24.11.04

Jólin jólin jólin koma brátt :)

Smellið á linkinn. Aðeins að koma fólki í jólafílinginn.

FRÍTT spjall á netinu

Sælar
Þar sem þið eruð allar orðnar svo tæknivæddar þá setti ég inn link þar sem hægt er að ná í forrit til að geta spjallað saman frítt á netinu. Eina sem maður þarf að eiga er headset með mic. Ég er með þetta í tölvunni hjá mér og hef prufað þetta. Þetta er mjög sniðugt og kostar mann ekkert aukalega.

Ef þið hlaðið niður forritinu þá getið þið fundið okkur með því að fara inn í Tools - Search for skype users..... svo sláið þið bara inn notendanafnið okkar í Look for ..... Gæti ekki verið auðveldara. Notendanafnið okkar er ingaogeythor
kv. Inga María

21.11.04

STUÐMENN

jæja ég er vökvuð þetta var rosalegt stuð allavega skemmti ég mér mjög vel :)
takk fyrir kvöldið dúllurnar mínar vona að allir hafi skemmt sér vel Bryndís og Rúnar misstu af miklu
sjáumst hress
Björk
ps góðar myndir Auður

Jólahlaðborð

Ég þakka ykkur öllum fyrir skemmtilegt kvöld. Ég sé að ég er ekki sú eina sem er hvorki fyllri né þreittari en svo að hægt sé að skella sér í tölvuna og skrásetja kvöldið.
Myndirnar eru ekki í tímaröð og eru bara úrval sem ég valdi núna í augnarblikinu, til að ná andrúmsloftinu. Við skemmtum okkur vel eins og sjá má á myndunum.
Góða nótt dúllurnar mínar.
kv.
Auður
Og ég fékk líka að vera með á mynd Posted by Hello

Jólahlaðborðið

Við erum greinilega jafn húkt á tölvunni og þú Auður mín. Við sitjum hér og skemmtum okkur yfir myndunum. Takk fyrri frábært kvöld.
Kv. Inga María
Ásta, Mási og Guðrún  Posted by Hello
Einhver gæji sem stelpurnar löðuðu að sér á dansgólfinu.  Posted by Hello
Hópmynd seint að kvöldi Posted by Hello
sætar saman  Posted by Hello
á meðan að Dóri gerir ÞETTA!! Posted by Hello
Sirrý lifir sig inn í tónlistina Posted by Hello
Dóri þó þetta gerir maður ekki á Jólahlaðborði Posted by Hello
Björk og Dóri farin að leika sér að brauðinu  Posted by Hello

16.11.04

Til hamingju

Til hamingju Inga María og Eyþór frábært að vera búin að selja og kaupa þið eruð bara að verða vesturbæingar það er ekki slæmt :)
jóla hvað
mér finnst allt í lagi að heyra jólalög kanski af því að ég heyri svo lítið í útvarpinu núna (útvarpinu var nefnilega stolið úr bílnum ) þá pirrar þetta mig ekki. En það pirraði mig í fyrra en núna ætla ég að njóta jólanna án þess að vera í PRÓFUM yes...... svo við slettum nú á degi íslenskrar tungu til hamingju með daginn og reynum að vera góðar fyrirmyndir :) alltaf jákvæðar
kv Björk
ps. takk fyrir síðast

Íbúðamál

Takk fyrir síðast. Takk fyrir frábærar veitingar Björk.
Þetta virðist allt ætla að ganga upp hjá okkur :) Við seldum íbúðina okkar í dag, jess. Þá getur maður slakað á yfir því. Hæðin sem við erum að kaupa er um 139 fermetrar + 51 fermetra bílskúr. Við fáum afhent ekki seinna en 20. janúar og eigum að skila okkar 1. febrúar, þetta smellpassar allt saman.

15.11.04

snjór er engin afsökun

hæ á leiðinni heim frá Björk komst ég að því að sumum útvarpsstöðvum þykir ekki snemmt að byrja að spila jólalög 14 Nóvember. Er það ekki of snemmt, hvað finnst ykkur?? Mér finnst jólalegur snjór ekki vera næginleg afsökun fyrir þessu háttalagi
flottu nýju gardínurnar og nýji liturinn á veggjunum hjá Björk Posted by Hello
Saumó hjá Björk 14.11.2004 Posted by Hello

12.11.04

Saumó, partý, dekur og húsakaup :)

Vá það er naumast að allt hrúgast inn á sama tíma. Ég ætla að koma í saumó á sunnudaginn en því miður verð ég að segja pass við partýinu og dekrinu. Góða skemmtun í partýinu og látið nú fara vel um í ykkur í dekrinu.
Ég er hinsvegar með stórfréttir, a.m.k. í mínum augum. Við vorum að festa okkur hæð í Holtagerði í vesturbæ Kópavogs og við fáum afhent í janúar :) Ég ætlaði nú bara að tilkynna þetta í saumó en fyrst ég er byrjuð að skrifa hér í bloggið þá væri nú hálf asnalegt að láta þetta ósagt, ekki satt.
Sjáumst á sunnudaginn.

11.11.04

Partý

hæ hæ
þið eruð boðnar í stelpuparty á morgun hjá mér.
;0)
Auður

LOKSINS SAUMÓÓÓ

Hæ hvernig hentar sunnudagurinn 14. nóv (næsti) fyrir saumó eru þið ekki til í það ?
kv Björk

4.11.04

jólahlaðborð

jæja núna er ég búin að borga inn á reikninginn hennar Bryndísar
en það er nátttúrulega fúlt að þurfa að hafa lýðræði en ég vona að þið komist á ballið Bryndís og Rúnar :)
þetta verður örugglega fjör hjá okkur
ég verð greinilega að drýfa mig að halda saumaklúbb ég læt ykkur vita vonandi mjög bráðlega
Inga geymdu bara minn pening þangað til næst það gengur greinilega hægt að safna hjá mér :)
það er rosalega gaman í nýju vinnunni minni og bara mjög notalegur staður
ég ákvað að fara á annað leikfimi námskeið sem byrjaði á síðasta mánudag og ætla að reyna að taka restina af skvapinu af mér
annar hefur gengið ágætlega
ég finn það að ég er ekki nóg í tölvunni komin úr allri æfingu við að pikka
jæja við sjáumst kv Björk

synd en svona er hjónabandið !

jæja Ali virðist hreinlega elta dagsetningarnar okkar uppi, skyldu þeir hlera saumaklúbbana hi hi.
Við munum náttúrulega sakna ykkar en þetta er bara svona, nú svo er ekki útilokað að þið gætuð mætt á ballið eftir hlaðborðið ef aðstæður leyfa. ;0)
Mig er farið að langa í saumaklúbb, im soooo lonly :-(
Ausa

3.11.04

greitt

hæ hæ
Bryndís, ég vona að það sé ekkert alvarlegt sem veldur því að þú komist ekki, frekar eitthvað skemmtilegt.
Ég er búin að greiða minn hluta og er þá búin með spariféð!!
kv.
Auður

: )

Bara að rifja upp hverjar eiga að halda næstu saumaklúbba
Björk er með nóvember og Guðrún með desember.