Sælar stúlkur
Ég vona að þið finnið ykkur allar eitthvað skemmtilegt að gera þessa helgina. Ég veit að Björk og Ása fara til Köben. Ragga heppna og fjölskylda hennar komust aftur af stað með nýjan bíl og nýtt hjólhýsi, þau eru örugglega í einhverri útilegu þessa helgi.
Hvað með ykkur hinar ?
Ég er fárveik, með kinnholubólgur, hósta, smá hita, eyrnabólgu og vesen, er að rembast við að mæta í vinnuna en held að ég ætti bara að fara heim. Stefni á að vera nógu hress til að fara í bæinn á morgun, ég geri ekkert gagn hérna.
Ég ætlaði að eyða helginni í bænum, og fljúga svo út til Króatíu á miðvikudag.
Ég kem aftur 16 ágúst, kannski við förum að hittast eitthvað fljótlega.
kv.
Auður
p.s. í blogginu mínu gleymdi ég að minnast á heimsóknina frá Bryndísi og fjölskyldu, þar sem við hittumst og fengum okkur ís á Essóstöðinni á Blönduósi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli