8.4.07

GLEÐILEGA PÁSKA

GLEÐILEGA PÁSKA
stelpur mínar vonandi hafið þið það gott og étið yfir ykkur af SÚKKULAÐI mmm.:)

annars allt gott að frétta hér!! en hjá ykkur

mér finnst reyndar að við ættum að biðja síðustjórann (Auði)
að setja upp nýja síðu það er allt of löng leið til að blogga núna og svo komast sumir ekki inn til að blogga sem er MJÖG slæmt
kv Björk

30.3.07

TIL HAMINGJU RAGGA

Til hamingju með "skilnaðinn" vil 11-11
og NÝJU VINNUNA gangi þér rosalega vel krútt
kv Björk

26.3.07

Sirrý afmælisbarn



Til hamingju með afmælið Sirrý mín og eigðu góðan dag.

Kær kveðja,
Inga María

23.3.07

I'm alive

Já það er eitthvað voðalega dauft yfir þessari síðu okkar.
Heyrðu við klikkuðum algjörlega á myndasýningunni hjá Sirrý - mikið rosalega er maður gleyminn - mundi bara alls ekkert eftir því. Ef ég man rétt þá var nú megintilgangurinn að hittast og fá slúður úr sumarbústaðaferðinni - hinn var náttúrulega að fá eitthvað góðgæti hjá Sirrý sem klikkaði að sjálfsögðu ekki. Takk fyrir mig Sirrý - geðveikt góð kaka. Slúðrið verður þá bara að vera næst, og bannað að gleyma því aftur. Björk þú verður að koma svo við gleymum þessu ekki.

Stelpur kíkja á þessa heimasíðu og láta spyrjast út. Eyþór og félagar eru búnir að vera að taka upp CD og þetta er hluti af afrakstrinum. Getið hlustað á 4 lög af CD á þessari síðu :)

22.3.07

Hvað er að skeeee ahah

jæja stelpur hvað er að frétta það er eins og þessi síða sé dauð eða hvað nei vonandi ekki
hvað var slúðrað hjá Sirrý ég missti af uppfræðið mig
þar sem ég var með einhvern skrítin svima (bara eins og að vera alltaf í því ) en er vonandi bráðum laus við þessa blessuðu kristalla úr miðeyranu sem hafa verið að pirra mig
Hvenær er saumó Ásta skásta HAHA
ég held ég ætti að fara að taka lyfin mín
sjáumst krútt
kv Björk

14.3.07

Til Hamingju með Afmælið Ásta

Til hamingju með afmælið Ásta

13.3.07

Vill einhver skipta á mánuði við mig ?

hæ hæ
Ég er ekki að sjá að mér takist að halda saumaklúbb í mars, hvorki á höfuðborgarsvæðinu né fyrir norðan. Er einhver sem vill skipta við mig?

bloggið sjálft

ég kýkti til að ath hvort að ekki væri öruggt að þið væruð allar inni ennþá, jú þið eruð það. Til að geta bloggað þurfið þið að stofna google reikning og skrá ykkur undir new blogger. Ég bara fussaði og stofnaði sjálfa mig með sama gamla emailinu mínu, jú jú ég get bloggað en ekki kommentað.
Ég sé að það er kominn nýr fítus í þessu nýja kerfi, það er hægt að loka lesningu á blogginu fyrir aðra en þá sem skrifa á það.
Ef við skiptum um kerfi þá er best að finna kerfi með svoleiðis fítus eða hvað ?
Ég vil ekki skipta um kerfi fyrr en við höfum reynt að skipta allar yfir í new blogger.
Ástæðan f. því að ég gerði það var að ég fékk ekkert val hjá kerfinu ef ég ætlaði að skrifa eitthvað inn.
p.s. Inga við erum allar skráðar admin og þá er það ekki bara ég sem get breytt hlutunum, það skiptir engu að ég stofnaði bloggið.

Vesen með þetta blogger dæmi

það er spurning hvort að við reynum að skipta allar yfir á nýjann blogger eða hvort að við leitum að nýju bloggkerfi?
Ásta var að kvarta í kommentum í mínu bloggi. En nú er ég ekki einvaldur hvað segið þið hvað viljið þið gera?
Ég sjálf get ekki kommentað en get komið hingað inn og skrifað.
Þetta er nú meira klúðrið