30.8.05

gaman að sjá ykkur

hæ hæ
Það var svakalega gaman að sjá ykkur næstum allar í gær. Við vorum nú að spjalla um hvort við ættum að fara á djammið á föstudagskvöld. Ég er búin að ráða mig í ferð á föstudag og laugardag, en er í fríi á sunnudag svo ég get nú skroppið eitthvað á laugardagskvöldið. Hvernig er staðan hjá ykkur núna?
kv.
Auður

22.8.05

æj æj

Hvað er að heyra, elsku Ásta það er hræðilegt að þú skyldir ekki einu sinni getað séð manninn þinn á sviði, þegar þú þarft að búa við allar þessar æfiningar. Ég skil ósköp vel að þú skyldir fara í svona vont skap. MSN er ósköp einfalt í notkun, en ég veit ekki hvernig það er með MAC!!

Menningarnótt

Ég vona að þið hafið allar skemmt ykkur vel á menningarnótt, ég fór á endanum ekki neitt. Heyrði ekkert frá Björk. Og svo þurfti ég á endanum að vinna alla helgina hvort eð er, svo ég hélt mig bara heima. Fékk samt flugeldasýningu heima hjá mér um nóttina. Ég hrökk upp af værum svefni við það að sprengingar og læti áttu sér stað fyrir framan gluggann minn um miðja nótt. Mér brá það mikið að hjartað var alveg uppi í hálsi og ætlaði ég aldrei að geta sofnað aftur. Það þarf bara eina flugeldasýningu til að kveikja í brennuvargnum í mörgum íslendingnum sem þá fattar að hann á flugelda inni í geymslu frá síðustu áramótum...............

18.8.05

Björk

hæ Björk
Eigum við þá kannski að gera eitthvað bara tvær á menningarnótt??

17.8.05

Djammið

Ég var að hugsa um að vera með fjölskyldunni næsta laugardag á menningarnótt og þarnæsta laugardag er verið að spá í lokapartý í vinnunni þannig þar þar næsta föstudag eða laugardag væri ég til í eitthvað eða þá næstu helgi á eftir, hvað segið þið um það? Ég kemst allaveganna ekki næstu tvo föstudaga vegna þess að ég á að vinna á laugardögunum!!!
Við kannski pælum í þessu betur í saumó hjá Röggu :)
Kv. Inga

16.8.05

Djammið

ég kemst á laugard en ekki á föstud
eða einhverja aðra helgi þar sem flestar komast.
kannski er fólk að fara með fjölsk á menningarnótt á laugardaginn veit ekki
segið hvað þið viljið ég vil hitta ykkur krúttin ykkar
kv Björk

ég var búin að gleyma því Inga

já auðvitað ég var búin að gleyma því, ég kýkti á færsluna, sorry.
En það virðast greinilega ekki allar lesa síðuna svo oft, ég og Björk svöruðum þér Bryndís og Ragga voru í útlöndum. En ekkert heyrðist frá hinum. En svona er sumarið he he... Hvernig skildi svo sumarið hafa verið hjá þeim sem ekkert heyrist í Sirrý, Guðrúnu ( sem er víst ekki nettengd) og Ástu ( jú það heyrðist aðeins í henni í sumar)
Það væri gaman að fá nokkrar saman á smá djamm núna um helgina. Ragga kemst ekki það veit ég, en sjáum til hvaða stúlkur við fáum með okkur.
bæjó

Saumó

Hæ, hæ.

Mér líst vel á 29.8, ég kem.
Ég ætla mér að halda júnísaumó þó svo hann hafi ekki verið í júní. Ég reyndi að skipta (sjá 11.6) en það virtist enginn geta það þá :(

Við erum enn að vinna í eldhúsinnréttingunni en þetta fer allt að koma þetta tekur samt ótrúlega langan tíma þegar maður gerir þetta sjálfur þ.e.a.s. Eyþór (ekki hef ég getað gert mikið) m.v. þann vinnutíma sem hann hefur!!! Skólinn byrjar svo 1. sept. hjá mér en þetta er síðasta vikan hjá mér í vinnunni (3 dagar) + 2 næstu laugardagar þannig ég fæ ágætt frí áður en skólinn byrjar. Varðandi djamm þá er ég alveg til ef það er stemmning fyrir því ég samt einhvernvegin nenni ekki niður í bæ allaveganna ekki ef veðrið verður eins og það er búið að vera í dag (brrrrr), sjáum til með það en ég er alveg til í hitta ykkur og fá mér aðeins í glas, ekki vandamálið :)

Saumó

Sælar Stúlkur
Samkvæmt því sem við ákváðum í upphafi ársins þá áttu saumaklúbbarnir að eiga sér stað eftir stafrófsröð, sjá hér að neðan. Ég sit hér hjá Röggu sem á Ágústmánuð, hún var að bíða eftir því að þær sem eru á undan henni í stafrófinu héldu sinn saumó. Ég man ekki eftir marsmánuði, en Ragga heldur að Ásta hafi ekki haldið sinn þá. Líka vantar enn Maí og Júní saumó, Guðrún og Inga!!
Ragga sagðist halda saumó mánudaginn 29.8. , en hún krefst þess að þær sem ekki eru búnar að halda sinn samkvæmt áætlun verði að halda samt utan dagskrár saumaklúbba.
Kannski er best að afrita dagskránna hér að neðan og setja hana einhverstaðar þar sem hún geymist vel. OG ATHUGA AÐ SKIPTA VIÐ EINHVERN EF EKKI ERU AÐSTÆÐUR TIL AÐ HALDA SAUMÓ ÞANN MÁNUÐINN.

2005
Jan: Auður
Feb: Bryndís
Mars: Ásta
Apríl: Björk
Maí: Guðrún
Júní: Inga
Júlí: Frí
Ágúst: Ragga
Sept: Sirrý
Okt: Auður
Nóv: Ásta
Des: Björk

Og svo rúllar það áfram þannig að 2006 heldur svo svona áfram.
2006:
Jan : Bryndís
Feb: Guðrún
Mars: Inga
Apríl: Ragga
Maí: Sirrý
Júní: Auður
Júlí: Frí
Ágúst: Ásta
Sept: Björk
Okt: Bryndís
Nóv: Guðrún
Des: Inga

það er greinilega lítið fjör í okkur

hæ
Björk ég væri alveg sérlega til í smá djamm með saumó, eða bara þér ef ekki næst í fleiri!!
Ég er ekki búin að ráðstafa mér í vinnu um alla helgina ennþá. Þannig að það er enn hægt að pæla í næstu helgi, hvað segir þú um það??

Hæ Inga hvað ég öfunda þig af því að hafa kýkt á U2 á tónleikum. Ég er líka alveg komin á það plan að ég þarf að komast í alvöru frííííí.........
Er skólinn að fara að byrja hjá þér, þarf ekki að drífa þig á djammið áður en skólinn byrjar??????????? Við eigum ennþá eftir að skála fyrir brúðkaupinu þínu, nýju íbúðinni og afmælinu þínu líka.

Ragga samkvæmt Ingu ert það þú sem átt næsta leik, hvað segir þú um það?? Þá fengjum við kannski að sjá myndir frá Mallorka!!!!

Látið í ykkur heyra stelpur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

12.8.05

Djammið

Hvernig væri að fara að kíkja á djammið saman ???
kv Björk

11.8.05

U2 - bara góðir

Sælar stelpur.

Þið verðið að prufa þetta einhverntímann, að fara á U2 tónleika, þetta var rosalega gaman. Við komum heim sl. föstudag eftir mjög vel heppnaða ferð bæði til Danmerkur og Þýskalands. Ég hlakka mikið til að hitta ykkur en ég átti að halda saumó júní en þið verðið bara að eigið hann inni hjá mér. Samkvæmt mínum kokkabókum þá ætti Ragga að halda í ágúst og Sirrý í september.

Sjáumst vonandi sem allra fyrst.
Sumarstuðkveðjur Inga María

2.8.05

hvernig er staðan ?

Hver á að vera með saumó í Ágúst?? Verður Saumó??
Mig er farið að langa tiil að sjá ykkur??
kv.
Auður