29.4.05

Gaman að sjá ykkur

Það var gaman að sjá ykkur og spennandi verður að fara með ykkur vestur.
kv.
Auður

25.4.05

júhú saumó

ég kem þó ég þurfi að vera soldið sein.
kv.
Auður

LOKSINS SAUMÓ

saumóinn verður á fimmtud vona að allir komist þá Inga María og Guðrún komast alla vega sjáumst kv Björk

LOKSINS SAUMÓ

Saumó hjá mér á föstudaginn
komist þið ekki ??
kv Björk

Sól, sól skín á mig .......

Hæ skvísur og Gleðilegt sumar
Ég var að reyna að komast inn á bloggið til að skrifa um daginn en netið var eitthvað fúlt út í mig því ég gat loggað mig inn en komst aldrei inn á síðuna okkar :(

Af mér er ágætt að frétta, búin að vera dugleg síðustu tvær helgar að fá mér aðeins í glas. Vorum í matarboði aðra helgina og hina fór ég og hitti ÓÓ konurnar (makar Óskabarna Óðins - mótorhjólaklúbb Eyþórs) og það var rosalega gaman. Nú tekur hinsvegar alvaran við því prófin byrja hjá mér á miðvikudaginn oohhhh. Mér leiðast próf. Planið er hinsvegar að vera búin í prófunum 10. maí og klára SÍÐASTA verkefnið fyrir 13. maí (það er svokallað heimapróf) helst fyrr.

Síðustu vikuna er ég búin að vera einstæð móðir því Eyþór kom rétt heim til að sofa og var svo farinn aftur kl. 8. Það var nefnilega verið að breyta búðinni hjá honum og það er búið að vera ekkert smá törn, vinna frá 8:30-23/24 eða lengur. Í gær var hinsvegar búðin opnuð aftur og ég er mjög spennt að fara á eftir og sjá breytinguna.

Nóg í bili, nú ætla ég að fara að einbeita mér að náminu, ég er búin að vera alltof dugleg að festast á netinu. Þetta er hræðilegt, má bara alls ekki hafa kveikt á tölvunni því þá er ég komin á flakk. Ég er hinsvegar að æfa mig í Excel þannig ég verð að hafa kveikt á tölvunni, verð bara að hafa smá sjálfsstjórn :) sem ég hef EKKI!!!!!. Ef ég er ekki á netinu þá er ég á kafi inn í ísskáp, ég kem eflaust rúllandi út úr prófunum, æææææ. Það verður eitthvað tekið á því í sumar. Oooohh ég hlakka svo til sumarsins, enginn skóli, ekkert verkefni, ekkert próf - bara gaman gaman. Ég væri sko alveg til í að skella mér til Spánar með ykkur dömur (Ragga og Bryndís) en það verður að bíða betri tíma. Bið að heilsa ykkur öllum.

Bæ í bili.
kv. Inga

21.4.05

SUMAR

GLEÐILEGT SUMAR KRÚTTIN MÍN :)
KV BJÖRK

18.4.05

saumó

hæ Auður ég var bara að sjá þetta núna sorrý
ég á að vera með í apríl en Ásta átti mars
ég held líklega í næstu viku þar sem það er afmælispartý og veisla á miðvikud og sunnud hjá Ásu
kv Björk
ps farið nú að skrifa meira það er svo gaman að fylgjast með :)

17.4.05

saumó

Ég hef ekki fengið nein viðbrögðsvo ekki verður neinn auka saumó í kvöld. Svo var verið að bjóða mér í mat í kvöld svo ég geri það frekar.
kv.
Auður

16.4.05

Lýst eftir Saumaklúbbi

Sælar elskurnar
Ég er að lýsa eftir saumaklúbbi, við höfum staðið okkur mjög ílla í þeim málum undanfarið.
Ég hef að vísu misst af nokkrum í vetur og líklega finnst mér þess vegna eins og þeir hafi verið færri en oft áður.
Ef þið hafið áhuga er ég til í að halda utandagskrár saumaklúbb á sunnudag, annað kvöld.
Bryndís mín, ég skoðaði myndirnar af Bergdísi á spítalanum, ósköp finnst mér það alltaf átakanlegt að sjá barn með umbúðir. Ég fæ alltaf sting í magann. Annars fór Birkir bróðursonur minn í svona aðgerðir á báðum höndum. Og þeir eru algjörir snillingar á spítalanum, maður sér ekki nein ummerki á honum í dag 15 ára.
kv.
Auður

12.4.05

hæ

hæ takk Björk
Já ég er heima hjá mér, ég fór aldrei úr íbúðinni. Mágur minn gisti hjá systur sinni og stelpurnar hjá annari frænku sinni sem á krakka á svipuðum aldri.
Svo allt fór vel, þau fara á miðvikudag.
kv.
Auður

11.4.05

Góðar Myndir

Góðar myndir Auður mín
ertu komin aftur í íbúðina þína?

kv Björk

6.4.05


Systur Posted by Hello

Mæðgur  Posted by Hello