23.6.04

hæ hæ
vááá hvað viðgerðir geta verið dýrar maður ætti kanski að verða bifvélavirki næst til að verða ríkur :)
jæja Ása komst inn í kvennó og ég dreif mig í því að borga skólagjöldin svo að hún myndi ekki missa plássið þar sem hart er barist um hvert pláss mér finnst ótrúlegt að menntamálaráðuneytið skuli ekki hafa gert neitt fyrr vegna þess að þeir vissu í haust hversu stór árgangur var á leiðinni jæja en þetta er bara svona hún flaug alla vega inn sem betur fer og er rosalega ánægð með það
Ragga þú ert rosalega dugleg að vera í útilegum ég er svo löt að ég nenni varla neinu ég fer líka í frí eftir næstu viku og er svo sannalega farin að hlakka til þá tek ég fjórar vikur vinn svo í eina og fer aftur í tvær vikur þetta kallar maður lúxus líf ég vona að ég sofi ekki allt fríið mitt frá mér ég sef nefnilega svo mikið núna (svo agalega þreytt):)
ég vona að við förum að hittast bráðum sakna ykkar
kv Björk

Engin ummæli: