2.3.04

Takk fyrir síðast stöllur mínar c",)

Já takk takk Bryndís fyrir skemmtilega veislu og lánið á pumpunni (hún virkaði bara vel.... en þetta tók nú sinn tíma). Ég skemmti mér rosalega vel, þæði í partýinu og á Players (þó einstaka lag hafi nú ekki alveg fallið í kramið *roðn*) og hlakka mikið til næsta fjörs með ykkur stelpur. Heilsan daginn eftir var nú samt ekkert sérstaklega góð..... ja eiginlega var ég MJÖG lasin..... með svona magabólgur og mígreni *hóst*.

Ég held við þurfum ekkert að vera að hittast í vikunni..... er ekki allt klárt? Kannski við lesum yfir hvað hver ætlaði að koma með og gerum athugasemdir ef okkur finnst eitthvað vanta..... er það ekki nóg?

Kv, Sirrý sem veit ekki enn hvaða spil hún á að taka með.

Engin ummæli: