Hæ
Loksins ætla ég að standa við að skrifa upp einhverjar 5 staðreyndir um mig. Ég ætlaði reyndar að gera það á föstudaginn en þá voru einhverjar viðgerðir á blogger.is þannig ekki tókst það þá svo einhvernveginn dróst þetta, skil ekkert í þessu ;)
1. Ég fór á tvenna tónleika í sumar, U2 og Duran Duran og er rosalega ánægð með að hafa drifið mig :)
2. Ég er algjör bruðlari, er algjör snillingur að eyða í ekki neitt!
3. Ég hlakka alltaf til húsmæðraorlofsins með saumó því ég elska að borða, drekka, slappa af í góðra vina hópi :)
4. Ég fékk hestadellu þegar ég var smápæja og hef hana ennþá. Ég á þó ekki hest en ætla að bæta úr því eftir nokkur ár því þá er stefnt á að kaupa hest :)
5. Ég er með algjöra kóngulóafóbíu, finnst þær ógeðslegar.
Jæja þetta hafðist en ekki er nú hugmyndaflugið öflugt. Nú skora ég á ykkur hinar að koma með nokkrar staðreyndir um ykkur stelpur, þið hafið nú eflaust meira hugmyndaflug en ég. Ég set á heimasíðuna mína hverja ég klukkaði :)
*** Saumó ***
Ég var að spá í þetta með saumó, hvernig líst ykkur á saumó næsta þriðjudagskvöld hjá mér? Ég verð eiginlega bara ákveða einhvern dag því annars dreg ég þetta örugglega fram á næsta ár, nei djók. Endilega látið mig vita, ég sendi svo SMS fljótlega ef ég fæ engin viðbrögð ;)
Er orðin mjög spennt að sjá nýju klippingarnar, kannski fleiri en Doppa og Barbie hafi átt eitthvað við hárið á sér.
Kv. Inga
Engin ummæli:
Skrifa ummæli