Til hamingju með afmælið Bryndís. Vona að þú eigir góðan dag.
Afmæliskveðja,
Inga María
28.2.06
22.2.06
hvernig saumaklúbbar breytast
hæ hæ
ég rakst á eftirfarandi í blogginu hennar Nönnu Rögnvalds hjá Gestgjafanum og set hér inn til umhugsunar hehe.
"Þegar saumaklúbburinn minn fór að hittast fyrir meira en aldarfjórðungi töluðum við um stráka og djamm og námið. Það þróaðist fljótt yfir í óléttur og fæðingarsögur, vinnu, íbúðakaup, barnauppeldi, eldhúsinnréttingar, svo starfsframa, skilnaði, unglinga ... Núna tölum við um barnabörnin, gráu hárin, breytingarskeiðið, þvagleka, fjarsýni, lífeyrissparnað, elliheimili ...Við, miðaldra? Tjaaa ...Það er samt ekki hlegið neitt minna í saumaklúbbnum en áður. Meira ef eitthvað er.
dæsti Nanna"

21.2.06
H A L L Ó !
Sælar skvísur
Ætla nú bara svona rétt að láta heyra frá mér.
Af mér er allt ágætt að frétta, bara svolítið mikið að gera þessa dagana. Er að fara í próf á eftir, vona að mér gangi vel. Svona eru dagarnir hjá mér þessa stundina, verkefnaskil, próf, verkefnaskil o.s.frv.
Takk kærlega fyrir síðast, sumarbústaðaferðin. Það var rosalega gaman, kannski meiri afslöppun nú en oft áður (hjá mér a.m.k.). Hlakka til að hitta ykkur í næsta saumó, hvenær svo sem hann verður. Mér sýnist Guðrún eiga að halda í febrúar, held við verðum bara að láta dömuna vita af því - hún fylgist eflaust ekkert með á þessari síðu ;) Svo á ég að vera með í mars, styttist óðfluga í þann mánuð, úff hvað þetta líður hratt. Sjáumst pæjur, endilega hendið inn línu svona bara til að vita að þið eruð enn á lífi.
Ein spurning! Hvernig finnst ykkur lagið með Silvíu Nótt? Mér finnst það bara fínt, gaman að því. Þó fannst mér lagið sem Regína söng langlang best.

10.2.06
smá nafna bull
lesið þetta og lesið þá sérstaklega nöfnin hratt yfir og ekki vera að pæla í hvernig þau eru skrifuð heldur hvernig þið segið þau frekar hratt...útkoman er ansi skondin:)
Bekkjarafmælið
Ósk Ýr gekk rösklega með Branda Ara í afmælið til Egils Daða því hún var að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann. Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim.
Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf og Hreinn Bolli. Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum. Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni. Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar – “#%=$&/(=!z#$!/!=! Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín?
Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni. Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum. Hún var orðin alltof sein í afmælið
');
//-->
kveðja Bjork

9.2.06
Afmælisbarnið Björk
Innilega til hamingju með daginn. Vona að þú eigir góðan dag
Afmæliskveðja,
Inga María
Afmæliskveðja,
Inga María
7.2.06
Afmælisbarnið Ragga
Til hamingju með afmælið Ragga mín. Vona að þú eigir góðan dag.
Afmæliskveðja,
Inga María
Afmæliskveðja,
Inga María
6.2.06
Bókin?
hæ takk fyrir síðast, það var gaman hjá okkur í bústaðnum en ég er búin að fá nóg af Singstar fyrir mína parta og hlakka til að takast á við klassísku spilin næst. ;0)
Og svo hef ég hugsað mér að fækka áfengistegundunum sem ég tek með mér, verð kannski eingögnu með bjór næst, virkar greinilega best hehe miðað við ástandið á föstudeginum.
En jæja nóg um það, allt í einu flaug mér í hug spurningin um það hvar bókin góða væri niðurkomin?
Kannski væri ráð að glugga aðeins í hana ?
bið að heilsa ykkur og hlakka til að sjá ykkur allar fljótlega og þá sérstaklega afmælisbörn mánaðarins hmm Björk, Ragga og Bryndís.
kv. Doppa