22.4.04

Gleðilegt sumar.
Það er með ólíkindum hvað veðrið var gott í dag, ég meina það var sumardagurinn fyrsti og veðrið var eins og það á að vera á sumardeginum fyrsta, ekki rok eða rigning eða snjókoma eins og svo oft á sumardeginum fyrsta, frábært. Ég skellti mér í sund með stelpurnar og ég náði mér í smá lit í dag, allaveganna er ég frekar rauð í framan núna, vona að það breytist í smá brúnku :) Það var ekki nokkur séns að sitja inni í dag og læra, þannig að ég tók mér smá pásu í dag, kíkti reyndar aðeins út með bækurnar og las en get ekki sagt að það hafi verið neitt af viti. Allaveganna finnst mér þetta hafa verið frábær dagur og stelpurnar eru búnar að vera úti í allan dag að leika sér. Morgundagurinn verður hinsvegar tekinn af meiri hörku hvort sem veðrið er gott eða ekki, allt í lagi að taka sér pásu á sumardaginn fyrsta, sérstaklega þegar veðrið er eins og það var í dag.
Bið að heilsa ykkur öllum.
Kær kveðja, Inga María

Engin ummæli: