Hæ. Takk fyrir síðast. Ég sem átti hreinlega ekki vona á að neinn myndi koma þar sem ég hafði ekki heyrt frá neinum þá kom mér þetta mjög skemmtilega á óvart hvað margar komu. Mér fannst rosalega gaman að sjá ykkur. Það lá við að ég væri hálf þunn daginn eftir enda er ég ekki í mikilli þjálfun þó svo ég hafi ekki innbirgt mikið að mínu mati, hef nú stundum innbirgt mun meira magn af öli (eins og einn kassa eða svo ;) Ég skulda þó enn Júní saumó og kannski reyni ég að hafa hann í lok september eða byrjun október.
Eyþór náði að veiða einn fisk :) og þetta var rosalega gaman hjá þeim, kannski eitthvað álíka og húsmæðraorlofið okkar, ekki er það nú leiðinlegt. Ég hlakka mikið til næstu ferðar hjá okkur og ætli ég reyni ekki að toppa sjálfa mig í næstu ferð ;) tek kannski bara tvo kassa með mér næst.
Heyrumst vonandi fljótlega.
Kv. Inga
Engin ummæli:
Skrifa ummæli