hæ hæ Björk
Mamma ætlar sér líka að kaupa sér bíl og hann má ekki vera frá síðustu öld. He he
Já ég er að leiðsegja/gæda/guida þessa dagana er að vinna nánast alla daga. Er samt í fríi á morgun. Sem betur fer ég er hrædd um að röddin sé að fara. Alex jú ég veit hver hún er, hef unnið með henni í einni ferð. Leiðsögumenn vinna yfirleitt hjá mörgum fyrirtækjum og eru allir lausráðnir, eina ferð í einu þess vegna er ekkert fyrirtæki til að tengja fólk við. Svo að það er ekki að undra að þú vitir ekki hjá hvaða fyrirtæki.
Ég er hrædd um að þú verðir að tæla mig út í bíó eða eitthvað næst. Hringdu ef þér dettur í hug að gera eitthvað.
kv.
Auður
14.6.05
13.6.05
hæ Auður
Takk Auður
hann er árgerð 99 en bara ekinn 40000 og kostaði 620 þús
ég ætlaði ekki að kaupa eldri en 2000 en þessi var svo lítið kerður og vel með farin það er bara ein 70 kona búin að eigan
ég var orðin frekar leið á að leita að bíl aðþví að ef mér leist vel á einhvern þá seldist hann þannig að ég bað þá í toyota bara að hringja í mig þegar þeir finndu bílinn og þeir gerðu þaðog ég er ótrúlega ánægð með hann en Ása á örugglega eftir að vera mikið á honum hún fær bílprófið á fimmtudaginn
ég bíð þeir einhver tíman á rúntinn og hvernig væri að draga mann aftur í bíó ??
ertu að vinna í rútunum (gæta) það er ein þýsk mamma á deildinni minni að gera það hún heitir Alexandra ég veit reyndar ekki hjá hvaða fyrirtæki
kv Björk
12.6.05
til hamingju Björk
hæ hæ
Til hamingju með nýja Bílinn Björk. Er hann þá nýlegur? Og hvað kostar svona bíll?
Mömmu langaði alltaf svo í Yaris.
kv.
Auður
Til hamingju með nýja Bílinn Björk. Er hann þá nýlegur? Og hvað kostar svona bíll?
Mömmu langaði alltaf svo í Yaris.
kv.
Auður
hæ hæ
ég var að kaupa mér nýjan bíl vildi bara deila gleðinni með ykkur komin á RAUÐAN Yaris
Ragga og Bryndís fara 22. júní ég get því miður ekki skipt sorry
kv Björk
11.6.05
æj æj
Ég hefði nú alveg viljað skipta en ég er að vinna hvern einasta dag núna þar til 8 júlí, mislangir dagar eftir ferðum, en þetta er mest megnis langir dagar. Svo ég treysti mér ekki alveg til þess í augnarblikinu.
Hvenær er aftur útlandaferðinn hjá Röggu og Bryndísi?
kv
Auður
Hvenær er aftur útlandaferðinn hjá Röggu og Bryndísi?
kv
Auður
Saumó - vill einhver skipta
Hæ, hæ
Ég á að halda saumó í júní og stefndi á að gera það sem fyrst en það er verið að sparsla, pússa, mála og svo er stefnt á að skipta út eldhúsinnréttingunni þannig ég veit ekki alveg hvort ég get haldið í júní. Það er alveg sama hversu mikið ég reyni að þrífa heima hjá mér það er alltaf allt komið í ryk aftur. Ef einhver vill skipta við mig þá er ég til í það :)
Annars er fínt að frétta af mér, gengur bara ágætlega í vinnunni. Skellti mér meira að segja í partý í gærkvöldi sem var bara fínt. Umræðan í lokin var eitthvað að þennan veg..... ætli ég komist inn, átt þú skírteini til að lána mér, en ef ég kemst ekki inn ........ muniði eftir þessu, vá mér leið svolítið skringilega í þessari umræðu en hafði nú samt bara gaman af :) Þetta rifjar upp gamla tíma, mér finnst eiginlega svolítið langt síðan maður var að pæla í þessu - maður er að verða hálfgert gamalmenni, nei, nei - ekki strax, ekki tilbúin í það strax.
Kv. Inga