14.11.05

takk fyrir komuna

Já það varð lítið úr verki í gær verð ég að viðurkenna, maður er ekki eins fljótur að ná sér eins og á yngri árum. Ég fann undarlegan marblett á upphandleggnum og man ekki til þess að hafa rekið mig í. Hmmm
Ég hitti Dóra áðan hann hló bara þegar ég spurðist fyrir um líðan Sirrýar. Vonandi finnur hann pössun og kemst á föstudaginn til Guðrúnar. Ég steingleymdi að taka myndir, mér skilst að einhver hafi tekið myndir af einhverjum undarlegum stellingum á meðan ég var á baðinu eða í eldhúsinu. Endilega sendið mér myndir ef þið tókuð einhverjar.
Hlakka til að sjá ykkur næst
kv.
Doppa

Engin ummæli: