30.11.05
Í tilefni jólaundirbúningsins
Ég var að spjalla við kunningjakonu mína um daginn um jólagjafastressið og þá kom fram sú hugmynd að endurvinna gjafir. Þ.e.a.s. að nýta eigin gjafir sem henta manni sjálfum ekki endilega, í gjafir handa öðrum. Stundum hentar það ágætlega þegar ættingjar þekkja mann kannski ekki næginlega til að vita hvernig smekkurinn er og annar ættingi hefur kannski þann smekk sem aðrir halda að maður hafi sjálfur. En það verður að fara varlega og fólkið má ekki þekkjast of vel svo ekki komist upp um mann. Frétti ég af konu sem vanalega sendi tengdamömmu gjöfina sem mágkonan sendi henni og öfugt. Mágkonan og tengdamamman töluðust hvort eð er ekki við. Eitt árið var hún hins vegar að flýta sér og hafði pakkað inn gjöfunum á nýtt og víxlaði þeim óvart. Þannig að dömurnar fengu aftur það sem þær höfðu gefið henni. Sem sagt það er sælla að gefa en þiggja he he.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli