24.10.06

Vetur brrr

Já það er kalt á norðurlandi í dag, og maður klæðir sig eftir veðri,fóðraðar buxur og sokkabuxur, takk fyrir. Ég er búin að panta tíma á verkstæði á morgun til að skipta um dekk. Nei ég er ekki búin að þrauka á sumardekkjum allt haustið heldur er ég á heilsársdekkjum en ég þori því ekki mikið lengur og fer á naglana á morgun.

12.10.06

Til Hamingju Inga María, Eyþór, Perla og Ólöf

Elsku Inga
Til hamingju með drenginn, sá hefur aldeilis verið að flýta sér í heiminn í gær. Ég óska ykkur fjölskyldunni alls hins besta og að þið hafið það gott.
kv. +
Auður

9.10.06

Saumaklúbburinn 13 ára


sælar stúlkur
Ég var að spjalla við Röggu í gær og rann upp fyrir okkur sú staðreynd að saumaklúbburinn okkar er kominn á fermingaraldur. Að því tilefni datt mér í hug að setja inn mynd af nokkrum af okkur frá upphafinu þegar við vorum að hvetja strákana áfram. Auk gestaleikara reyndar.... mikið rosalega er gaman að eiga skanna ha ha ha .... En sem sagt upphafið var í byrjun Maí '93!!!!
Bara ein spurning að lokum Hvar er bókin ????

5.10.06

Vírus í MSN

Sælar stelpur
Ég varð í fyrsta skipti vör við vírus sem dreifir sér með msn, þannig að ef að það er linkur á einhverja síðu frá einhverjum sem þið spjallið við á msn þá er best að spyrja viðkomandi fyrst hvort hann þekki linkinn. Ég fékk skilaboð frá mági mínum og frá frænku minni, þar sem stóð is that you on that foto og linkur á einhverja síðu. Mér fannst skrítið að fá texta á ensku frá honum og opnaði þetta ekki strax, fékk síðar viðvörun að um vírus hafi verið að ræða.

2.10.06

Bara smá röfl

Jæja mér líst bara vel á ykkur að drífa af sem flesta saumó núna, bara komið líf í okkur. Ég sit hér á skrifstofunni og bíð eftir að tölvurnar klári sín verk. Er að afrita eina og önnur er að kópera yfir á netið, á þá þriðju skrifa ég og sú fjórða er einkatölvan mín þar sem ég þurfti að ná í einkapóstinn minn. Haldiði að það sé, jæja það var allavega komin tími til að einhver hugsaði aðeins út í þessi tölvumál hérna, vinnustaðurinn í heildina er með 6 tölvur og af þeim voru 2 afritaðar daglega í mjög dýrri þjónustu við fyrirtæki á Akureyri. Hinar 4 voru aldrei afritaðar... svo er ekki almennileg vírusvörn á öllum bara sumum, og annað eftir því. Ég er sem sagt að vinna í þessu. Og verð að bíða eftir að þær klári þetta, ég nenni nú samt ekki að bíða til kl 19 eins og ein tölvan segir að þetta taki, það getur bara ekki verið. Ég fer kl 18....