Til hamingju með að vera búin í prófunum Inga.
Ef þið eruð að spá í að halda saumaklúbb um helgina er ég til hmmm. Látum okkur nú sjá hverjar eiga eftir að halda saumaklúbb á árinu, við höfum staðið okkur álíka ílla og í fyrra held ég.
Núna vantar upp á - maí= Sirrý , Júní= Ég, Júlí = Frí, Ágúst = Ásta og næst er svo Björk í september.
Ég verð að segja sjálfrar mín vegna að ég reyndi að halda saumaklúbb, það bara vildi engin ykkar koma norður til mín í Júní. Ég spurði hérna á blogginu hvenær þið hefðuð tíma og engin virtist hafa það.
En jæja ég kem í bæinn á morgun ef þér skyldi detta í hug að halda saumaklúbb um helgina Ásta.
Í september veit ég ekki enn hvort ég verði í bænum allar helgar, það eina sem ég veit er að ég er að fara á námstefnu í bænum 8 september og þarf þá að fara í bæinn 7 sept, það er eina fimmtudagskvöldið sem ég get mætt.
1 ummæli:
Takk fyrir það Auður, ég er ekkert smá fegin að vera búin með þennan horror. Gekk alveg ágætlega, held ég.
Ég held að Ásta sé að fara norður í afmæli um helgina þannig hún heldur eflaust ekki saumó þessa helgi...
Skrifa ummæli