Hæ hæ
Ég veit upp á mig skömmina, afsakaðu Bryndís að ég skyldi ekki hafa haft samband til að láta vita að ég kæmist ekki.
Það er ansi þétt hjá mér dagskráin núna og verður það út Apríl í það minnsta.
Ég er að vinna flest kvöld og helgar, svo þegar ég er í fríi kemur eitthvað annað eins og fundurinn hjá félagi leiðsögumanna í gærkv. og rauði krossinn í kvöld. Hins vegar er ég alveg í fríi annað kvöld, surprise. Ætli maður verði ekki bara heima hjá sér að taka til, og þvo föt svo maður hafi eitthvað að fara í næstu vikuna. Svo þarf ég líka að þrífa sameignina, ég hef varla komist í það. Ég vil helst losna undan því í það minnsta, ég nenni því ekki.
Ég man ekki hver átti apríl en ég tékka bara hérna á síðunni
kv.
Auður
Engin ummæli:
Skrifa ummæli