Hæ stelpur
Ég á víst að halda saumó í mars og ætla að standa við það :) Ég býst samt við því að ég haldi hann seinni partinn í mars, kannski í næst síðustu eða síðustu vikunni - það er svolítið mikið að gera þessa dagana. Guðrún fær þá tækifæri til að halda febrúarsaumóinn sinn áður ;)
Ég sendi henni SMS um daginn þannig hún veit að hún átti febrúar. Endilega ef þið heyrið í henni minnið hana á þetta ef hún skyldi vera búin að gleyma.
Eitt finnst mér skrítið ég sé ekki síðustu færsluna á netinu frá Björk, sé hana bara þar sem við búum til nýtt skjal, furðulegt.
Bæ í bili
Engin ummæli:
Skrifa ummæli