14.1.04

Sælar.
Ég er mjög hrifin af hugmyndinni hennar Guðrúnar. Ég er til hvenær sem er nema næstu helgi þá er ég og Eyþór á förum í frí í sumarbústað :) heitur pottur og góður matur, nammi namm. Ég hlakka einnig mikið til okkar árlega húsmæðraorlofs - það er svo meiriháttar, borða, drekka, sofa, spila, lesa, oooohhh þetta er alveg æðisleg skemmtun og afslöppun.
Til hamingju Björk með hana Ásu, þú hlýtur að vera rosalega stolt af henni.
Elsku Auður mín ég vona að þér fari nú bráðum að batna, ekkert er eins leiðinlegt og að vera veikur.
Nú er skólinn kominn nánast á fullt hjá mér, reyndar eftir að fá að vita hvernær dæmatímarnir verða, ég vona að þeir verði ekki á laugardögum eins og síðustu önn en það er örugglega mikil bjartsýni hjá mér.
Inga María

Engin ummæli: