Loksins kom sólin!!!!
Ég er búin að vera vinna sem moldvarpa í allt sumar, reita arfa og reita arfa og reita arfa svo eitthvað sé nefnt. Það er búið að vera gaman en nú er ég alveg farin að þrá smá frí. Ég fer í 2ja vikna frí föstudaginn 29. júlí og ætlum við að fara í sumarbústað á Flúðum í viku og svo ætlum við Eyþór að skella okkur til Danmerkur í fertugsafmæli og fara svo yfir til Þýskalands á U2 tónleika ásamt því að heimsækja bróður hans þar. Ég er eins og litlu börnin að deyja úr spenningi. Ég og Eyþór ásamt 11.000 íslendingum skelltum okkur á Duran Duran tónleika um daginn og mikið rosalega var gaman.
Vona að allt sé fínt að frétta af ykkur og ég held saumó um leið og ég get en sorry það er allt á hvolfi hér heima eins og er þannig ég get ekki boðið í saumó strax.
bæ í bili, ætla út í sólina meðan hún er.
kv. Inga
Engin ummæli:
Skrifa ummæli