Vá það er naumast að allt hrúgast inn á sama tíma. Ég ætla að koma í saumó á sunnudaginn en því miður verð ég að segja pass við partýinu og dekrinu. Góða skemmtun í partýinu og látið nú fara vel um í ykkur í dekrinu.
Ég er hinsvegar með stórfréttir, a.m.k. í mínum augum. Við vorum að festa okkur hæð í Holtagerði í vesturbæ Kópavogs og við fáum afhent í janúar :) Ég ætlaði nú bara að tilkynna þetta í saumó en fyrst ég er byrjuð að skrifa hér í bloggið þá væri nú hálf asnalegt að láta þetta ósagt, ekki satt.
Sjáumst á sunnudaginn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli