21.2.06

H A L L Ó !

Sælar skvísur
Ætla nú bara svona rétt að láta heyra frá mér.
Af mér er allt ágætt að frétta, bara svolítið mikið að gera þessa dagana. Er að fara í próf á eftir, vona að mér gangi vel. Svona eru dagarnir hjá mér þessa stundina, verkefnaskil, próf, verkefnaskil o.s.frv.
Takk kærlega fyrir síðast, sumarbústaðaferðin. Það var rosalega gaman, kannski meiri afslöppun nú en oft áður (hjá mér a.m.k.). Hlakka til að hitta ykkur í næsta saumó, hvenær svo sem hann verður. Mér sýnist Guðrún eiga að halda í febrúar, held við verðum bara að láta dömuna vita af því - hún fylgist eflaust ekkert með á þessari síðu ;) Svo á ég að vera með í mars, styttist óðfluga í þann mánuð, úff hvað þetta líður hratt. Sjáumst pæjur, endilega hendið inn línu svona bara til að vita að þið eruð enn á lífi.

Ein spurning! Hvernig finnst ykkur lagið með Silvíu Nótt? Mér finnst það bara fínt, gaman að því. Þó fannst mér lagið sem Regína söng langlang best.

3 ummæli:

Doppa sagði...

hvað varð um allt dótið á spássíunni?

Inga María sagði...

Hvað meinarðu! Það er allt á sínum stað í minni tölvu a.m.k.

Doppa sagði...

það er allt komið aftur, veit ekki hvaða vesen var á blogger á tímabili en það er greininlega komið í lag ;0)