17.8.04

hey hey

Gaman gaman, ég er strax farin að spá í hvað ég eigi að hafa í mínum saumó.
Nú og svo má ekki gleyma að 1 saumó datt út fyrr í sumar blink blink ;0) . Nú og svo bíð ég allavega enn eftir partýinu hennar Bjarkar, blink blink ;0) .
Sjáumst fljótlega
Auður

4.8.04

Saumó

Það verður saumó á föstudaginn hjá mér kl. 20.30.
Kv. Inga María

3.8.04

Saumó

Hæ
Björk ég er búin að heyra/fá SMS frá flestum en ekki þó öllum. Ég ætla að heyra í þeim sem ég á eftir að heyra í í dag og læt ykkur svo vita. Ef fleiri komast á fimmtudeginum þá skiptir það ekki máli fyrir mig en ég læt ykkur vita.
Kv. Inga María.

2.8.04

saumaklúbbur

hæ hæ
Inga hefur þú ekki fengið nein viðbrögð við saumaklúbbnum ?
það er betra fyrir mig á fimmtudaginn en ég kemst líklega samt á föstudaginn :)
vonandi fer þetta að koma í ljós
jæja eru ekki allir búnir að hafa það gott í sumar ég er búin að vera ein heima í 3 vikur og er búin að mála stofuna og ganginn ekkert farið í útilegu og ekkert á djammið:( það er nú alveg komin tími á það en ég fór reyndar til svíþjóðar í 10 daga með fótboltastelpunum að sjálfsögðu það var alveg ágætt en mér fannst reyndar mjög skrítið að þjálfarinn var að drekka í ferðinni mér finnst maður geta bara sleppt því ef maður er með unglinga eða börn á sínum vegum og þjálfarinn er enginn unglingur heldur virðulegur íþróttakennari eða hann heldur það
jæja bæ bæ við hittumst vonandi í vikunni hjá Ingu
kv Björk

28.7.04

Afmæliskveðja

Til hamingju með börnin Ragga og Bryndís
Kveðja úr Engihjallanum

Saumó í ágúst

Sælar skvísur.
Það er greinilegt að það er sumarfrí í skriftum hjá okkur :)  Ég vona að allir hafi haft það gott í sumar.  Ég er búin að vera að djöflast í vinnunni en nú fer að koma að vinnulokum, vinn bara út júlí.  Þá kemur aftur að próflestrinum :(  fer í 3 próf seinni partinn í ágúst.  Við ætlum svo að skella okkur familian til Danmerkur eftir prófin 26. ágúst - 7. september og hafa það notalegt.  Eyþór fer á mótorhjólamót fyrstu helgina í september á Jótlandi og þar sem ég var ekki alveg til í að sleppa honum einum út þá ákváðum við að skella okkur öll saman og stelpurnar eru að deyja úr spenningi.
Við höfum verið að skella okkur í Selvoginn nokkrar helgar í sumar og hafa það bara fínt.  Ætlum einmitt að skella okkur þangað næstu helgi.  Ef þið eruð ekkert að fara og langar að kíkja á okkur þá er það meira en velkomið :) það verður bara gaman að sjá ykkur. 
******
Ég var hinsvegar að spá í að fara að plana saumaklúbb þar sem ég á að vera með saumó í ágúst.  Var að spá í fimmtudag eða föstudag í næstu viku þ.e. 5. eða 6. ágúst.  Endilega látið mig vita hvor dagurinn er betri, skiptir engu fyrir mig, þ.v. einhver annar dagur í vikunni ef það hentar betur, ég er hinsvegar upptekin á laugardagskvöldið 7. ágúst. 
Kær kveðja,
Inga María

19.7.04

Sól, sumar og bruni

hæhæ
Já Ragga það virðist vera að flestir séu í fríi, ég kom við á Arnarstapa í gær og brann líka.
Ég var að vinna í gær með skipafarþega í Snæfellsneshring. Þú hefur eflaust tekið eftir því að það komu margar rútur í einu í gær. Þar var ég, og á smá göngutúr á Arnarstapa brann ég, það var líklega endurspeglunin af sjónum. Þetta var 5 tíma ferð með túrista og vorum við í 14 tíma á ferðinni til þess. Fram og til baka frá Rvk og bið í Grundarfirði eftir skipinu. Jæja það er 25% álag á sunnudögum, sem sagt ætti að fá ágætt úr þessum degi.
Bið að heilsa kv.
Auður

9.7.04

veikindi

Jæja dúllurnar mínar
Ásta ég vona að drengirnir hafi náð sér, þetta hljómaði ekki vel hjá þeim. Þ.e.a.s hjá Vigni.
Ég er sjálf búin að vera veik í viku, var í hringferð með austurríkismenn og þurfti að halda mér gangandi þrátt fyrir hita.
Ég fékk fúkkalyf hjá lækni í dag, er með bólgur í ennis- og kinnholunum. Aftur, var seinast í Mars. Óþolandi er þetta....
kv.
Auður
p.s. hvenær er saumó?

29.6.04

comments

Nú er líka hægt að setja inn athugasemdir við hvaða texta sem er án þess að vera loggaður inn. Hver sem fer inn á síðuna www.valkyrjur.blogspot.com getur þá skrifað komment.
kv.
Auður

Hér er fyrirsögnin

Jæja hvernig finnst ykkur þetta vera svona útlítandi?
Svo setur maður link inn í texta fyrirsagnarinnar með því að setja netfangið í þá eyðu.

Auður
Sælar elskurnar
Ég eyddi út þessum endurtekna texta Björk, svo að þú þarft ekkert að skammast þín fyrir þetta lengur hi hi.
Ég verð ekki í bænum 1-7 júlí, verð á ferðalagi með austurríkismenn.
Ég er svo þreytt núna, ég hlýt að hafa stundað einhverja svaka vinnu í nótt, því ekki hvíldist ég á svefninum.
Það væri gaman ef við hittumst e-ð bráðlega.
Ég geri kannski nokkrar breytingar hérna á síðunni. T.d. fyrirsögn, þá byrjar maður á því að setja fyrirsögn yfir textann sem maður er að skrifa.
kv.
Auður

27.6.04

hæhæ
ég fékk í magann þegar þú sagðir amma ég hélt að það væri Elva Brá en það verður gaman fyrir þig að æfa þig á ömmu hlutverkinu en samt gott að það er ekki Elva Brá!!!!!!
jú Danfríður var að klára 10. bekk og er að fara í MK
varstu í partýi í gær Ragga mín að fagna Óla eða kannski Ástþóri?
kv Björk

25.6.04

hæ hæ ég ætlaði ekki að setja þetta svona oft inn sorry !!!! það kom alltaf error og ég hélt að þetta væri ekki að virka
en ég heyrði svolítið fyndið í gær Ella systir hans Dóra var að segja mér hver nýji kærastinn hennar Danfrýðar er og hann heitir Ögmundur Eron Smárason þetta er að verða eins og versta sápuópera allir tengjast eitthvað í Hagkaup
jæja sjáumst Björk

23.6.04

hæ hæ
vááá hvað viðgerðir geta verið dýrar maður ætti kanski að verða bifvélavirki næst til að verða ríkur :)
jæja Ása komst inn í kvennó og ég dreif mig í því að borga skólagjöldin svo að hún myndi ekki missa plássið þar sem hart er barist um hvert pláss mér finnst ótrúlegt að menntamálaráðuneytið skuli ekki hafa gert neitt fyrr vegna þess að þeir vissu í haust hversu stór árgangur var á leiðinni jæja en þetta er bara svona hún flaug alla vega inn sem betur fer og er rosalega ánægð með það
Ragga þú ert rosalega dugleg að vera í útilegum ég er svo löt að ég nenni varla neinu ég fer líka í frí eftir næstu viku og er svo sannalega farin að hlakka til þá tek ég fjórar vikur vinn svo í eina og fer aftur í tvær vikur þetta kallar maður lúxus líf ég vona að ég sofi ekki allt fríið mitt frá mér ég sef nefnilega svo mikið núna (svo agalega þreytt):)
ég vona að við förum að hittast bráðum sakna ykkar
kv Björk

22.6.04

Sælar. Ætla svona rétt að láta vita að ég er á lífi :)
Við vorum í sveitinni um helgina með öllum dýrunum þar. Stelpurnar léku sé að því að láta hanana (8 stk.) elta sig sem er algjört bíó. Hafið þig séð hana að harðahlaupum, það er brjálæðislega fyndið, alla veganna finnst mér það. Tvær merar komu í sveitina um helgina ásamt folaldi og verða á beit þar í sumar. Í júlí/ágúst bætist svo við eitt folaldið í viðbót, stelpunum finnst það ekki leiðinlegt. Stelpurnar verða svo hjá ömmu sinni í sveitinni út þessa viku.
Ég er búin að hafa það ágætt, nóg að gera í vinnunni. Lenti hinsvegar í smá veseni með bílinn í gær, gat ekki lokað #&%$"#$ rúðunni sem er búin að vera ótrúlega leiðinleg undanfarið, þannig ég varð að fara með bílinn á verkstæði til að láta þá hjálpa mér að loka rúðunni, ekki gat ég skilið bílinn eftir galopinn. Sú hjálp kostaði litlar 17.000 kr. og ég var bíllaus í morgun en ég á svo góða mömmu sem skutlaði mér og sótti mig í dag. Það er eins gott að ég geti lokað rúðunni núna. Það er ótrúlegt hvað viðgerðir á bílum eru dýrar. Nóg um það. Hlakka til að sjá ykkur næst.
Kveðja, Inga María

18.6.04

Jæja dúllurnar mínar viljið að fleiri skrifist á við ykkur.
Elsku Björk mín ég ætlaði sko endilega að senda þér hamingjuóskir á útskriftardaginn en klúðraði því náttúrulega. Fyrirgefðu mér það.
Já þú varst nú eitthvað búin að tala um þetta með barnið og lyfin um í saumó hjá þér.
Hæ Inga takk fyrir að hugsa til þess að við gætum kýkt á tónleikana hans Eyþórs á miðvikudaginn en ég var að fara að vinna daginn eftir svo ég gat ekki farið neitt út það kvöldið, þurfti nefnilega að vakna kl. 6. Ég var að túristast með farþega af skemmtiferðaskipinu Albatros sem skemmdist og liggur við bryggju í Straumsvík. Í gær varð ekkert úr ferðinni sem ég átti að fara í, og í morgun ekki heldur en ég fæ samt borgað eins og ég hefði farið svo það er ekki slæmt.Í morgun var okkur sem ekki komust af stað í ferðirnar boðið í morgunmat um borð. Það var engan veginn eins flott og ég hefði haldið, ekki einu sinni gott. En það var forvitnilegt að komast inn í eitt skipið einu sinni.
Ég talaði við systur mína í dag og hún hljómaði ágætlega hún er bara þreytt það er allt sem er að hrjá hana. Ég var farin að halda að hún væri verr haldin, ég held að mamma geri meira úr hlutunum og auki óttann hjá mér. Ég sleppi milliliðnum eftirleiðis. Hlusta á systur mína en ekki mömmu og hennar túlkun.

17.6.04

hæ hæ
hvað segið þið gott?
ég á alltaf eftir að sækja kremið til þín Ásta ertu heima eftir helgina? Ása er nefnilega að fara út með landsliðinu 27. júní og ég ætlaði að senda hana með þetta og langar að prófa það líka
það er allt gott að frétta hér ég fékk íslenska orðabók frá mömmu og pabba í útskriftargjöf og þríkross frá systkinum mínum síðan fékk ég 10000 frá Reyni og Jenný í bakaríinu bleika sæta slæðu frá frænku minni og ilmvatn frá tveimur sem ég vinn með ég græddi bara heilmikið en mér finnst, ilmvatnið dálítið þungt og ætla að skipta því vitið þið um eitthvað með góðri lykt? ég fæ nefnilega hausverk af þungum ilmum og ýmsum ilmum ég er svo rugluð:)
Annars er Bjössi bróðir minn og Beta mágkona mjög reið út í mig núna vegna þess að ég spurði hvort sonur þeirra væri en þá á lyfjum og afhverju hann væri á lyfjum þau eru nefnilega búin að vera úti í 3 vikur og strákurinn hefur hrunið niður hann er orðin jafn grannur og Gauji hennar Öllu en hann er með allt öðruvísi vaxtarlag en hann Gauji
hann missti matarlystina á lyfjunum og ég vissi ekki að það væri leyndarmál að barnið væri á lyfjum
Beta sagði reyndar að þau réðu ekki hvort hann væri á lyfjunum og ég sagði henni að það væri ekki rétt auðvita ráða foreldrar því auk þess sagði hún að þau gætu ekki verið að hjálpa honum að læra vegna þess að þau ættu fleirri börn ég spurði hvort honum gengi betur að læra á lyfum en Bjössi sagði nei ekki þegar þú orðar það svona
en ég mátti ekki ræða þetta þess vegna eru þau svona reið
þetta er alveg ótrúlegt Strákurinn fékk 9 í samrænduprófunum í 4 bekk´og er bara mjög klár en vantar verkefni við hæfi í skólanum
en þau ætla ekki að tala við mig aftur ég vill ekki að þetta fari lengra ég er bara pirruð út í þau þau gera líka svo upp á milli barnanna sinna
sorry röflið í mér :)
jæja við heyrumst kanski verður einhver saumó í júní
kv Björk

10.6.04

Einn daginn fékk maðurinn minn skyndilega þá köllun að fara að sinna

heimilisstörfunum og í einhverju bjartsýniskasti ákvað hann að þvo

stuttermabolinn sinn. Hann var varla kominn inn í þvottahús þegar hann

kallaði á mig "Á hvaða stillingu set ég þvottavélina elskan?"

"Það fer eftir því hvað stendur á bolnum" kallaði ég til baka.

"Húsasmiðjan" Gargaði hann...

Og svo segja þeir að ljóskur séu heimskar.....

9.6.04

hæ hæ
Vááááþetta er bara snild hjá þessum dreng Ásta :)
takk fyrir hamingju óskirnar við erum bara mjög ánægðar með okkur það er gott að þetta er búið hjá mér en Ása stefnir á Kvennó og kemst vonandi þangað
Ásta hvenær fær maður kremið veistu það?
Ragga mín bara að reyna fleiri staði í útilegur
pabbi er bara eins ég vona að ég geti fengið hann allavega aðeins heim á laugard eða sunnud
bæjó Björk:)
Sælar stúlkur
Til hamingju með árangurinn Björk og til hamingju með Ásu líka. Þið eruð greinilega báðar sömu námshestarnir. Það er nú soldið skemmtilegt að þið skylduð báðar vera að klára skóla sama vorið.
Njótið helgarinnar í faðmi fjölskyldunnar og það er alltaf hægt að nota sama tilefnið til að halda Partý seinna. Það er alltaf gott að eiga tilefni til vara. Hi hi.

Ragga mín kannski ættuð þið að fara að leggjast í ferðir upp í óbygðir þar sem ekki eru svona vitleysingar... hmmm nei sorry þeir eru víst alstaðar. En ekki vera of fljótfær að selja útilegudótið.....

Skemmtið ykkur vel dúllurnar mínar.
kv.
Auður

8.6.04

Innilega til hamingju með árangurinn Björk, einnig til hamingju með hana dóttur þína. Þetta er glæsilegt hjá ykkur mægðum :)
Hlakka til að samgleðjast þér síðar í sumar. Ég hefði heldur ekki getað komist um helgina. Eyþór er að fara að spila á Tálknafirði bæði föstudags- og laugardagskvöld. Stelpurnar fara til ömmu sinnar í sveitina og ég ætla að skreppa með honum.
Kv. Inga

7.6.04

hæ hæ
ég ætla að fresta partýinu þangað til seinna í sumar vegna þess að pabbi er á spítala og hann er búin að bíða svo lengi eftir að ég útskrifist að ég ætla bara að vera með smá boð fyrir hann og systkynin mín ok
en ég fékk 8 fyrir ritgerðina og 9 fyrir hitt fagið sem ég var í og er bara nokkuð sátt vegna þess að ég var orðin hud þreytt á þessari ritgerð á endanum.
jæja við heyrumst
kv Björk

3.6.04

Til hamingju með Ásu þín Björk mín... rosa flottur árangur hjá henni.
Ég verð því miður á ættarmóti þann 12. og kemmst því ekki til þín.

Bæjó, Sirrý

2.6.04

hæ hæ Stelpur
eru þið lausar 12. júní vonandi eru þið ekki í útilegum þá ég er nefnilega að útskrifast og langar að fá ykkur til að gleðjast með mér þið skiljið:)
Ásta hvenær er þessi kynning eða er ég búin að missa af henni ég er svoooo gleymin
Ása var að fá úr samrændu og stóð sig eins og hetja hún fékk
8,5-7-9-9-7-8 er þetta ekki flott ein svolítið montinn
jæja bið að heilsa kv Björk

31.5.04

Hæ stelpur mínar!!

Sorrý að ég kom ekki á föstudagskvöldið elsku Björk mín. Ég komst bara ekki þar sem ég var bíllaus (Dóri var að dæma í Borgarnesi og bíllinn minn er bilaður) og gat ekki reddað mér fari. Auðvitað gleymdi ég svo að hringja og afboða mig.... skildi ekki fyrr en í gær hvers vegna ég var með hiksta allt kvöldið... he..he.

Þúsund afsakanir og þúsund kossar,
Sirrý

30.5.04

hæ hæ
takk fyrir síðast :)
ég var á Þingvöllum það er á Valhöll á árshátíð hjá Reynibakara það var geðveikt stuð við dönsuðum og drukkum til klukkan fimm í morgun og gistum síðan í frábærum herbergjum bara geðveikt gaman og allt á Reynis kostnað svona á þetta að vera
vildi bara deila þessu með ykkur

Ragga og Bryndís var ekki fínt í útilegunni þið fenguð allavega frábært veður?
sjáumst Björk

27.5.04

Hæ hæ
Úps ég gleymdi því að ég er boðin í grillveislu hjá rauða krossinum á föstudagskvöldið. Ég kem nú samt í saumó en í seinni kantinum, ef það er í lagi, Björk mín?
bið að heilsa ykkur dúllurnar mínar
Auður

26.5.04

Ég reikna með að mæta í saumó :)
Hlakka til að sjá ykkur
Kv. Inga

23.5.04

hæ ´hæ

já þú mátt hafa öl alveg velkomið
það verður gaman að sjá ykkur
kv Björk

22.5.04

Hæ Hæ
Saumó hjá mér á föstudaginn 28. maí koma ekki allar allavega flestir það komust svo fáir á sunnudaginn þannig bara að mæta á föstudaginn
annars er ég með Dana hér hún kom í dag og fer á föstudagsmorgun ég er ekki mjög góð í dönsku og er frekar kjánaleg en Ása reddar þessu hún er nú hjá henni
jæja það verður bara gaman að sjá ykkur á föstudaginn
bæ´bæ Björk

18.5.04

Sælar
Ég held að það sé kominn tími á að ég láti heyra eitthvað frá mér :) Prófin eru BÚIN, jess. Er reyndar ekki viss hvort ég næ öllu, mér gekk ekkert ofvel,held ég en þetta er búið í bili og ég er svo ótrúlega fegin. Ég skellti mér í bæinn á laugardagskvöldið eftir Eurovision og lenti náttúrulega í leigubílaveseni eins og eflaust allir sem fóru niður í bæ. Það voru ótrúlega margir niðri í bæ. Það var samt rosalega gaman að fara aðeins út á lífið, mér finnst eins og það séu ár og aldir síðan ég fór niður í bæ.
Á morgun er hinn langþráði dagur að renna upp..... er að fara til Köben :) gaman gaman. Ég skal drekka nokkra öllara fyrir ykkur og njóta sólarinnar, fara í tívolíð og eitthvað fleira skemmtilegt. Ég kem svo heim á sunnudagskvöldið.
Vona að systir þín nái sér Auður mín :)
Hlakka til að sjá ykkur fljótlega
Kv. Inga María

15.5.04

jæja dúllurnar mínar , ég held að þetta verði í lagi hjá systur minni. Ég bara trúi ekki öðru. Hún er í rannsóknum núna við fáum að vita hvað er að gerast í næstu viku.
Eg er a leiðinni heim a morgun.

7.5.04

Jæja Ragga mín vilt þú ekki segja okkur hvar við finnum síðuna hennar Hófí svo við getum dæmt um hversu slæmt vinarbrotið er.

Ég fékk slæmar fréttir í gær elskurnar og fer til svíþjóðar á sunnudag til að vera hjá systir minni sem er orðin alvarlega veik á sjúkrahúsi. Ég ver líklega í viku þar.

6.5.04

hæ hæ
það eru greinilega engin takmörk í 11-11 en hvenær fáum við að sjá upptökuna
ég skil þig vel Ragga mín að detta í kapal kannast alveg við það þegar maður er að reyna að læra þá plmpa þeir bara upp örugglega á sjálfum sér!!!
gengur ekki vel í prófunum Inga ég hef fulla samúð með þér greiðið mitt:)
jæja núna verð ég að fara að hitta stelpurnar við erum að gera verkefni saman og ætlum að vera snöggar að því
kveðja Björk

5.5.04

A newlywed couple had only been married for two weeks. The husband, although very much in love, couldn't wait to go out on the town and party with his old buddies. So, he said to his new wife, "Honey, I'll be right back."

"Where are you going, coochy cooh?" asked the wife.

"I'm going to the bar, pretty face. I'm going to have a beer."

The wife said, "You want a beer, my love?" She opened the door to the refrigerator and showed him 25 different kinds of beer, brands from 12 different countries: Germany, Holland, Japan, India, Etc.

The husband didn't know what to do, and the only thing that he could think of saying was, "Yes, lolly pop...but at the bar...you know...they have frozen glasses. " He didn't get to finish the sentence, because the wife interrupted him by saying, "You want a frozen glass, puppy face?" She took a huge beer mug out of the freezer, so frozen that she was getting chills just holding it.

The husband, looking a bit pale, said, "Yes, tootsie roll, but at the bar they have those hors d'oeuvres that are really delicious. I won't be long I'll be right back, I promise. OK?"

"You want hors d'oeuvres, poochi pooh?" She opened the oven and took out 5 dishes of different hors d'oeuvres: chicken wings, pigs in blankets, mushroom caps, pork strips, etc. "But my sweet honey... at the bar... you know... there's swearing, dirty words and all that..."

