hæ hæ
Ég er komin aftur eftir skemmtilega ferð. Það var ekki svo mikið mál að venjast því að vera öfugu megin á veginum, það vill svo til að umferðarmenningin á Bretlandi er á háu stigi, mikil tillitsemi, bílum hleypt fram fyrir, aldrei sá ég neinn svína fyrir annan, þetta sýnir manni hversu mikið við gætum lært af öðrum hvað umferðina varðar. Það eru nánast hvergi umferðarljós, hins vegar er mikið um hringtorg, sem ég hef ekki verið svo hrifin af hingað til , en þau virka mjög vel þarna. Þess utan er allt vel merkt og þannig kemst maður alltaf þangað sem maður vill.
Sem sagt vel heppnuð ferð.
2 ummæli:
Velkomin heim aftur. Gaman að ferðin tókst vel og þú hefur ekki lent í neinum óhöppum í umferðinni ;) Ég er ekki viss um að ég myndi treysta mér í að keyra öfugu megin.
já velkomin heim gamla mín
Skrifa ummæli