Eftir nákvæmlega 1 viku erum við í svaka stuði í sumarbústaðnum.
Ég ætla að skrifa hérna smá lista yfir það sem ég man eftir að við þurfum að ákveða eða taka með, svona smá brainstorming þar til við hittumst næst.
- Bílar :Ég get verið á bíl ekkert mál, en hins vegar er hann frekar lítill og rúmar ekki mikið, svo er spurningin um færð, þó ég hafi ekki fest mig neitt eða lennt í neinu í færðinni í bænum undanfarið þá eru stærri bílarnir nú betri í vondri færð í svona ferð. Nú plássið þarf ekki að vera vandmál ef við getum sett farangur í einhvern hinna bílanna og ef við erum samferða þá ætti færðin ekki að vera vandamál heldur.
- Matur: Við vorum búnar að ákveða að Guðrún sjái um laugardagsmatinn, en þarf ekki einhver að fara með henni að versla, ég býð mig fram sem hjálparkokkur Guðrúnar og væri alveg til í að fara með að versla.
- Meiri matur: Föstudagssmáréttirnir, snakk, snarl, nammi, hver gerir hvað?
- Spil: Ok, hvaða spil á að taka með, hver á hvaða spil? Hvaða spil hafa verið skemmtilegust í gegnum tíðina? Klassíkin er náttúrulega pictionary, sequence, trivial og einhver fleiri sem ég man ekki eftir í augnarblikinu. Mér fannst líka mjög gaman að fumbulfambli hérna einu sinni. Ég á trivial, pictionary(á ensku hehe), yatsy, rummikubb og venjulegann stokk náttúrulega. Einhver minntist á sing star, en varla fer einhver ykkar að taka ps af börnunum í heila helgi. Hvað dettur ykkur í hug?
- Tónlist: tónlistarsmekkur okkar er fjölbreyttur engin ein getur átt tónlist sem hentar okkur öllum, ætti þá ekki hver og ein að taka með sér nokkra af sínum uppáhalds, svo gætum við skipst á sem plötusnúðar, t.d. fengi Sirrý ákveðinn klukkutíma, Inga annan og næsta enn annan?? Bara svona smá hugmynd, og einmitt, Inga ég er með diskana þína á borðinu við útidyrnar svo ég ætti að muna eftir þeim næst þegar við hittumst.
- ýmislegt smálegt: kaffi, kaffifilter, mjólk/ sykur í kaffið, tuskur, diskaþurrkur, plastpoka (stóra og litla), servéttur/eldhúspappír, kerti, ísmolar
- Muna að taka með: sængurföt, sundföt, nærföt, náttföt, hlý föt (fyrir árlega göngutúrinn hehehe) handklæði, eyrnatappa, tannbursta, hárbursta, sokka, myndavél, áfengi, morgunmat, drykki, lestrarefni sem maður hefur engann tíma til að lesa, handavinnu sem maður nær ekki að gera neitt við, góða skapið!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
3 ummæli:
Ég skal taka Sequence. Ég get hugsanlega verið á bíl (er með ágætlega stórt skott sem hægt er að troða í). Höfum við ekki sl. ár keypt nammi og snakk bara í sameinlegu innkaupunum :) sem og brauð og smá álegg, mjólk og eitthvað fleira gotterí? Mjög þægilegt. Ég get tekið kaffi + filter og sykur (notar e-r sykur?) + klakapoka sem og aðra poka.
Auður þú ert svo skipulögð flott hjá þér
síðast var allt verslað í einu morgun matur og allt nema náttl.. brennivínið það var mjög huggulegt
ég er orðin mjög spennt það verður stuð hjá okkur
Ragga hvernig gengur með verkefnið? er ekki bara málið að láta Dóra gera þetta honum gekk svo fjandi vel HAHA djók
sjáumst hressar Björk
það er rétti andinn
maður á alltaf að nota mannauðinn
kv Björk
Skrifa ummæli