"You want dirty words, cutie pie?

"LISTEN UP DICKHEAD! DRINK YOUR FUCKING BEER IN YOUR FROZEN MUG AND EAT YOUR MOTHERFUCKIN' SNACKS, BECAUSE YOU AREN'T GOING ANYWHERE! GOT IT, ASSHOLE?"

.............and, they lived happily ever after.

Isn't that a sweet story?

2.5.04

Sammála síðasta ræðumanni!! Heyr heyr til hamingju elsku Björk með að hafa skilað inn ritgerðinni. Hvað skyldir þú eignlega gera við tímann þegar þú ert núna búin, ég gæti trúað því uppá þig að taka að þér annað 100 % starf. Nei annars ég myndi ekki mæla með því en ég get ekki ímyndað mér þig með 40 stunda vinnuviku og ekkert aukalega. Láttu nú dekra soldið við þig, þú átt það sko meira en skilið. Og það verður gaman að fá smá tíma með þér á ný.
Ég átti skemmtilegt kvöld með 2 góðum vinkonum að utan, Larissa vinkona mín kom frá Flórída í morgun og kom í heimsókn í kvöld. Svo kom Guðdís vinkona mín sem býr í Þýskalandi líka í heimsókn og þær höfðu ekki sést síðan Larissa flutti frá Munchen fyrir 7 eða 8 árum, svo þetta var ansi skemmtilegt.
Fyndið 3 vinkonur sem voru í Þýskalandi með mér á mismunandi tímum eru samtímis hér komandi frá Maimi, Dusseldorf og Milano.
kv. Ausi
sorry það slökknað á tölvunni hún er örugglega á túr hún er svo geðill þessa dagana
en ég semsakt sendi 6 eintök plús eitt á diski þetta er allt mjög formlegt
en núna er ég að vinna að tveimur verkefnum með stelpunum og síðan er þetta búið
Annars er ég að fara í heilun og svæðanudda á morgun guð ef ég á það ekki skilið ég fékk gjafa bréf í haust í þetta en hef ekki gefið mér tíma fyrr en núna
jæja ég verð víst að fara upp í hesthús Nonni bróðir hringdi og bað mig að fara í hesthúsið um leið og ég kom úr sturtu heppilegt!!!! en allavega hafið þið það nú gott og ég held svo sumaklúbb þegar ég er búin í skólanum
kv Björk
hæ hæ ég er ekki alveg dauð
TIL HAMINGJU MEÐ FANNEY þetta er alveg frábært en ég er alveg viss um að hún hefur fyrirsætu lúkkið frá hinni mömmunni það er mér :) ha ha
en annars bara gaman að þessu þetta er hörku stelpa greinilega.
annars er ég BÚIN að skila ritgerðinni ekkert smá ánægð kennararnir stressuðu mig dáldið upp síðustu vikurnar en þetta hófst allt og var semsagt sent á fimmtudaginn með bögla pósti 6
Nei ég held ekki að lífið sé leiðinlegt, ég er kannski leiðinleg. Ég geri ósköp lítið annað en að vinna, væri gaman að hitta fólk öðru hvoru.
Mér dettur ekkert í hug sem gaman væri að segja frá hérna.
Til hamingju með skessuna Ragga mín. Ég vissi nú að dóttir þín væri dugleg en ekki datt mér í hug að hún yrði komin í vinnu á þessum aldri.

28.4.04

ekki dauð en alveg hundleiðinleg.
Hæ, hæ
Ég búin að sitja í næstum allan dag og læra, er að fara í próf á föstudaginn þannig eins gott að halda sér við efnið. Gærdagurinn hjá mér var alveg ónýtur, ég lá upp í sófa og bruddi verkjatöflur. Ég var semsagt hjá tannsa í gærmorgun og hún boraði og boraði og deyfði og deyfði, ég hélt að þetta tæki engan enda. En þvílíkan tannverk og hausverk eftir slíka meðferð hef ég aldrei upplifað áður. Ég sem hélt að rótfyllingu væri óþægileg en ég var einmitt í slíkri aðgerð sl. miðvikudag, meira tannvesenið á mér sem er ekki búið enn, á eftir að fara eflaust í nokkur skipti í viðbót - byrjaði allt í sumarbústaðinum þar sem ég braut fyllingu :( Eitt fannst mér frábært þegar ég var í rótfyllingunni, ég fékk að horfa á FRIENDS á meðan, lá þarna með videogleraugu á nefinu og hátalar í eyrunum meðan hann píndi mig, fínt að dreifa huganum aðeins.
Talandi um tennur hún dóttir mín - Ólöf María - var að missa sína fyrstu tönn í dag, ekkert smá áfangi :) Nú er bara að bíða og sjá hvort tannálfurinn komi ekki í heimsókn í nótt!!!!
Jæja Ragga mín var smá þynnka í gangi ;) fegin er ég að hafa ekki verið í þínum sporum ég er svo hrikalegur aumingi þegar ég er þunn. Þetta hefur þó vonandi verið þess virði :)

Nú er ég að hugsa um að skella mér í háttinn svo ég verði hress á morgun enda klukkan að verða eitt.
Bið að heilsa ykkur öllum.
Kv. Inga María

22.4.04

Gleðilegt sumar.
Það er með ólíkindum hvað veðrið var gott í dag, ég meina það var sumardagurinn fyrsti og veðrið var eins og það á að vera á sumardeginum fyrsta, ekki rok eða rigning eða snjókoma eins og svo oft á sumardeginum fyrsta, frábært. Ég skellti mér í sund með stelpurnar og ég náði mér í smá lit í dag, allaveganna er ég frekar rauð í framan núna, vona að það breytist í smá brúnku :) Það var ekki nokkur séns að sitja inni í dag og læra, þannig að ég tók mér smá pásu í dag, kíkti reyndar aðeins út með bækurnar og las en get ekki sagt að það hafi verið neitt af viti. Allaveganna finnst mér þetta hafa verið frábær dagur og stelpurnar eru búnar að vera úti í allan dag að leika sér. Morgundagurinn verður hinsvegar tekinn af meiri hörku hvort sem veðrið er gott eða ekki, allt í lagi að taka sér pásu á sumardaginn fyrsta, sérstaklega þegar veðrið er eins og það var í dag.
Bið að heilsa ykkur öllum.
Kær kveðja, Inga María

13.4.04

hæ hæ stelpur núna er Ása að reyna að safna fyrir Skotlandsferð og er að selja
klóstettpappír á 2100 kr 48 rúllur og
Nammi poka frá Freyju á 1000 kr hann inniheldur 2x draum 2x rís 2x villikött og freyjukarmellur, hríspoka og möndlur
ef þíð hafið áhuga látið þið þá mig vita
kv Björk
Óskalisti Barbie




Kæri Jólasveinn



Hlustaðu nú litli, feiti, ljóti dvergur. Ég hef hjálpað þér öll þessi ár og verið besta og fullkomnasta jólagjöfin, komið fram í misjöfnum veðrum í efnislitlum gerfibaðfötum og ég get sagt þér það hefur oft verið hræðilega kalt. Mér finnst leiðinlegt að segja það, en jólasveinn, ég finn mig ekki í þessu lengur!!!!!

Nú er kominn tími til að breyta til um þessi jól. Ef það gerist ekki mun ég sjá til þess að að það verði haldnar Barbie brennur um allt land. Ég gæti nú trúað að þér þætti fnykurinn af þeirri brennu ekki eftirsóknarverður.

Jæja, jólasveinn. Hér er þá óskalistinn í ár:

Mig langar í:

1. Mjúkar bómullarstuttbuxur og stóran, víðan háskólabol í stíl. Ég er orðin hundleið á að líta út eins og mella. Eru engin takmörk fyrir því hve baðfötin geta verið lítil og vesældarleg? Og meðal annarra orða, veistu hvernig það er að hafa nylonbuxur með frönskum rennilás inni í rassborunni?

2. Raunveruleg nærföt sem auðvelt er að fara í. Helst hvít. Hvaða bölvaður asni ákvað að framleiða þessa nærfataeftirlíkingu sem festist við húðina á mér þannig að það lítur út fyrir að ég sé með appelsínuhúð.

3. Svo vil ég fá alvöru KARLMANN ! T.d. Action man. Ég er orðin svo hundleið á þessum væmna aumingja, honum Ken. Og svo er hann kominn með eyrnalokk!¨ Ekki skánar hann við það. Ég þjáist að vera nálægt honum. Í Guðs bænum, gætir þú ekki skapað hann líffræðilega rétt og með tilheyrandi tólum.

4. Ég óska mér að fá handleggi sem ég get beygt svo ég geti ýtt áðurnefndum Ken-ræfli frá mér þegar búið er að útbúa hann rétt .

5. Ég vil fara í brjóstaMINNKUN! Mér er alveg sama hvort þú þarft að snúa upp á handleggi á e-m lækni. Ég vil fara í brjóstaminnkun.

6. Íþróttabrjóstahaldara til að nota þangað til ég fer í brjóstaminnkun.

7. Nýtt starf. Dýralæknir eða kennari er algerlega out. Hvernig líst þér á að ég verði kerfisfræðingur, verðbréfasali eða vinni við almannatengsl?

8. Nú verður þú að fara að skapa 2001 karakterinn. T.d. fyrirtíðaspennu Barbie, fylgihlutir með henni gætu verið poki með kartöfluflögum og lítil askja með súkkulaðibitakökum eða rjómaís. Nú eða "Hættu að reykja" Barbie með Nikotín plástri og tyggjói.

9. Að lokum. Það er nú kominn tími til að ég fái að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu (Mattel). Ég er búin að vera hér í 42 ár svo mér finnst þetta ekki ósanngjörn krafa. Ég meina það Jóli!

Jæja, þetta er nú það sem ég fer fram á. Þegar tekið er tillit til verðmætaskapandi framlags míns til samfélagsins finnst mér þetta sanngjarnar kröfur. Ef þú gengur ekki að þeim skaltu bara finna þér einhverja gæru til að taka við um næstu jól. Svo einfalt er það.



Þín einlæg Barbie.

kv.Björk...;)

11.4.04

Gleðilega páska dúllurnar mínar.

Kv, Sirrý

9.4.04

Jamm nú fer þessari vinnutörn hjá mér að ljúka, þ.e. aukavinnan er búin eftir rúmlega viku.
En ég er á fullu að leita að vinnu og er ekkert að gerast á þeim vettvangi í augnarblikinu, fjandinn hafi það.
Annars nota ég páskana aðallega til að slappa af, skírdagur fór í það og að þrífa. Ég er búin að vera á fullu í dag við að þrífa, þvoði glugga og allt. Nú fer ég að geta andað léttar. Ég sá nefnilega þegar sólin fór að skína hvað allt er hrikalega skítugt hérna.
Og svo er náttúrulega svona eitt og annað sem ég ætlaði að vera löngu búin að gera sem ég dunda mér við núna.
Ég skrepp svo austur fyrir fjall á sunnudaginn þar sem mútta er í sumarbústað. Ég er nefnilega á upphækkuðum jeppa núna, ég er að passa hann og húsið fyrir Hlyn bróðir sem er í Svíþjóð með familíuna.
Ég bið að heilsa ykkur.
Ausi

7.4.04

Hæ hæ
Gleðilega páska og reynið þið nú að slaka á og hafa það gott :)
ég er að bíða með (öndina í hálsinum) eftir að fá ritgerðina mína til baka frá kennurunum og vona að ég eigi ekki mikið eftir en hún er orðin 40 síður og verður örugglega meira þegar maður er búin að laga hana til
en ég ætla að klára heimasíðuna mína um páskana ég er svo heppin að Gauti mágur minn er NTV skólanum að læra að gera heimasíður og hann er að hjálpa mér eða gera þetta fyrir mig hann er mjög áhugasamur og ég held að ég fari bara sem léttast út úr þessu en ég er búin að skrifa inn það sem ég ætla að hafa á síðunni og fá leyfi hjá foreldrum til að birta myndir af börnunum mínum á leikskólanum æðislegar myndir :)
jæja farið þið nú að skrifa konur enga leti :)
kveðja Björk

4.4.04

hæ hæ
Tilhamingju með Sigrúnu Guðrún :) bara búið að ferma dömuna fékk hún ekki eitthvað flott??

jæja það gekk ekki alveg upp hjá Borgó en þeir voru samt mjög nálægt því en leiðinlegt en þetta er allavega góð kynning fyrir skólann:)

ég er bara að bíða eftir að kennararnir sendi mér ritgerðina til baka og gera heimasíðu það er verkefni í skólanum eitt af fimm verkefnum í áfanganum sem ég er í núna en ég er búin með tvö þannig að heimasíðan er þriðja
þessu er nú alveg að ljúka vona ég allavega ég að vera búin að skila ritgerinni 20.apríl og öllu hinu 13. mai þannig að ég tel bara niður eins og ég er búin að gera síðan um áramót það eru bara tveir kennsludagar eftir en þeir eru hundleiðinlegir kennarinn er bara að segja okkur eitthvað sem við eru löngu búnar að heyra síðan fóru eitthvað margir úr tíma um daginn þá hótaði hún bara prófi en það er ágætt að gera þessi verkefni þó að prófin séu ekkert verri það fer svo mikill tími í verkefnin
núna ætla ég að hætta að röfla og fara að gera eitthvað

ps. vonandi eru allir hressir og kátir
bæ bæ
kv Björk
Sælar, ég ætlaði að vera fyrir löngu búin að senda ykkur hvenær hver á að halda saumó en hér kemur það loksins :)
--------------------
Apríl - Guðrún
Maí - Björk
Júní - Bryndís
Ágúst - Inga
September - Auður
Október - Ragga
Nóvember - Björk
Desember - Guðrún
--------------------------

Af mér er allt ágætt að frétta. Síðasti kennsludagurinn hjá mér er á þriðjudaginn og þá er ég komin í páska- og upplestrarfrí. Svo byrja prófin 30. apríl hjá mér þannig ég verð að vera dugleg að nýta fríið því ég er búin að vera ofboðslega löt að læra undanfarið. Vona að allir séu hressir og þú Auður sért búin að rífa þig upp úr þessum veikindum :) Hlakka til að hitta ykkur en þangað til hafiðið það gott.
Kv. Inga

1.4.04

Hæ hæ
Ég veit upp á mig skömmina, afsakaðu Bryndís að ég skyldi ekki hafa haft samband til að láta vita að ég kæmist ekki.
Það er ansi þétt hjá mér dagskráin núna og verður það út Apríl í það minnsta.
Ég er að vinna flest kvöld og helgar, svo þegar ég er í fríi kemur eitthvað annað eins og fundurinn hjá félagi leiðsögumanna í gærkv. og rauði krossinn í kvöld. Hins vegar er ég alveg í fríi annað kvöld, surprise. Ætli maður verði ekki bara heima hjá sér að taka til, og þvo föt svo maður hafi eitthvað að fara í næstu vikuna. Svo þarf ég líka að þrífa sameignina, ég hef varla komist í það. Ég vil helst losna undan því í það minnsta, ég nenni því ekki.
Ég man ekki hver átti apríl en ég tékka bara hérna á síðunni
kv.
Auður

27.3.04

hæ hæ
það er brjálað að gera núna er að vinna í ritgerðinni verða að gera skattskýrsuna og undirbúa foreldraviðtöl síðan ætla ég að hjálpa Adda bróðir að flytja
Annars er það að frétta að ég fór á aðra deild í síðustu viku þetta er yngri deild og það er alveg frábært deildin sem ég var á var rosalega erfið og það vantaði deildarstjóra á yngri deild þannig að ég fékk að fara maður finnur bara strax hvað það er mikið minni streita þarna auk þess sem maður þarf ekki að srgja fólkinu sem vinnur þar allt eins og á hinni deildinni

Auður mín þú ert bara alltaf veik látu nú skoða þig vel og ég vona að þú farir að hressast
kv Björk

25.3.04

Hæ
Ég er búin að vera heima veik í meira og minna heila viku og ég er að verða brjáluð af því. Ég fór á læknavaktina í gær og er komin með sýkingu í ennisholurnar í fyrsta sinn og er því komin á fúkkalyf. Ég vona að ég fari þá loksins að skána. Það verður ekki gaman að koma í vinnuna með allt á haus, það leysir mig enginn af þegar ég er í burtu. En samt nenni ég nú ekki að hanga hér lengur með grænan hor í nös.
kv.
Auður

20.3.04

Ég er búin að vera lasin með hrikalegt kvef undanfarið, fór veik úr vinnu á fimmtud. lá heima í bælinu til kl að verða 20 í gær. Druslaðist þá í Rauða Krossinn því að hin sem átti að vera með mér á vakt var líka veik. Stóð mína plíkt alein. Er svo að vinna um helgina og reyni að hósta ekki í símann.
Annars er ég að gera skattaskýrsluna og sækja um vinnur.
Hvernig finnst ykkur þetta veður, æði, vildi geta hjólað núna. En treysti mér ekki til þess auk þess sem það er sprungið hjá mér og ég hef ekki komist í að laga það.
kv.
Auður

19.3.04

Alveg frábært hreint, ekki nóg með að Borgó sé komin þetta langt. Heldur er aðal atriðið að MR hefur verið steypt af stallinum, jíha.

18.3.04

hæhæ Bryndís TIL HAMINGJU MEÐ BALDVIN ÞETTA VAR EKKERT SMÁ FRÁBÆRT (NÁGRANNARNIR HALDA ÖRUGGLEGA AÐ ÉG SÉ GEÐVEIK ÉG ÖSKRAÐI SVO MIKIÐ) EN BARA GOTT MÁL ! ÁFRAM BORGÓ!!!!!!
kv Björk

17.3.04

Það er nú ekkert dramatískt að gerast hjá mér, ég bara vinn mikið og er farin að finna soldið fyrir því. Er öll að kvefast núna og er frekar að verða slöpp, m. hálsbólgu, hósta og stíflað nef. Má samt ekkert vera að þessu nýbúin með magapest. grr, bíta á jaxlinn og sjá hvort það dugi ekki.
kv.
Auður

15.3.04

hæ hæ
þetta eru hræðilegar fréttir hjá þér Ásta mín og ég skil vel að þú sért stressuð. en hver er Eymundur Ás og Ásta fyrirgefðu forvitnina
Bryndís þetta er allt í lagi það er bara gott að fá einhverja punkta hjá þér ég er komin nokkuð langt þó að það sé alltaf hellingur eftir
kveðja Björk
Elsku Ásta
Og þið allar hinar, ég vildi gjarnan geta verið með ykkur í kvöld.
Mér finnst nóg komið af slæmu fréttunum hjá þér Ásta mín og finnst það ósköp eðlilegt að þú viljir ekki svara í símann. Og vonandi fer að vera bjartara hjá þér.
kv.
Auður

12.3.04

Ég er ekki viss um að ég komist á mánudkv. ég verð líklega að vinna.Ég er komin með aukastarf á kvöldin og um helgar. Ég verð að hliðra vöktum því ég er að fara á árshátíð á laugardag og get ekki unnið á sunnudag. Þess vegna verð ég að vera á mánudag.
Nei og já Björk ég er ekki komin með vinnu í staðinn fyrir aðalvinnuna en er komin með aukavinnu tímabundið með henni.
kv.
Auður

11.3.04

hæ hæ Ragga ég kemst því miður ekki það er starfsmannafundur á mánudaginn:(
Bryndís til hamingju með Baldvin hann stóð sig frábærlega og tekur vonandi MR í nefið eins og hann sagðist ætla að gera.
Hvernig gengur hjá þér Auður mín ertu búin að finna vinnu??
jæja best að fara að læra eitthvað sjáumst
kveðja Björk
Úff... sorrý Ragga mín en ég er að fara á fund útaf gæsateiti Guðnýjar n.k. mánudagskvöld. Ef fundurinn verður ekki langur (kannski ekki miklar líkur á því í svona kjaftaklúbb) þá get ég kíkt til þín.

Kv, Sirrý

10.3.04

já það var svo mikið étið og drukkið að ég bara varð veik eftir að ég kom heim og er ekki farin að jafna mig á þessu ennþá.
Engin smá mega þynnka það, kemur ekki fyrr en á mánudegi og helst fram á miðvikudag, eða var þetta kannski bara ælupestin sem er að ganga hi hi.
Takk fyrir síðast stelpur!!!
Já þetta var sko gaman..... samt ótrúlega rólegar eitthvað miðað við allt magnið af vökva sem kláraðist. Held nú að það hafi verið einhver brögð í tafli þarna. Jæja allavegana var þetta rosalega ljúft og gott að komast aðeins frá skyldum heimilisins. Annars er Dóri mun aktívari húsmóðir en ég..... hann var búinn að skúra allt, þrífa klósettin og setja í nokkrar þvottavélar, fara í ungbarnasund og í afmæli + það að sjá um 4 drengi og fæða þá alla helgina. Ég er rosalega ánægð með afköstin hjá mínum manni. Hlakka bara til að fá hann í fæðingarorlof í apríl..... það verður örugglega glansandi fínt hérna alla daga.
Já og svo var auðvitað yndislegt að koma heim til strákana sinna. Aron Helgi var ekkert fúll út í mömmu sína, bara rosalega ánægður að sjá kellu og þá aðalega brjóstin hennar (það komu svona svipuð hljóð hjá honum og þegar ég borðaði Snickersið í bústaðnum..... svona stunur *roðn*).

Kv, Sirrý sem er farin að hlakka til næsta húsmæðraorlofs

7.3.04

hæ pæ
var ekki mikið fjör og mikið drukkið og talað þið hafið haft nóg um að tala víst að það vantaði þrjár djók
en allavega eruð þið vonandi komnar heim í rigningunni
og rokinu :)
ég er bara búin að læra og búin með verkefnið sem ég á að skila á morgun
það væri gaman að heyra sögur af bústaðnum
bestukveðjur
Björk

4.3.04

Sé núna að Bryndís ætlar að taka með sér partýspilið (var bara að kíkja í póstinn núna *roðn*) svo ég sleppi því auðvitað.

