9.1.04

Ja... veit nú ekki hvað verður um dugnaðinn á þessum bæ.... hann virðist alltaf láta bíða eftir sér. Ég geri bókstaflega ekkert annað en að borða eitthvað óholt þessa dagana. Er með mikið æði fyrir svona útlenskt muffins sem er keypt í Nettó umm.... voðalega gott með kaffi. Einnig er rosalega góð súkkulaðieftirréttur sem við bökum stundum á þessum bæ... mikið gert af því þessa dagana og borðað að kvöldi til með ís namm.... namm... Svo á ég frosið eplapæ sem ég stelst nú í öðru hvoru, átti sko að vera fyrir gesti en ég gat bara ekki staðist að smakka smá á henni. Já og ekki má gleyma Sörunum.... þær eru ótrúlega góðar með pilsner þegar verið er að horfa á sjónóið.

Jæja sé nú að það þarf eitthvað að breytast á þessum bæ, veit ekki hvort viljinn sé til staðar.

Kv, Sirrý

Engin ummæli: