28.4.06

sælar stúlkur

hæ hæ
Ég er komin aftur eftir skemmtilega ferð. Það var ekki svo mikið mál að venjast því að vera öfugu megin á veginum, það vill svo til að umferðarmenningin á Bretlandi er á háu stigi, mikil tillitsemi, bílum hleypt fram fyrir, aldrei sá ég neinn svína fyrir annan, þetta sýnir manni hversu mikið við gætum lært af öðrum hvað umferðina varðar. Það eru nánast hvergi umferðarljós, hins vegar er mikið um hringtorg, sem ég hef ekki verið svo hrifin af hingað til , en þau virka mjög vel þarna. Þess utan er allt vel merkt og þannig kemst maður alltaf þangað sem maður vill.
Sem sagt vel heppnuð ferð.

19.4.06

Gleðilegt SUMAR

hæ hæ
Mig langaði bara að óska ykkur gleðilegs sumars. Ég veit að sumir eru spenntir að prófa nýja hjólhýsið sitt í sumar. Ég er spennt yfir ferðalaginu mínu, á föstudag flýg ég til Glasgow. Ég gerist svo djörf að leigja bílaleigubíl fyrir vikuna og þarf því að læra að keyra öfugu megin. Ég verð reyndar hjá Lindu vinkonu minni en ég verð allavega að keyra frá flugvellinum til hennar..... Gvöð má vita hvernig það gengur hahahah.
Ég óska ykkur öllum gleðilegs og góðs sumars.

15.4.06

Páskakveðja

Sælar stelpur


Langaði að óska ykkur


Gleðilegra páska




Er á leiðinni út úr bænum á morgun þannig ég á örugglega eftir að gleyma þessu þá. Ég er að fara í sveitina til að læra, kem aftur í bæinn 24. apríl. Hlakka til að sjá ykkur.




Kveðja, Inga María

9.4.06

Apríl saumó

Ég verð í Glasgow 21-28 apríl, þannig að fyrir páska eða um páskana er kannski best. Líka vegna Ingu sem er í burtu vikuna eftir páska líka. Ég verð reyndar að vinna mán, þri og miðvikudagskvöld. Þannig að ég get ekki mætt fyrr en eftir kl 10 þau kvöld.
Hvað segir þú nú Ragga mín, ertu að finna tíma?
kv.
Auður

2.4.06

afmælin okkar

Inga er svo dugleg að setja upplýsingar á þessa síðu okkar. Nú eru afmælisdagarnir komnir inn, og ég verð að viðurkenna að ég hafði aldrei pælt í því fyrr að Inga er sú eina af okkur sem á afmæli ein. Þ.e.a.s. allar aðrar deila mánuði með einhverri. Svo Inga á enga afmælismánaðarsystur í saumaklúbbnum. uss verðum við ekki að bæta úr því og bæta einni við í klúbbin sem er fædd í júní líka hehe. Jæja Inga mín nú ert þú búin að sjá til þess að við sjáum á þessari síðu hvenær þú átt afmæli, sem er eins gott. Því undanfarið hefur þú sett inn afmæliskveðjur til allra, alltaf með allt á hreinu.

Ég var í Gullfoss í þessum norðangarra í dag, það var nú soldið kalt svo ég var svakalega happy með fóðruðu buxurnar mínar og almennt það að vera velklædd á meðan kanarnir voru svona frekar ílla klæddir á heildina litið. Eins og við segjum oft við þessa túr hesta, það er ekki til vont veður bara illa klætt fólk he he. Í næstu viku fæ ég svo nýju 66° peysuna mína með nafninu mínu ísaumuðu .