Kv, Sirrý
Jæja nú er ég búin að ákveða hvaða spil ég kem með (það kom enginn með neinar óskir og ég vona bara að það verði ekki tvennt af neinu)

Ég ætla að koma með:
Partýspilið
Viltu vinna milljón (venjulegt)
og Pictionary

Inga ætlar síðan að koma með Sequence

Ef þið viljið að ég komi með einhver fleiri þá endilega láta mig vita

Hlakka til að hitta ykkur á morgun, bæjó

Tilhlökkunarkveðjur, Sirrý
Já talandi um áfengi, Bryndís má alveg taka með sér Heilsuhússpokann minn úr Parýtinu, ertu til í það Barbie darling?
Og enn meir um áfengi, Ragga ég skulda þér alveg böns af rauðvíni frá því hjá henni Guðrúnu, hvaða tegund vilt þú að ég kaupi??
Maður verður að klára öll innkaupin í dag ef að fara á tímanlega af stað á morgun.
Bæjó
Ein í tilhlökkunarstuði.
Ausa paus

3.3.04

Jæja stelpur hvaða spil á ég að taka með? Er nebbla að spá í plássið í bílnum og vil því ekki taka öll með heldur bara þau sem þið viljið.

Kv, Sirrý

P.s. taldi áður upp spilin mín.... það stendur hérna neðar
Jæja stelpur nú eru ekki nema tveir dagar í ferð..... ohh ég er svo spennt.
Nú sit ég við tékklistann og er að uppfæra hann.... alltaf eitthvað sem gleymist. Æji það skiptir svo sem ekki máli ef bjórinn er með.... alltaf hægt að skreppa í Borgarnes og fara nakin í pottinn... hef nú prufað það ;)

Kv, Sirrý spennta

2.3.04

Var einhver búin að ákveða að taka með kaffi og kaffipoka? Hvernig er með CD-spilara er slíkur á staðnum?

Kv, Sirrý
Já dansgólfið eða réttara sagt skórnir mínir tóku sinn toll, þó ekki séu þeir svo slæmir. Allavega er ég ekki farin að fá tilfinningu í sumar tær ennþá uhum.
Hmm já tíminn, ef ég stend mig vel í að pakka og hafa allt til daginn áður ætti ég að komast af stað upp úr 4. Á föstudögum er lítið mál að hætta fyrr. Kristur ég verð að fara að panta þvottahúsið. Ég verð að taka mér tíma í að pakka svo það fari sem minnst fyrir öllu á leiðinni.
En annars hver var staðan með laugardagsmatinn fyrst Guðrún datt út?

Ausa
Takk fyrir síðast stöllur mínar c",)

Já takk takk Bryndís fyrir skemmtilega veislu og lánið á pumpunni (hún virkaði bara vel.... en þetta tók nú sinn tíma). Ég skemmti mér rosalega vel, þæði í partýinu og á Players (þó einstaka lag hafi nú ekki alveg fallið í kramið *roðn*) og hlakka mikið til næsta fjörs með ykkur stelpur. Heilsan daginn eftir var nú samt ekkert sérstaklega góð..... ja eiginlega var ég MJÖG lasin..... með svona magabólgur og mígreni *hóst*.

Ég held við þurfum ekkert að vera að hittast í vikunni..... er ekki allt klárt? Kannski við lesum yfir hvað hver ætlaði að koma með og gerum athugasemdir ef okkur finnst eitthvað vanta..... er það ekki nóg?

Kv, Sirrý sem veit ekki enn hvaða spil hún á að taka með.

1.3.04

Sælar
Mikið rosalega fannst mér gaman í afmælinu. Ég þakka kærlega fyrir mig Bryndís. Lappirnar voru svolítið lúnar eftir hamaganginn á dansgólfinu en það var rosa stuð. Hlakka til að halda áfram næstu helgi :)
Kær kveðja, Inga María

29.2.04

hæ hæ og takk fyrir síðast þetta var mjög gaman
fannst ykkur ekki dáldið skrítið fólk þarna á players þetta var saman safn af einhverju sem ég veit ekki hvað er HEHE
Ragga mín gangi þér vel að syngja kannski mæti ég (er að reyna að læra eitthvað) núna tekur alvaran við ég á að hitta kennaran ( sem svarar mér aldrei) á morgun hún fékk smá samviskubit vegna þess að ég er búin að skrifa henni síðan í október en hún svaraði ekki fyrr en ég hringdi í hana í janúar og spurði hvort talvan hennar væri biluð:)
kveðja Björk

27.2.04

hæ hæ eru ekki allir í stuði fyrir afmæli aldarinnar :)
ég ætla allavega að sletta úr klaufunum eftir erfiðan hálfan mánuð í vinnuni sjámust
Björk

26.2.04

Úllalla Ragga.... s.s. ekki langt í að við förum að kalla þig Séra Ragnheiður Björnsdóttir.... það passar jú svo vel.
Við verðum bara að taka góða rokkdiska með í bústaðinn og yfirgnæfa predikunina.... ef hún fer að verða of mikil c",)

Kv, Sirrý
ohhh.... jæja Auður mín það er nú hægt að næla sér í aðra drullupest framað bústaðarferð.... ekki vera of viss um að þú sért sloppin (þó ég voni nú auðvitað að svo sé - okkar allra vegna... hehe..).
hmm ég´veit ekki hvort ég á að segja frá þessu, #(roðn)#. Ég er búin að vera soldið slæm í maganum í dag og vindgangurinn eins ílla lyktandi og þarna um árið, úps nú man ég hvað þetta var hræðilegt.
Allavega verður þetta þá búið fyrir ferðina og hana nú. Í þetta sinn skal einhver önnur láta hlæja að sér fyrir líkamsstarfsemi sína.

24.2.04

Ohh... hlakka líka þvílít til en..... var að reikna (þvílíkt klár í því sko) og haldiði að ég verði ekki á sullandi bullandi.... þið vitið :S
Kannski sé ég bara aftur um að redda veitingum í pottinn.

Kv, Sirrý sem ætlar að taka verkjatöflur og bleyjur með í bústaðinn
jamm 10 dagar þar til við förum í bústaðinn, nammi mig hlakkar til.

21.2.04

Ég tek með mér einhver spil. Hvaða spil ætti ég að taka með?
Við eigum:
partýspilið,
viltu vinna milljón (þæði barna og unglinga og venjulegt),
Sequence (held að Inga hafi ætlað að taka það með),
Hættuspilið,
Pictionary,
Latabæjarspilið (ekki viss um að ég nenni einhverjum leikfimisæfingum..... en hver veit...)

man ekki eftir fleirum eins og er.....

síðan kem ég með auðvitað með Doritos, salsajukk og salsasósur fyrir föstudagskvöldið. En er eitthvað fleira sem vantar?

Spurning auðvitað með tónlistina..... eigum við ekki bara að mæta með nokkra góða diska hver? Er tæki í bústanum eða?

Tilhlökkunarkveðjur, Sirrý

18.2.04

ok þá er að bretta upp ermarnar og spá í hvað við þurfum að taka með okkur og hver er með hvað.
Það sem ég held ég taki með ef þið hafið ekki aðrar hugmyndir

Auka Klósettpappír ( öryggið á oddinn )
Skriffæri & pappír (skæri?)
Venjuleg spil
Yatsy teningar
kerti + eldfæri
servéttur
tarot ?

Hvað ætli ég taki með mér fyrir föstudagskvöldið? Eigum við ekki að halda því opnu aðeins lengur, hvaða réttir eru hugsaðir og hvað vantar upp á?
Ok Bryndís með salatið sitt, Sirry með nacho dótið sitt, mig minnir að Guðrún ætlaði að sjá um nammið. Ég get tekið það að mér ef hún kemst ekki. Annars megið þið ráða hvað ég á að taka með.
Ausa

16.2.04

Sælar skvísur
Ég sé að ég er ekki nógu dugleg að kíkja á síðuna okkar, var fyrst að sjá saumaklúbbsboðið núna. Ég verð eiginlega að sjá til hvort ég kem eða ekki, ég er frekar tuskuleg núna, það er að hellast yfir mig kvef og hálsbólga og mér líður ekkert rosalega vel núna. Ég reyni að kíkja ef ég verð hressari, vil ekki vera að smita litla krílið. Ef ég kem ekki þá bið ég bara rosalega vel að heilsa ykkur öllum.

Ég reikna með að komast með í sumó :)
Ég held hinsvegar að við ættum að sleppa bílaleigubílnum, það má svo lítið út af bera til að kostnaðurinn verði of mikill, þ.e. ef einhver kemst ekki með af óviðráðanlegum orsökum þá sitji hinir uppi með kostnaðinn, það væri ósanngjarnt finnst mér.
Kv. Inga

13.2.04

hæ hæ ég býst við að komast á þriðjudaginn (nema ég sé að fara að klára verkefni með hinum stelpunum)
Enn elsku krúttin mín ég sé ekki fram á að fara með ykkur í bústaðinn það er en slatti eftir af ritgerðinni og svo á ég að skila öðru verkefni 8. mars so sorry en ég er viss um að ég hafi ekkert að gera í næstu ferð þegar þessu (helv) námi er lokið (ein orðin svoldið þreytt það er nefnilega alveg nóg að vera í þrjú ár í skóla allavega fyrir mig):(:(
kveðja Björk
ps. góða helgi
Ragga og Guðrún bið að heilsa öllum á players:):)
átti auðvitað að vera söngfuglinn *roðn* (stundum hálf fötluð á lyklaborðinu með Aron Helga í annari og pikkandi með hinni) svona er maður nú bissý

Kv, Sirrý
Til hamingju með sögnfuglinn Ásta ;)

Ég kemst líka (nema eitthvað komi uppá) og hlakka mikið til að sjá ykkur allar.

Kv, Sirrý
Ég kemst á þriðjudag, hlakka til að sjá ykkur.
kv.
Auður

10.2.04

Æji já Björk mín til hamingju með afmælið þitt (smá sein *roðn*).
Vonandi gengur allt vel í skólanum og með ritgerðina svo þú komir nú með í bústaðinn.

Kv, Sirrý
takk fyrir afmæliskveðjurnar stelpur og sms Ragga ég er á fullu að skrifa og það gengur bara ágætlega ég ákvað að fara ekki í skólann heldur halda bara áfram vegna þess að maður fer úr stuði ef maður er í fjóra tíma í skólanum ég fæ bara glósur hjá stelpunum:)
kveðja Björk

9.2.04

Innilega til hamingju með afmælið Björk.
Vona að þú hafir átt góðan dag :)
Kveðja, Inga María
Elsku Björk
Til hamingju með afmælið í dag. Það raðast svo margir afmælisdagar á febrúar að maður hefur ekki undan.
Taktu þér smá pásu frá ritgerðinni til að anda djúpt og njóta dagsins.
kv.
Auður
Darling Ragga mín til hamingju með afmælið, smá seint en betra seint en aldrei.
Ég er tölvulaus þessa dagana þannig að ég kemst ekki á netið nema í vinnuni. Bíð eftir að vandræðagripurinn komi úr viðgerð.
knús í krús
Auður

7.2.04

hæ hæ til hamingju með afmælið Ragga mín :) :)
ég verð í sumarfríi næstu viku og ætla að vera að vinna í ritgerðinni minni ef það gengur vel þá ætla ég með ykkur en ég verð eiginlega að sjá það bara á föstudaginn annars lýst mér vel á að taka bílaleigubíl en endanlegt svar kemur á föstudag ef það er ekki of seint
kveðja Björk (pínu stressuð yfir þessari ritgerð)
Já ég er alveg til í að vera með í svona bíl. Kem líka alveg örugglega nema eitthvað rosalegt komi uppá.

Kv, Sirrý
Til hamingju með afmælið Ragga mín.
Kveðja, Inga María
Sælar
Varðandi bílaleigubíl þá er ég alveg til í þetta fyrir þetta verð en ég á ofboðslega erfitt með að segja 100% hvort ég kemst eða ekki. Ég veit að það eru miðannapróf framundan en það er ekki komin nema ein dagsetning af a.m.k. fjórum. Þannig ef það verður próf akkúrat þessa helgi eða strax eftir helgina þá kemst ég ekki, því miður. Það hljóta að fara koma dagsetningar bráðum, gæti samt alveg dregist eitthvað út þennan mánuð. Meðan svo er þá get ég ekki verið 100% viss. Hvenær þarf að staðfesta pöntun fyrir bílinn?
Kv. Inga María

6.2.04

Ég kem alveg örugglega, ég læt ekkert stöðva mig.
kv
Ausi paus

5.2.04

Mér líður vel í dag er bjartsýn og full af orku, þó svo að tölvuræksnið mitt sem ég keypti í Nóvember hafi dáið.
Ég er að byrja sjálfboðastarf hjá Rauða krossinum, það er nokkuð sem ég hef hugsað lengi um en einhvern vegin hefur alltaf vantað drifkraftinn í að framkvæma það. Nú er skrefið tekið og ég er svo ánægð með það. Margir í kringum mig hafa haft það á orði að þetta væri eitthvað sem þau hefðu íhugað að gera.
Allavega þá fór ég á 1 námskeiðið af 3 í gærkvöldi, svo mun ég fara á 2 til viðbótar áður en ég get farið að svara í hjálparsímann. Þetta var grunnnámskeið rauða krossins, um starfsemi samtakana og uppbyggingu. Næst er svo sálræn skyndihjálp og að lokum viðtalstækni.
Ég er mjög svo spennt að fara að gera eitthvað nýtt og að kynnast nýju fólki, þó að verkefnið sjálft sé eflaust mjög svo krefjandi og erfitt, þá held ég líka að það sé mjög gefandi.
Svo var stjörnuspáin mín svo góð í dag að ég get bara ekki annað en verið bjartsýn.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Endalausir möguleikar einkenna stjörnu þína hér. Hér bíða tækifæri eftir því að vera uppgötvuð og framkvæmd en þú átt það stundum til að forðast þau og trúna á getu þína til afreka. Þegar þú hefur sæst við sjálfið eflist orka þín og ekki síður framkvæmdasemi þín. Horfðu til stjarnanna og sannfærðu sjálfið að heillastjarna þín skín skærust þeirra allra. Óskaðu þér og sjá, birtan eltir þig uppi.

4.2.04

Mér hentar líka betur að hittast á virku kvöldi en helgarnar eru nú ekki allar fullbókaðar svo það gæti alveg reddast.

Ef við komum okkur inn á MSN síðuna, sem ég sagði ykkur frá í síðasta saumó, þá er hún læst fyrir utanaðkomandi og við getum slúðrað að vild. Bryndís ert þú komin inn og búin að skoða þetta eitthvað? Ef þú vilt breyta einhverju þá er það velkomið og endilega prufaðu þig áfram og komdu stelpunum inn. Við getum síðan bara séð til hvort umhverfið við viljum nota frekar.

Kv, Sirrý

2.2.04

Hæ hæ
Til að svara spurningu þinni Ásta, þá er síðan ekki lokuð. Allir sem þekkja eða rata óvart inn á www.valkyrjur.blogspot.com geta séð það sem er birt á síðunni.
Hins vegar er síðan ekki svokölluð public síða. Public síður eru þá á lista hjá blogger, og geta komist á lista yfir áhugaverðar síður. Þessi síða er sem sagt hvergi á lista, en er ekki læst. Það er ólíklegt að margir rati inn á hana en maður getur ekki útilokað að það geri það einhver.
kv.
Auður