stelpur mínar þetta verður þá fimmtudaginn. Vona að allar sjái þetta :)

Kv, Sirrý
hæ hæ ég væri mjög fegin ef ég fæ far með einhverjum
kv Björk
Sirrý. Ég kemst á fimmtudaginn :)
Ég er alveg til í að fá að fljóta með einhverjum í bíl en ég get líka verið á bil ef þess þarf.
Kv. Inga
Mér sýnist þetta vera að hallast að fimmtudeginum, Ásta ég skal senda þér mailin á maili. Þarf ekki endilega að vera á síðunni.
kv.
Auður

19.1.04

Ja.... miðvikudag eða fimmtudag :S það er spurning??? Ég var svona að vonast til að Guðrún kæmist á fimmtudaginn en komst því miður ekki til að hringja í hana í kvöld eins og ég ætlaði (var í bíó). Hvernig er það Inga, verður æfing hjá Eyþóri? Það mundi henta mér betur að hafa þetta á fimmtudagskvöldið en reddast alveg á miðvikud. Björk kemst bara alls ekki á miðvikud. og helst vill ég að allar komist auðvitað.

Kv, Sirrý
Jæja stúlkur eigum við ekki að reyna að nýta bílana upp á Skaga?
Ég verð á múttubíl næstu 6 vikurnar, svo að ég get verið bílstjóri.
Sú gamla skellir sér til Kanarí á morgun og verður þar í allavega 6 vikur. Gott hjá henni.
kv.
Auður
Bryndís!!!

Jæja hvernig gekk nóttin? Var sú stutta ánægð í sínu herbergi?

Kv, Sirrý

18.1.04

Já ég setti þetta upp fyrir Guðrúnu en hún var ekki inni í herberginu að fylgjast með, ég hélt líka að það væri betra ef hún færi í þetta edrú. Svo ég skrifaði nákvæma lýsingu um það hvernig hún ætti að fara að þessu. Hún skrifaði einu sinni HALLÓ, svo henni tókst að komast inn einu sinni svo að það er kannski bara smá feimni við tölvuna hún þarf kannski einhvern til að halda í hendina á sér á meðan hún prufar sig áfram.
Sirrý, það er ekki alveg víst með fimmtudaginn hjá mér - Eyþór er á hljómsveitaræfingum þá en hann veit ekki alveg hvort það verður næsta fimmtudag. Ég læt þig vita en haltu endilega saumó á fimmtudaginn, mér sýnist að flestar komist þá :)
Kv. Inga María

17.1.04

Inga þú segist frekar komast á miðvikudaginn en kemstu á fimmtudaginn ef þetta verður þá?
Björk getur alls ekki komið á miðvikudaginn og fimmtudagurinn væri líka betri fyrir mig. Ég fer nebblega í bæinn á þriðjudeginum og hef þá kannski ekki eins mikinn tíma í að gera eitthvað gúmmulaði fyrir miðvikudaginn (veit þið viljið fá eitthvað gott - ekki satt?)

Vitiði með Guðrúnu? Hef ekkert hringt í hana, kemst hún annars ekki inn á Bloggið? Já og Ásta? Veit að það er erfitt að vera lengi frá litlu kríli en ef þú treystir þér þá endilega komdu!!!

Kv, Sirrý
hæ hæ stelpur ég kemst ekki á miðvikudeginum það er námskeið í leikskólanum mínum en kemst á fimmtudeginum. fæ ég kannski far með einhverjum ef þetta verður á fimmtudeginum ?
Auður mín vonandi fer þér að batna
kveðja Björk

16.1.04

Jú ég er að skána aðeins.
Ég fór í vinnuna í gær en þurfti að fara snemma heim og var heima í allann dag.
Ég er orðin ansi leið á þessu hangsi. En alltaf þegar ég reyni að gera eitthvað kemst ég að því að mér er ekki batnað.
Það versta er að videoið er bilað, og tölvuræksnið er pínu bilað líka því það er ekkert hljóð,þ.a.l. enginn DVD. booring. Verð að reyna að lesa því ég er örugglega búin með svefnskammtinn.
Ég er vonandi komin í lag um helgina.
Ég kemst báða dagana, svo þið getið ákveðið hvenær saumóinn er.
kv.
Auður

15.1.04

Ég kemst frekar á miðvikudeginum :)
Kv. Inga
Væri sko alveg til í að hitta ykkur með börnin, það er allt of sjaldan sem þau hittast. Ég held að allar helgar henti mér.... sko ekkert merkilegra að gerast þessa dagana.
Annars var ég að hugsa um að halda saumó í næstu viku. Það henta mér eiginlega ekki mánudagur né þriðjudagur en hvernig er með miðvikud. og fimmtud. hjá ykkur? Endilega að hafa atkvæðagreiðslu hér.

Kv, Sirrý

14.1.04

Sælar.
Ég er mjög hrifin af hugmyndinni hennar Guðrúnar. Ég er til hvenær sem er nema næstu helgi þá er ég og Eyþór á förum í frí í sumarbústað :) heitur pottur og góður matur, nammi namm. Ég hlakka einnig mikið til okkar árlega húsmæðraorlofs - það er svo meiriháttar, borða, drekka, sofa, spila, lesa, oooohhh þetta er alveg æðisleg skemmtun og afslöppun.
Til hamingju Björk með hana Ásu, þú hlýtur að vera rosalega stolt af henni.
Elsku Auður mín ég vona að þér fari nú bráðum að batna, ekkert er eins leiðinlegt og að vera veikur.
Nú er skólinn kominn nánast á fullt hjá mér, reyndar eftir að fá að vita hvernær dæmatímarnir verða, ég vona að þeir verði ekki á laugardögum eins og síðustu önn en það er örugglega mikil bjartsýni hjá mér.
Inga María
Æj æj eymingja ég, er heima veik annan daginn í röð.
Mér finnst þetta ekki skemmtilegt.
kv.
Auður

13.1.04

hæ hæ jú þessari skólagöngu fer að ljúka hjá mér ég tel niður það eru 4 mánuðir eftir og næg verkefni fyrsti skóladagurinn var í dag og þetta legst ágætlega í mig vonandi lifi ég það af og get svo farið að lifa eins og venjulegt fólk, hvernig sem það er nú!!
en það er allt gott að frétta hérna er að senda út rannsóknina mína og halda áfram að lesa til að skrifa ritgerðina
kveðja Björk

12.1.04

Til hamingju með duglegu stelpuna þína Björk!!!
Hvernig gengur annars í skólanum, er þetta ekki að verða búið hjá þér? Þá geturðu setið og spilað kapal að vild öll kvöld :)

Kv, Sirrý

11.1.04

hæ hæ við Ása vorum á íþróttahátíð kópavogs þar sem valin er íþróttamaður Kópavogs og veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur Ása fékk bikar fyrir að vera einn efnilegasti markmaður landsins annars var Jón Arnar valin íþróttamaður Kópavogs og Inga Rós fimleikastelpa íþróttakona Kópavogs þetta var bara mjög gaman ( en ég skil nú reyndar ekki alveg afhverju alltaf er verið að heiðra hann Jón Arnar mér finnst hann alltaf vera að klúðra einhverju)
kveðja Björk
ps. ég skil ekkert í mér þegar ég ætla að fara að læra þá festist ég alltaf í einhverjum hundleiðinlegum kapal hjálpppp
:)
Já netfangið á síðunni hans Arons Helga er http://www.barnaland.is/barn/13684 Þar getið þið skoðað myndir og fylgst með litla stubb. Ég er að vísu ekkert allt of dugleg að skrifa í vefdagbókina en vonandi fer það nú að lagast :S

Kv, Sirrý

P.s. ef einhverjar aðrar eru með síður fyrir börnin sín þá væri ég alveg til í slóðina.
Talandi um myndir, Sirry ert þú ekki búin að gera einhverjar heimasíður og með fullt af myndum af hverju deilir þú ekki netfanginu hérna með okkur svo við getum skoðað ;0)
Ausa paus

10.1.04

já innilega til hamingju með prinsinn :) við verðum að fara að sjá myndir kveðja Björk
hæ hæ ég er komin inn gaman að geta talað eitthvað við ykkur !!!!
Til hamingju með litla stubb Ásta!!! þú verður nú að senda okkur myndir af litla Mása þínum ;)

Sammála þér, er sko alger Jón fan núna og rosalega hissa að Anna Katrín datt ekki út í kvöld, hvað er að þjóðinni??? Röddin brást henni ekki bara einu sinni eða tvisvar.... þetta var nú einum of. En það virðast margir ætla að standa með henni í gegnum súrt og sætt s.s. ekki verið að spá í hæfileikana þar. Annars held ég að Kalli vinni þetta nú alveg örugglega og kannski á hann það bara skilið. Jón sagðist líka stefna á annað sætið og vonandi fær hann það.

