11.6.05

Saumó - vill einhver skipta

Hæ, hæ
Ég á að halda saumó í júní og stefndi á að gera það sem fyrst en það er verið að sparsla, pússa, mála og svo er stefnt á að skipta út eldhúsinnréttingunni þannig ég veit ekki alveg hvort ég get haldið í júní. Það er alveg sama hversu mikið ég reyni að þrífa heima hjá mér það er alltaf allt komið í ryk aftur. Ef einhver vill skipta við mig þá er ég til í það :)

Annars er fínt að frétta af mér, gengur bara ágætlega í vinnunni. Skellti mér meira að segja í partý í gærkvöldi sem var bara fínt. Umræðan í lokin var eitthvað að þennan veg..... ætli ég komist inn, átt þú skírteini til að lána mér, en ef ég kemst ekki inn ........ muniði eftir þessu, vá mér leið svolítið skringilega í þessari umræðu en hafði nú samt bara gaman af :) Þetta rifjar upp gamla tíma, mér finnst eiginlega svolítið langt síðan maður var að pæla í þessu - maður er að verða hálfgert gamalmenni, nei, nei - ekki strax, ekki tilbúin í það strax.
Kv. Inga

Engin ummæli: