Ég er búin að vera lasin með hrikalegt kvef undanfarið, fór veik úr vinnu á fimmtud. lá heima í bælinu til kl að verða 20 í gær. Druslaðist þá í Rauða Krossinn því að hin sem átti að vera með mér á vakt var líka veik. Stóð mína plíkt alein. Er svo að vinna um helgina og reyni að hósta ekki í símann.
Annars er ég að gera skattaskýrsluna og sækja um vinnur.
Hvernig finnst ykkur þetta veður, æði, vildi geta hjólað núna. En treysti mér ekki til þess auk þess sem það er sprungið hjá mér og ég hef ekki komist í að laga það.
kv.
Auður
Engin ummæli:
Skrifa ummæli