ég rakst á eftirfarandi pistil á einhverju bloggi og fannst afskaplega fyndið.
"Nú er til dæmis hægt að setja saman fullt af íþróttastjörnum: Ríó Ferdinand, Edvin Móses, Martin Max, og Patrik Bergur, eða tónlistarhetjur á borði við Lars Ulrich, Þorra Amos og Marvin Geir. Ekki má gleyma kvikmyndastjörnum svo sem Richard Príor og Alexíus Baldwin. Fyrir matarspekinga vil ég benda á Parmes Andra, og drykkjumenn, Per Nóa. Allt nöfn úr mannanafnaskrá. Eitt af nýju nöfnunum er Elvin en það hlýtur að vera prentvilla og á örugglega að vera Elvis, kónginum til heiðurs sjötugum.Atlas Tindur og Sigur Bogi eru nýjungar, en möguleikarnir eru endalausir og ekki lengur bundnir við Leif Arnar og Brand Ara. Ég nefni nokkur nöfn til hagræðis fyrir nýorðna og verðandi foreldra sveinbarna: Ögri Fólki og Þjálfi Víðar (hefði passað á Gauja Þórðar), Mars Ari (fyrir dansáhugamenn), Ölver Loki (fyrir bindindispostula), Beitir Vopni og Kaldi Karl (fyrir handrukkara), Hafnar Brimi (fyrir sjómenn), Haki Skafti (fyrir grafara), Dan Kort (fyrir verslunarmenn), Hjarnar Viðar og Saxi Lýtingur (fyrir lækna), Skefill Skeggi (fyrir rakara), Gerðar Dómald (fyrir samningamenn), Ómi Hreinn (fyrir tónlistarmenn), Hraunar Bolli (fyrir jarðfræðinga), Búi Engill (fyrir presta), Skíði Skúta (fyrir útivistarfólk), Neptúnus Geisli (fyrir stjörnufræðinga), Finn Ástvin (fyrir björgunarsveitarmenn), Stormur Austar (fyrir veðurfræðinga) Gutti Heimir (fyrir aðdáendur Stefáns Jónssonar) og loks Viðar Brestir (fyrir smiði). Löggild drengjanöfn alltsaman.Oft hef ég varið stúlkunafnið Kría sem sumum finnst fáránlegt en mér alls ekki. Það er samt hægt að leika sér með þetta og búa til samsetningar að gamni sínu, en ekki rakst ég á kunnugleg nöfn úr erlendum íþróttum, menningu og listum við lauslega athugun á stúlknanöfnunum.Menn þekkja núorðið fjölda dæma um skemmtilegar samsetningar, Líf Vera, Björt Nótt og þess háttar og því e.t.v. í bakkafullan læk að bera. En stundum virðist eins og heildarhljómur og merking samsetningarinnar gleymist: t.d. Von Dara, Agna Rögn, eða Odda Tala (fyrir stærðfræðinga), Mýra Borg, Brák Arey eða Snorra Þula (fyrir Borgfirðinga og Mýramenn), Vanda Málfríður (fyrir sálfræðinga), Munda Boga (fyrir veiðimenn), Birta Mörk (fyrir íþróttafréttamenn), Tea Sía, Sólbrún Bera, Karla Þrá, Gógó Mey, Sölva Tína, Selja Sigdóra, Rán Dýrborg, Ylja Rún, Njóla Þúfa. Nú er nóg komið en allt beint úr skránni."
1 ummæli:
Þetta er fyndið, hahaha... Hafði gaman af að lesa.
Skrifa ummæli