16.4.05

Lýst eftir Saumaklúbbi

Sælar elskurnar
Ég er að lýsa eftir saumaklúbbi, við höfum staðið okkur mjög ílla í þeim málum undanfarið.
Ég hef að vísu misst af nokkrum í vetur og líklega finnst mér þess vegna eins og þeir hafi verið færri en oft áður.
Ef þið hafið áhuga er ég til í að halda utandagskrár saumaklúbb á sunnudag, annað kvöld.
Bryndís mín, ég skoðaði myndirnar af Bergdísi á spítalanum, ósköp finnst mér það alltaf átakanlegt að sjá barn með umbúðir. Ég fæ alltaf sting í magann. Annars fór Birkir bróðursonur minn í svona aðgerðir á báðum höndum. Og þeir eru algjörir snillingar á spítalanum, maður sér ekki nein ummerki á honum í dag 15 ára.
kv.
Auður

Engin ummæli: