12.9.05

takk fyrir síðast

Ég er nú bara að rita nokkur orð því við skrifum svo lítið hérna.
Takk fyrir síðast hjá Ingu á föstudagskvöld, Ragga, Bryndís, Ásta, Guðrún og Inga.
Ég geri ráð fyrir að restin hafi verið upptekin, en þetta var akkúrat það sem ég þurfti þetta kvöld, komast aðeins út og kjafta. Hangi alltof mikið ein heima yfir sjónvarpinu. Ég þarf að stunda einhverkonar félagslíf. Vonandi hefur veiðiferðin haft einhvern árangur hjá Eyþóri, fékkstu kannski eitthvað í soðið Inga.
Bið að heilsa ykkur
bless
Auður

Engin ummæli: