9.4.04

Jamm nú fer þessari vinnutörn hjá mér að ljúka, þ.e. aukavinnan er búin eftir rúmlega viku.
En ég er á fullu að leita að vinnu og er ekkert að gerast á þeim vettvangi í augnarblikinu, fjandinn hafi það.
Annars nota ég páskana aðallega til að slappa af, skírdagur fór í það og að þrífa. Ég er búin að vera á fullu í dag við að þrífa, þvoði glugga og allt. Nú fer ég að geta andað léttar. Ég sá nefnilega þegar sólin fór að skína hvað allt er hrikalega skítugt hérna.
Og svo er náttúrulega svona eitt og annað sem ég ætlaði að vera löngu búin að gera sem ég dunda mér við núna.
Ég skrepp svo austur fyrir fjall á sunnudaginn þar sem mútta er í sumarbústað. Ég er nefnilega á upphækkuðum jeppa núna, ég er að passa hann og húsið fyrir Hlyn bróðir sem er í Svíþjóð með familíuna.
Ég bið að heilsa ykkur.
Ausi

Engin ummæli: