hæ hæ
Ég er að fara í gegnum allar gömlu ljósmyndirnar mínar og raða inn í albúm. Mér flaug í hug að það gæti verið góð hugmynd að skanna inn allar flimurnar mínar til að eiga allt á stafrænu formi. Ég kaupi mér þá auka harðann disk (útværan) fyrir afrit svo að allt sé öruggt. En ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta hér er sú að ég ætlaði að athuga hvort einhver af ykkur hefur aðgang að slíkum skanner, eða viti hvort hægt sé að leigja svoleiðis, því það er aðeins of dýrt að kaupa þetta fyrir þetta eingöngu, maður notar skanna svo sjaldan.
Hvað segja tölvufræðingarnir okkar, Bryndís og Inga?
kv.
2 ummæli:
Já sjálfsagt er hægt að fá þetta fyrir minni pening í dag en fyrir nokkrum áruim, og eflaust í mörgum mismunandi verðflokkum, ég efast hins vegar um tilganginn með að kaupa tæki sem þetta fyrir svona takmarkaða notkun, maður þarf svo sjaldan á skanna að halda á venjulegu heimili. Það var það sem ég var að hugsa og spurði þess vegna hvort þið hefðuð einhverja hugmynd um leigu eða e-ð svoleiðis. Já ég er hrædd um að ég borgi Hans Petersen ekki fyrir að fá þetta skannað þar, það kostar allt of mikið.
Ég hef því miður engan aðgang að slíku tæki og hef enga hugmynd um hvort hægt sé að leigja slíkt. Sorry, engin hjálp í mér.
Skrifa ummæli