Takk fyrir síðast stelpur!!!
Já þetta var sko gaman..... samt ótrúlega rólegar eitthvað miðað við allt magnið af vökva sem kláraðist. Held nú að það hafi verið einhver brögð í tafli þarna. Jæja allavegana var þetta rosalega ljúft og gott að komast aðeins frá skyldum heimilisins. Annars er Dóri mun aktívari húsmóðir en ég..... hann var búinn að skúra allt, þrífa klósettin og setja í nokkrar þvottavélar, fara í ungbarnasund og í afmæli + það að sjá um 4 drengi og fæða þá alla helgina. Ég er rosalega ánægð með afköstin hjá mínum manni. Hlakka bara til að fá hann í fæðingarorlof í apríl..... það verður örugglega glansandi fínt hérna alla daga.
Já og svo var auðvitað yndislegt að koma heim til strákana sinna. Aron Helgi var ekkert fúll út í mömmu sína, bara rosalega ánægður að sjá kellu og þá aðalega brjóstin hennar (það komu svona svipuð hljóð hjá honum og þegar ég borðaði Snickersið í bústaðnum..... svona stunur *roðn*).
Kv, Sirrý sem er farin að hlakka til næsta húsmæðraorlofs
Engin ummæli:
Skrifa ummæli