29.5.05

Sumar og sól

Hæ hæ.

Þetta eru allt frábærar hugmyndir hjá Auði og ég er sko meira en til í að gera eitthvað af þessu í sumar. Ég var hinsvegar fyrst að kíkja á síðuna okkar í dag og ég hefði hvort er ekki getað þetta um helgina. Við fórum í Selvoginn í gær og erum tiltölulega nýkomin heim núna. Við slepptum Gerplusýningunni þetta árið þar sem stelpunum langaði mikið frekar á vorhátíð Kársnesskóla og Vesturbæjar Kópavogs. Það var heldur ekkert sérstakt sem Perla átti að gera - hennar hópur átti að sýna einhver stökk á dýni en enginn sérstakur dans þetta árið þannig ég ákvað að það hlyti að vera í lagi, hún hefur líka alltaf mætt sl. ár.

Ég byrjaði síðasta mánudag að vinna og það er búið að vera svo mikil sól að ég veit ekki hversu mikið andlitið mitt þolið í viðbót, það verður bara sólarvörn nr 25 notuð það sem eftir er og Aloe Vera gel eftir á. Við erum búin að vera að reita arfa og moka fyrir görðunum og svo byrjar gróðursetningin á fimmtudaginn og ég sé fram á mjög fínt sumar :) Ef þið eigið leið framhjá skólagörðunum við Urðabraut (fyrir neðan Rútstún) þá megið þið endilega kíkja við, það verður bara gaman að sjá ykkur :) (samt ekki milli kl. 12-13).
Kær kveðja,
Inga

Engin ummæli: