4.5.06

Blönduós

Hæ hæ
Ég þarf að skreppa á Blönduós á morgun, legg af stað um 9 leitið til að vera mætt í atvinnuviðtal kl 12. Viðtalið er vegna starfs sem félagsmálastjóri á Blönduósi og Skagaströnd. Ég er á fullu við að stytta buxur og ermar (í höndunum) á buxnadragtinni sem ég keypti mér í Glasgow svo ég komi nú vel fyrir á morgun. Svo það er bara aldrei að vita nema að ég sé að flytja norður fljótlega. Sari mágkona mín kemur með mér svo mér leiðist ekki á leiðinni.
Annars hef ég aðrar fréttir að færa þegar næsti saumaklúbbur verður, bara svona til að vekja forvitnina hjá ykkur he he. Segi ekki neitt fyrr en ég hitti ykkur .
Ég talaði við Sirrý í gær og hún telur líklegt að það verði saumó í næstu viku. Hún á reyndar saumó í hinum klúbbnum líka í Maí svo það er slatti að gera hjá henni.
Mútta er í New York núna og fer til Flórída á morgun, svo ég get farið til Blönduóss á bílnum hennar, sem er mjög gott því ég er á hálf ónýtum dekkjum.
Bið að heilsa ykkur
kv.
Doppa

2 ummæli:

Inga María sagði...

Vona að allt hafi gengið að óskum. Þú ert búin að gera mig forvitna ;) hlakka til að hitta ykkur í næsta saumó... en plís ekki halda hann fyrr en á fimmtudag, vil ekki missa af fréttinni. Klára prófin á fimmtudaginn ;) Jey hlakka geðveikt til. See you girls.

Björk sagði...

vona að allt hafigengið vel hjá þér sjáumst sem fyrst