Kv, Sirrý Idolisti

9.1.04

Ja... veit nú ekki hvað verður um dugnaðinn á þessum bæ.... hann virðist alltaf láta bíða eftir sér. Ég geri bókstaflega ekkert annað en að borða eitthvað óholt þessa dagana. Er með mikið æði fyrir svona útlenskt muffins sem er keypt í Nettó umm.... voðalega gott með kaffi. Einnig er rosalega góð súkkulaðieftirréttur sem við bökum stundum á þessum bæ... mikið gert af því þessa dagana og borðað að kvöldi til með ís namm.... namm... Svo á ég frosið eplapæ sem ég stelst nú í öðru hvoru, átti sko að vera fyrir gesti en ég gat bara ekki staðist að smakka smá á henni. Já og ekki má gleyma Sörunum.... þær eru ótrúlega góðar með pilsner þegar verið er að horfa á sjónóið.

Jæja sé nú að það þarf eitthvað að breytast á þessum bæ, veit ekki hvort viljinn sé til staðar.

Kv, Sirrý

Nú þegar jólin eru búin er helsta tilhlökkunarefnið sumarbústaðaferðin. Þetta er alveg sérlega tilvalinn tími ársins fyrir svona upplyftingu, annars væri svo langt til sumarsins. Nú verður maður að vera svakalega duglegur svo að maður eigi þessa ferð alveg örugglega skilið.
kiss kiss
Auður

8.1.04

Hæ hæ
ég gerðist svo frek að búa til aðgang fyrir Björk og Ástu til að allir hafi aðgang.
Nú er að sjá hvort þær muni líka taka þátt.
kv,
Auður
Úff nú þarf að fara að byggja sig upp fyrir að skilja drenginn eftir án mömmubrjósta yfir heila helgi. Mar... bara alveg með hnút í mallanum (roðn), kem sko samt.

Kv, Sirrý

7.1.04

shit sidan vill ekki isl. stafi hvad er ad ske??
Hæ hæ
Nú er ég búin að laga það sem var vandamál hjá henni Guðrúnu með að skoða allt sem búið var að skoða.
Ég er líka búin að gera aðgang handa �stu og Björk, þær fá allar upplýsingar á maili frá mér.
Nú hafa allir meðlimir saumó aðgang að síðunni.
kv.
Auður

6.1.04

Jæja var ekki gott að borða hjá Bryndísi í gær, saknaði ykkar mikið en þó mest kræsinganna hennar :) Ég á að halda janúarsaumó er það ekki? Væri sko alveg til í að halda saumórinn frekar snemma kannski í næstu eða þarnæstu viku - Er það ekki góð hugmynd?

Var eitthvað ákveðið með bústaðinn? Ég var reddý við símann í allt gærkvöld ef þið vilduð spjalla inná MSN. Vona bara að samkomulag hafi náðst.

Kv, Sirrý

5.1.04

halló

4.1.04

hæ hæ
Það var gaman hjá okkur sem mættum í Partý til Guðrúnar á föstudag.
Það var mikið stuð á Bryndísi, vonandi var hún ekki of þunn í gær.
Ég var kvefuð og slöpp í gær, ekki þunn. Var svo með matarboð fyrir familíuna í kvöld og geri allt annað en að ganga frá sem er það sem ég ætti að gera.
kv.
Auður

3.1.04

hæ auður í partíi hjá Gunnu JO AÐ redda inngangi,

2.1.04

Sælar
Vonandi næ ég að sjá einhverjar af ykkur í partyinu hjá Guðrúnu í kvöld, annars mæti ég frakar seitn þar, vegna þess að ég var búin að lofa mér í annað.
Það sama gæti verið upp á teningnum á mánudag, ég er ekki komin með þá tímasetingu á hreint. En ég læt þig vita Bryndís um leið og ég get.
kv.
Auður