28.4.04

Hæ, hæ
Ég búin að sitja í næstum allan dag og læra, er að fara í próf á föstudaginn þannig eins gott að halda sér við efnið. Gærdagurinn hjá mér var alveg ónýtur, ég lá upp í sófa og bruddi verkjatöflur. Ég var semsagt hjá tannsa í gærmorgun og hún boraði og boraði og deyfði og deyfði, ég hélt að þetta tæki engan enda. En þvílíkan tannverk og hausverk eftir slíka meðferð hef ég aldrei upplifað áður. Ég sem hélt að rótfyllingu væri óþægileg en ég var einmitt í slíkri aðgerð sl. miðvikudag, meira tannvesenið á mér sem er ekki búið enn, á eftir að fara eflaust í nokkur skipti í viðbót - byrjaði allt í sumarbústaðinum þar sem ég braut fyllingu :( Eitt fannst mér frábært þegar ég var í rótfyllingunni, ég fékk að horfa á FRIENDS á meðan, lá þarna með videogleraugu á nefinu og hátalar í eyrunum meðan hann píndi mig, fínt að dreifa huganum aðeins.
Talandi um tennur hún dóttir mín - Ólöf María - var að missa sína fyrstu tönn í dag, ekkert smá áfangi :) Nú er bara að bíða og sjá hvort tannálfurinn komi ekki í heimsókn í nótt!!!!
Jæja Ragga mín var smá þynnka í gangi ;) fegin er ég að hafa ekki verið í þínum sporum ég er svo hrikalegur aumingi þegar ég er þunn. Þetta hefur þó vonandi verið þess virði :)

Nú er ég að hugsa um að skella mér í háttinn svo ég verði hress á morgun enda klukkan að verða eitt.
Bið að heilsa ykkur öllum.
Kv. Inga María

Engin ummæli: