2.10.05

message to barbie

hæ hæ
Það er barasta engin hreyfing hérna á þessari síðu hvað svo sem maður gerir til að hrista upp í ykkur. Nú jæja það er alltaf skemmtilegast að hittast, og nú er september liðinn og enginn saumó eða hvað ??
Barbie las á blogginu mínu um klippinguna mína og er svo forvitin að hún vill sjá mynd. Núna neita ég bara alfarið að setja mynd inn, ég verð að halda spennunni. (þ.e.a.s. spenning ekki hárspennu he he) Svo að við hittumst kannski fljótlega, ef einhver er að drepast úr spennu eða forvitni. Ég skipti nú ekki svo oft um hárstíl eða hvað.
Hvað segði þið um það að fara að hittast hver var næst með saumó, Sirrý eða hvað allavega er ég farin að sakna þín alveg ægilega Sirrý mín mér finnst eins og það sé komið heilt ár síðan ég sá þig síðast.
kv.
Doppa

Engin ummæli: