Hæ aftur!
Loksins er ég aftur komin með aðgang að blogginu eftir langt hlé. Takk Inga mín fyrir að redda mér.
Sorrý stelpur að ég hélt ekki saumó í september, hafði því miður bara alls ekki hugmynd að það væri minn mánuður. Eflaust hefur einhver gaukað þeim upplýsingum að mér en þær hafa þá bara ráfað eitthvað í burtu.
Á ég ekki bara að halda saumó fljótlega? Ég er alveg til í að skella einum svona inn á milli ef þið eruð til í að kíkja á Skagann.
Bæjó,
Sirrý
1 ummæli:
Ekki málið Sirrý mín :) Gott að sjá þig aftur á blogginu.
Já endilega skelltu einum saumó inn á milli, fínt að hafa afsökun til að sleppa frá bókunum við og við.
Skrifa ummæli